Víkurfréttir - 14.05.2025, Page 2
Miklar sveiflur í íbúaþróun á Suðurnesjum
Íbúaf jöldi á Suðurnesjum
lækkaði lítillega á milli desember
2024 og maí 2025 en sveiflurnar
eru mjög mismunandi milli sveit-
arfélaga. Samtals fækkaði íbúum
á svæðinu um 235 manns eða um
0,7%. Ræður þar án efa mestu
að skráðum íbúum Grindavíkur
fækkar um 475 á tímabilinu eða
um 33,7%.
Stærsta sveitarfélag svæðisins,
Reykjanesbær, hélt í raun íbúa-
tölunni nokkuð stöðugri. Íbúum
fjölgaði þar örlítið, úr 24.313 í
24.360, sem jafngildir 47 ein-
staklingum eða 0,2% fjölgun. Þetta
sýnir áframhaldandi stöðugleika í
bæjarfélaginu sem hefur verið í
örum vexti á undanförnum árum.
Langmest áhrif sáust í Grindavík
þar sem íbúum fækkaði um heil
475 manns, sem nemur 33,7%
fækkun. Fjöldinn fór úr 1.408 í
933. Þessi mikla fækkun skýrist
líklega af áhrifum náttúruhamfara
og rýminga eftir jarðhræringar og
eldgos á svæðinu, sem hafa raskað
daglegu lífi bæjarbúa verulega.
Í Sveitarfélaginu Vogum fjölgaði
íbúum úr 1.793 í 1.872, sem er
fjölgun um 79 manns eða 4,4%.
Suðurnesjabær bætir við sig 114
íbúum og fer úr 4.218 í 4.332,
sem jafngildir 2,7% fjölgun. Báðar
þessar tölur benda til jákvæðrar
þróunar í þeim sveitarfélögum,
sem gæti tengst flutningum
fólks frá Grindavík eða fjölgun
í tengslum við atvinnu- og hús-
næðisframboð.
Heildarfjöldi íbúa á svæðinu fór
úr 31.732 í 31.497, sem er fækkun
um 235 einstaklinga. Þrátt fyrir
fækkunina í heild þá má greina
skýra tilfærslu íbúafjölda á milli
sveitarfélaga.
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
vf isÞú finnur allar nýjustu
fréttirnar frá Suðurnesjum á
Ársreikningur Reykjanesbæjar
fyrir árið 2024 var samþykktur
á bæjarstjórnarfundi í síðustu
viku með tíu atkvæðum. Margrét
Þórarinsdóttir (U) sat hjá við af-
greiðsluna. Meirihluti bæjarfull-
trúa Framsóknar, Samfylkingar
og Beinnar leiðar lýsti ánægju
með niðurstöðuna og sagði
reikninginn staðfesta traustan
og heilbrigðan rekstur í ört vax-
andi sveitarfélagi.
Í bókun meirihlutans, sem
Guðný Birna Guðmundsdóttir
flutti, kemur fram að reksturinn
hafi verið öflugur og verulega
betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Afkoman var jákvæð og veltufé frá
rekstri hækkaði á milli ára. Skulda-
hlutföll séu áfram innan ásættan-
legra marka.
Áhersla var lögð á fjárfestingar í
leik- og grunnskólastarfi, íþrótta-
mannvirkjum og innviðum, en
meðal framkvæmda má nefna
áframhaldandi uppbyggingu við
Holtaskóla og Myllubakkaskóla,
nýja leikskóla og undirbúning
vegna Drekadals. Þá var ný körfu-
boltahöll opnuð í Innri-Njarðvík
og ný sundlaug þar verður tekin í
notkun í sumar.
Meirihlutinn segir þessi verk-
efni og niðurstöður endurspegla
markvissa stefnu og sýn um sterkt
samfélag með góðum þjónustuinn-
viðum. „Við horfum bjartsýn fram
á veginn,“ sagði í bókun meiri-
hlutans.
Mikill fjöldi íbúa er að flytja í okkar
frábæra bæ
Birna Guðmundsdóttir lagði fram
á fundinum eftirfarandi bókun
meirihluta bæjarfulltrúa Fram-
sóknar, Samfylkingar og Beinnar
leiðar:
„Meirihluti bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar fagnar árinu 2024
sem gekk mjög vel og heilbrigður
ársreikningur staðfestir það.
