Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.05.2025, Side 6

Víkurfréttir - 14.05.2025, Side 6
Vetrarvertíð lokið – Strandveiðar teknar við Vetrarvertíðin 2025 lauk form- lega þann 11. maí, samkvæmt dagatali. Sú dagsetning hefur þó varla sést á dagatölum undanfar- inna ára. Um leið og vertíðinni lauk hófst önnur, því strandveiði- tímabilið er komið á fullt. Margir bátar hafa hafið veiðar og landað afla í Keflavík, Grindavík og Sandgerði. Strandveiðibátar víða að verki Í Sandgerði hefur verið talsverð landanavirkni. Þar má nefna: Gaukur GK með 606 kíló í tveimur róðrum. Sandvík GK með 661 kíló í tveimur róðrum. Dóra Sæm HF með þrjú og hálft tonn í fjórum róðrum. Guðrún GK með 868 kíló í tveimur róðrum. Gola GK með eitt og hálft tonn í þremur róðrum. Arnar ÁR með þrjú og tvö tonn í þremur róðrum, þar af eitt og fjögur tonn í einni löndun þar sem töluverður ufsafli var með. Sæfari GK með eitt og sjö tonn í tveimur róðrum. Gunni Grall KE með eitt og eitt tonn í tveimur róðrum. Giddý GK með eitt og þrjú tonn í tveimur róðrum. Alla GK með eitt tonn í tveimur róðrum. Dímon GK með eitt og átta tonn í þremur róðrum. Una KE með eitt og sjö tonn í tveimur róðrum. Í Keflavík hefur Sigrún GK landað 780 kílóum. Í Grindavík hafa eftirfarandi bátar landað: Sigurvon ÁR með eitt og sjö tonn í þremur róðrum. Hrappur GK með 824 kíló í tveimur róðrum. Kristbjörg KE með 961 kíló í tveimur róðrum. Grindjáni GK með þrjú og sjö tonn í fimm róðrum. Ólafur GK með fjögur og tvö tonn í fimm róðrum. Hafdalur GK með þrjú og sjö tonn í fjórum róðrum. Mest var eitt og níu tonn í einni löndun þar sem mikið var af ufsa. Hawkerinn GK með tvö tonn í þremur róðrum. Verð á fiskmörkuðum hefur verið gott. Strandveiðibátarnir á Suður- nesjum hafa nýtt sér það vel. Þeir fá ekki aðeins þorsk heldur einnig aðrar tegundir sem hækka afla- verðmæti. Dragnótabátar og djúpveiðar Frekar rólegt hefur verið hjá drag- nótabátunum. Siggi Bjarna GK og Benni Sæm GK fóru ekki á sjó fyrr en eftir vertíðarlok. Sigurfari GK fór hins vegar austur að Skaftár- ósum og fékk þar 43 tonn í aðeins níu köstum. Það gerir tæplega fimm tonn að meðaltali í kasti. Af þeim afla voru 36 tonn steinbítur. Í Sandgerði hafa einnig landað: Aðalbjörg RE með 41,5 tonn í þremur róðrum. Maggý VE með 32 tonn í tveimur róðrum. Margrét GK með níu og þrjú tonn í tveimur róðrum. Línubátarnir flytja sig til Flestir línubátarnir hafa fært sig yfir í Grindavík. Veiðin í byrjun maímánaðar var mjög góð en hefur síðan dregið úr. Fjölnir GK hefur landað 77,5 tonnum í fimm róðrum. Fyrsti róðurinn var 20,8 tonn sem var tvílandað. Síðasta löndun bátsins var um sex tonn. Óli á Stað GK hefur landað 20,7 tonnum í tveimur róðrum í Sandgerði og 52 tonnum í fjórum róðrum í Grindavík. Gísli Súrsson GK hefur landað 68 tonnum í fimm róðrum, þar af mest 19,7 tonn í einum róðri. Auður Vésteins GK hefur landað 67 tonnum í fimm róðrum og mest 18,6 tonn í einni löndun. Indriði Kristins BA hefur landað 25 tonnum í tveimur róðrum í Sandgerði og 30 tonnum í þremur róðrum í Grindavík. Togararnir og netabátarnir Nokkrir togarar hafa einnig landað á svæðinu: Hulda Björnsdóttir GK með 159 tonn í einni löndun í Grindavík. Pálína Þórunn GK með 75 tonn í Sandgerði. Í Keflavík hafa netabátarnir verið virkir: Sunna Líf GK með 19,5 tonn. Addi Afi GK með 11,5 tonn. Halldór Afi GK með 17 tonn. Allir hafa þeir landað fimm sinnum og allir í Keflavík Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamaður: Sigurbjörn Daði Dagbjartsson. Útlit og umbrot: Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is // HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu HEYRN.ISvf is Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á Þú finnur allt það nýjasta í sjónvarpi frá Suðurnesjum á vf.is Lumar þú á ábendingu um áhugavert efni í Suðurnesjamagasín? Sendu okkur línu á vf@vf.is AFLAFRÉTTIR Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Með blokkum skal bæ byggja? Fyrir rúmu ári síðan bjuggum við fjölskyldan í fjölbýlishúsahverfi í Reykjavík, eftir að hafa flutt þangað vegna rýmingar í Grindavík, og þá stóðum við frammi fyrir stórri spurningu: Hvar vildum við halda heimili til framtíðar? Eftir að hafa skoðað valmöguleikana vandlega kom ekkert annað til greina en Reykjanesbær. Það sem skipti mestu máli var öflugt íþróttastarf, góðir skólar, samfélag þar sem bæjar- búar þekkjast og taka virkan þátt og ekki síst raunhæft framboð af sérbýli á heilbrigðu verði. Allt eru þetta lykilatriði sem skapa þau lífsgæði sem við fjölskyldan viljum búa við og finnum sterkt fyrir hér í Reykjanesbæ. Í nýsamþykktri h ú s n æ ð i s á æ t l u n meirihluta Samfylk- ingar, Framsóknar og Beinnar leiðar í Reykjanesbæ er gert ráð fyrir að 95,4% allra skipulagðra íbúða á árunum 2024–2033 verði í fjölbýlishúsum. Ég verð að viðurkenna að þegar ég las þessa áætlun hélt ég í fyrstu að um væri að ræða hús- næðisáætlun Reykjavíkurborgar – ekki Reykjanesbæjar. Hvernig getur svona einhæf uppbygging talist skynsamleg, þegar við viljum skapa fjölbreytt samfélag með raunverulegum valkostum? Það hefur ekki farið fram hjá neinum sem býr í Reykjanesbæ að uppbygging síðustu ára hefur að miklu leyti verið í formi fjölbýlis- húsa. Því vekur það furðu að nú sé ætlunin að auka hlutfallið og stíga nánast alfarið frá öðru búsetuformi. Enginn dregur í efa að fjölbýli eigi sinn stað í uppbygg- ingu – en lykilatriðið er jafnvægi. Við þurfum blandaða byggð þar sem fólk hefur raunverulegt val: hvort það vill búa í blokk, rað- húsi, parhúsi eða einbýli. Með þessu móti endurspeglast ólíkar þarfir og óskir bæjarbúa og tryggt er að samfélagið okkar þróist áfram á fjölbreyttan og heilbrigðan hátt. Skuggamynd af Reykjavík Stefnan sem meirihlutinn boðar nú virðist ekki byggð á framtíð- arsýn – heldur hugmyndafræði sem hentar kannski í þéttingar- reitum Reykjavíkur, en á ekkert erindi við ört vaxandi fjölskyldu- vænt sveitarfélag eins og Reykja- nesbæ. Því miður er þetta eitt dæmi af mörgum um það hvernig núverandi meirihluti hefur mark- visst reynt að gjörbreyta bæjarsál Reykjanesbæjar. Ungt fólk og barnafjölskyldur eiga sér margar þann draum að eignast sérbýli og í sveitarfélagi eins og okkar á sá draumur að vera raunhæfur. Þegar einungis 4,6% íbúða sem byggðar verða næstu árin eiga að vera sérbýli, þá er verið að ýta þessum draumi út fyrir seilingar allra nema þeirra tekjuhæstu. Reykjanesbær þarf stefnu sem byggir á f jölbreyttu húsnæði, metnaði í skipulagsmálum og virð- ingu fyrir samfélaginu okkar. Við verðum að átta okkur á þeim lífs- gæðum og því samkeppnisforskoti sem við í Reykjanesbæ búum við, það er svo sannarlega engin ástæða til að tefla í tvísýnu þessu forskoti á höfuðborgarsvæðið með því að feta í fótspor meirihlutans í Reykjavík. Við eigum ekki að sætta okkur við að vera skuggamynd af Reykjavík – við eigum að vera við sjálf. Vilhjálmur Árnason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og íbúi í Reykjanesbæ. HLJÓMAHÖLL GORMUR ROKKSAFN MAGNAÐUR ÖGN RJÓÐ HÚSIÐ GARÐUR LOGI VORBOÐI KURR MARGÆSIR FARFUGLAR MYRKVI FORSETI GOLFVÖLLUR RJÓMI STORMUR FÉLAGAR SMURT R O U M R S T U O T R R M G I É Ö H R U J L T R A G U E K F M S S K T F E S K R O U G L O A V H F S K A Ú S Ú E Ó G G Ö U N O I G F Þ Ó Ó G N K Ú S U A S T H S K É Þ A H J Þ H J G Ú L Ó R U A S G R H M Æ S A G R M E R M N K S K V Ö K L F V G I F S M Ó E Ð R M Ó J F J L R Ú S E T L O Ú I A R E E É F Ö Ð A U R O L Y U E N É G D L L Á É B Ó R N R A I A G A Ú L F A S P Ð S A Æ F G É S J J R F G B L Ð R O É I A R A O K V M Æ Æ R A I B A É S A G G R S ORÐALEIT Finndu tuttugu vel falin orð Gangi þér vel! 6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.