Tekjur bæjarsjóðs (A-hluti) var
27,8 milljarðar en gjöld bæjarsjóðs
voru 25 milljarðar kr.
Tekjur samstæðu (A og B hluti)
voru 40,5 milljarðar en rekstrar-
gjöld 32,5 milljarðar kr.
Mikilvægar tölur hér þar sem
tekjur standa undir gjöldum, bæði
hjá bæjarsjóði og hjá samstæðunni.
Enn eitt árið gættum við þess að
tekjur séu umfram gjöld og að það
sé afgangur fyrir fjárfestingar.
Fjárfest var á árinu 2024 fyrir
sex milljarða og ber þar helst að
nefna áframhaldandi verkefni
okkar við að stækka og betrum-
bæta Holtaskóla og Myllubakka-
skóla. Auk þess opnuðum við tvo
leikskóla, Asparlaut og Tjarnar-
lund og erum að vinna að því að
klára þann þriðja, leikskólann
Drekadal. Auk þess opnuðum
við stórglæsilega körfuboltahöll
í Innri-Njarðvík og stefnt er að
opnun nýrrar sundlaugar þar nú
í sumar.
Áætlun ársins með viðauka gerði
upphaflega ráð fyrir 149 milljóna
króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu
bæjarsjóðs sem endaði í 1.113 millj-
ónum. Staðan er því mun betri en
gert var upphaflega ráð fyrir, eða
964 milljónum betri niðurstaða.
Ástæðan fyrir þessum mikla mun
á tekjum liggur nær eingöngu í
hækkun á útsvari, þ.e. mikill fjöldi
íbúa er að flytja í okkar frábæra
bæ en fjölgun íbúa undanfarin ár
hefur verið að meðaltali um eitt
þúsund nýir íbúar á ári undan-
farin ár.
Rekstrarniðurstaða fyrir af-
skriftir, f jármagnsliði, skatta
og hlutdeild minnihluta nam 8
milljörðum króna. Að teknu tilliti
til þeirra liða var niðurstaðan já-
kvæð um 2.577 milljónir króna en
áætlun ársins gerði ráð fyrir 1.220
milljóna króna jákvæðri rekstrar-
niðurstöðu hjá samstæðu sveitar-
félagsins, eða 1.357 milljón króna
betri rekstrarniðurstaða en gert var
ráð fyrir.
Veltufé frá rekstri bæjarsjóðs
árið 2024 var 3 milljarðar, hækkun
um 700 milljónir frá árinu áður.
Veltufé frá rekstri samstæðu árið
2024 var 7,4 milljarðar króna í
samstæðu, hækkun um 1,1 milljarð
frá árinu áður.
Veltufé frá rekstri er ein mikil-
vægasta stærðin sem segir til um
það fjármagn sem stendur eftir
og hægt er að nýta í fjárfestingar
eða niðurgreiðslu skulda. Veltufé
frá rekstri lýsir heilbrigði reksturs
til að standa undir fjárfestingum.
Við tókum lán á árinu 2024 fyrir
2,6 milljarða króna sem er eðlilegt
á uppbyggingarfasa.
Þegar horft er til skulda þá er
skuldaviðmið bæjarsjóðs 97,7%
og skuldaviðmið samstæðunnar
105,6%. Skuldahlutfall bæjarsjóðs
er 121,98% og samstæðunnar var
136,7%.
Þessar stærðir eru mjög mik-
ilvæg viðmið fyrir sveitarfélög.
Sveitarfélög á Íslandi geta ekki
lagalega skuldsett sig óendanlega
og þurfa að uppfylla skuldaviðmið
sem er hlutfall heildarskulda af
heildartekjum sveitarfélagsins en
hlutfallið á að vera undir 150%.
Skuldir á hvern íbúa Reykjanes-
bæjar eru um 1,4 milljónir króna.
Þrátt fyrir lántökur á árinu 2024
og þrátt fyrir sex milljarða fram-
kvæmdir – þá er þetta niðurstaðan.
Heilbrigður ársreikningur hjá
kröftugu sveitarfélagi í hröðum
vexti. Reykjanesbær heldur áfram
að vaxa og dafna og munum við
styðja við okkar frábæra sveitar-
félag, nú sem endranær.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir
(S), Sverrir Bergmann Magnússon
(S), Sigurrós Antonsdóttir (S),
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B),
Bjarni Páll Tryggvason (B), Díana
Hilmarsdóttir (B) og Valgerður
Björk Pálsdóttir (Y).
Sjálfstæðisflokkurinn
ítrekar áhyggjur af aukningu
rekstrarkostnaðar
Margrét A. Sanders og lagði fram
eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokks:
„Í ljósi erf iðrar stöðu f jár-
mála í Reykjanesbæ undanfarna
mánuði er ánægjulegt að niður-
staða ársreiknings ársins 2024
sýni að rekstrarafgangur nemi 1,1
milljarði og að tekjur séu tæpum
3 milljörðum hærri en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Helstu ástæður
aukinna tekna eru að útsvars-
greiðslur íbúa aukast um tæpa 2
milljarða á milli ára og þjónustu-
tekjur sveitarfélagsins aukast um
tæpan 1 milljarð. Eins og alkunna
er hefur meirihlutinn þann háttinn
á að vanáætla tekjur hvers árs og
því má velta fyrir sér hver eðlilega
áætluð tala hefði orðið.
Sjálfstæðisflokkurinn ítrekar
einnig áhyggjur sínar af aukningu
rekstrarkostnaðar líkt og undan-
farin ár. Það er verulegt áhyggju-
efni að rekstrarkostnaður sveitar-
félagsins hækkar mikið á hverju
ári, og nemur hækkunin sam-
kvæmt ársreikningi nú um 3 millj-
örðum á milli ára og er langt yfir
áætlun.
Fyrir ári síðan, við yfirferð árs-
reiknings sveitarfélagsins fyrir árið
2023, benti Sjálfstæðisflokkurinn
á að handbært fé væri að lækka
mikið og að bæjarsjóður gæti lent
í vandræðum með að standa við
skuldbindingar sínar.
Í ársreikningi 2024 kemur fram
að handbært fé í lok árs 2024 var
um 133 milljónir. Til að setja þá
fjárhæð í samhengi eru rekstrar-
gjöld um 2 milljarðar á mánuði
og þar af eru laun og launatengd
gjöld sveitarfélagsins rúmlega 1
milljarður á mánuði. Við vekjum
athygli á því að inni í þessum tölum
er ekki kostnaður vegna fjárfest-
inga. Það er því ljóst að Reykja-
nesbær er kominn í vandræði með
að standa við skuldbindingar sínar
eins og kom fram í bókun okkar á
síðasta ári.“
Margrét Sanders, Guðbergur
Reynisson og Helga Jóhanna
Oddsdóttir Sjálfstæðisflokki.
Ársreikningurinn varpar ljósi á
alvarlega lausafjárstöðu
Margrét Þórarinsdóttir og lagði
fram eftirfarandi bókun bæjarfull-
trúa Umbótar:
„Umbót gerir ekki athuga-
semdir við réttmæti ársreiknings
Reykjanesbæjar og ber fullt traust
til vinnu starfsmanna og löggilts
endurskoðanda. Hins vegar varpar
ársreikningurinn ljósi á alvarlega
lausafjárstöðu sem Umbót hefur
áður varað við, meðal annars vegna
þess að handbært fé nam einungis
133 milljónum króna um áramót.
Umbót situr hjá við samþykkt
ársreikningsins til að undirstrika
nauðsyn á gagngerri endurskoðun
á fjármálastjórn sveitarfélagsins,
þótt engar athugasemdir séu
gerðar við réttmæti hans.“
Margrét Þórarinsdóttir, Umbót.
Sterk rekstrarstaða í Reykjanesbæ árið 2024
n Tekjur umfram gjöld og öflug fjárfesting
REYKJANESBÆR
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Mikið fjármagn hefur farið í endurbyggingu grunn- og leikskóla
í Reykjanesbæ. Hér sést yfir Myllubakkaskóla í Keflavík.
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM