Víkurfréttir - 14.05.2025, Blaðsíða 8
Ástkær eiginmaður og besti vinur, faðir
okkar, tengdafaðir og afi
GUÐMUNDUR BJARNI
GUÐBJÖRNSSON
rafmagnstæknifræðingur,
Steinási 12, 260 Reykjanesbæ,
lést í fallega Hreiðrinu okkar í Grímsnesi 25. apríl 2025.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 20. maí kl. 13.
Guðbjörn Karl Guðmundsson
Inga Rósa Guðmundsdóttir
Davíð Már Guðmundsson
Bjarni Reyr Guðmundsson
Hansína Guðmundsdóttir
Jóhann Ingi Kristjánsson
Júlía Svava Tello
og barnabörn
Guðveig Sigurðardóttir
Aðalfundur
Krabbameinsfélags Suðurnesja
fer fram fimmtudaginn 22. maí nk. klukkan
18:30 að Hafnargötu 57 Park Inn hótel.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar og velunnarar Krabbameinsfélags
Suðurnesja eru hvattir til að mæta.
Í nýútgefnum drögum að hönnunarhandbók fyrir Hafnargötu í
Reykjanesbæ er lögð fram metnaðarfull framtíðarsýn um hvernig
þessi mikilvæga gata – gjarnan kölluð „Lífæðin“ – geti þróast í lif-
andi, öruggt og aðlaðandi borgarrými. Verkefnið byggir á greiningu
núverandi aðstæðna og leggur fram tillögur að skipulagi, efnisvali,
lýsingu, gróðri og tengingum sem miða að því að efla miðbæinn sem
hjarta mannlífs og þjónustu í bænum. Drög að hönnunarhandbókinni
voru kynnt á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanes-
bæjar. Tilgangur skipulagsins er að styrkja, treysta og setja stefnu
um uppbyggingu og yfirbragð svæðisins.
Lífæð miðbæjarins – áhersla á
öryggi og vistvæni
Hafnargata er kölluð „Lífæðin“ í
handbókinni og gegnir lykilhlut-
verki í ásýnd og samgöngum bæj-
arins. Gert er ráð fyrir að hún verði
einstefnugata norður frá Tjarnar-
stíg, með 30 km hámarkshraða,
og 15 km hraða þar sem einstefnan
tekur við. Áhersla er lögð á gang-
andi og hjólandi umferð, öruggar
þveranir og sjálflæst göturými án
umferðarljósa.
Skýr stefna um ásýnd og aðgengi
Handbókin leggur upp með sam-
ræmt efnis- og litaval í yfirborðs-
efnum og götugögnum. Gang-
stéttir verða að lágmarki 2,5 metra
breiðar, hjólastígar 1,8 metra
og aðskildir frá gönguleiðum.
Rýmin verða gerð aðgengileg með
römpum og öðrum lausnum þar
sem hæðarmunur er fyrir hendi.
Tengingar og bílastæði – í takt við
framtíðina
Sérstök áhersla er lögð á tengingu
við Ægisgötu og heilsustígakerfi.
Bílastæði verða færð niður í jarð-
veginn, m.a. í bílakjallara undir ný-
byggingum, til að rýma fyrir gróðri
og dvalarrýmum. Bílastæði á yfir-
borði verða lögð með gegndræpum
efnum og hönnuð með aðgengi og
öryggi í huga.
Mannlíf, gróður og upplifun
Handbókin styður við virkt götulíf
með sýnilegri starfsemi á jarð-
hæðum, góðri lýsingu og fjölbreyti-
legum rýmum. Gróður verður
nýttur til að bæta loftgæði og skapa
skjól, og blágrænar lausnir nýttar
til að hreinsa ofanvatn og minnka
flóðahættu.
Miðbær sem líflegur áfangastaður
Þessi vinna við Hafnargötu er liður
í stærra ferli við að móta miðbæ
Reykjanesbæjar sem lifandi og
sjálfbært borgarrými. Lögð er
áhersla á samspil samgangna,
gróðurs og mannlífs, og að götur
verði meira en bara leiðir – heldur
staðir þar sem fólk vill dvelja,
versla og njóta.
Hafnargata fær nýtt líf
FRAMTÍÐARSÝN FYRIR MIÐBÆ REYKJANESBÆJAR
REYKJANESBÆR
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
MIKIL ÁHERSLA LÖGÐ Á UMFERÐARÖRYGGI
OG VERND ÚTIVISTARSVÆÐA
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur staðfest að út-
færsla A sé vænlegasti kosturinn við hönnun nýrra gatnamóta Njarð-
arbrautar, Fitjabakka og Bergáss. Þetta kom fram á fundi ráðsins
þann 9. maí þar sem farið var yfir samantekt forsendna og mat á
valkostum umferðarmannvirkja á svæðinu.
Í bókun ráðsins segir að útfærsla
A skori hæst þegar litið er til um-
ferðarflæðis, öryggis og hagkvæmni
– bæði með tilliti til kostnaðar og
framkvæmdatíma. Valkostur B,
sem einnig var til skoðunar, er
sagður dýrari í framkvæmd, veita
minni ávinning í öryggismálum og
raski auk þess opnu útivistarsvæði
sem nýtur hverfisverndar.
Fyrsti hluti samgöngubóta á
svæðinu verður hringtorg við
gatnamót Njarðarbrautar og Fitja-
bakka. Ráðið leggur ríka áherslu á
að þessi framkvæmd komist sem
fyrst á framkvæmdatöflu, enda sé
hún lykilatriði í að bæta flæði og
öryggi umferðarmynsturs í og við
Ásahverfið.
Í framhaldinu mun verða unnið
að hönnun nýrra gatnamóta við
Grænás og lausna við gatnamót
Njarðarbrautar og Bergáss. Einnig
verður horft til betri tenginga við
Ásahverfið í heild. Lagt er upp
með að ljúka hönnunarvinnu fyrir
Grænás á árinu 2025.
Markmið með verkefninu í
heild er að auka umferðaröryggi,
bæta aðgengi og tryggja að nær-
samfélagið haldi sínum útivistar-
svæðum og hverfisvernd.
Séð yfir svæðið sem um ræðir. VF/Hilmar Bragi
Hringtorg fyrsta
skrefið við Fitjar
Vinnslutillaga að deiliskipulagi fyrir Breiðbrautarreit á Ásbrú
liggur nú fyrir og markar mikilvægt skref í þróun svæðisins. Til-
lagan, sem unnin er af Stúdíó Jæja fyrir hönd Kadeco, tekur til reits
sem afmarkast af Lindar-, Grænás- og Breiðbraut og miðar að því
að skapa fjölbreytta og vistvæna byggð í nánum tengslum við sér-
kenni svæðisins.
Í tillögunni kemur fram að
lögð sé sérstök áhersla á að skapa
græna, gönguvæna og skjólsæla
byggð sem taki mið af þeirri
áhugaverðu sögu sem Ásbrú hefur.
Þar sem áður voru byggingar sem
þjónuðu hersetu, er nú unnið með
metnaðarfulla sýn á fjölbreytta
íbúðabyggð sem fellur vel að stað-
bundnum aðstæðum. Nýbyggingar
munu skapa skjól fyrir ríkjandi
norðan- og austanátt, en opnast
til suðurs og vesturs – sem tryggir
björt útsýni og betri nýtingu á sól
og útivistarsvæðum.
Skapar nýja ásýnd með
tengingu við rætur svæðisins
Samkvæmt hugmyndafræði til-
lögunnar er byggðamynstrið fjöl-
breytt og mótað með skýrum sjón-
ásum á milli ólíkra svæða innan
reitsins. Þetta á að stuðla að upp-
lifun af rýmum í manneskjulegum
kvarða og bjóða upp á marga
möguleika til samveru, leiks og
útivistar í sameiginlegum svæðum.
Við hönnunina er einnig tekið
mið af eldri byggingum sem þegar
standa á Ásbrú og víða má finna
húsagerðir sem henta vel í samspil
við nýja byggð. Umhverfið er þó
á köflum berangurslegt og því er
markmiðið að þétta og móta það
á mannvænan hátt. Nýtt byggða-
mynstur mun byggja upp skjól-
góðar og aðlaðandi götur, torg og
opnar tengingar milli svæða þar
sem gangandi og hjólandi eiga
greiða leið.
Þróun í takt við rammaskipulag
og staðaranda
Í lýsingu verkefnisins kemur fram
að vinnan sé unnin í anda þeirra
markmiða sem sett voru fram í
rammaskipulagi fyrir Ásbrú. Þar
er áhersla lögð á að tryggja vist-
væna byggð með grænum teng-
ingum, fjölbreytilegri húsagerð
og opnum útirýmum sem styrkja
mannlíf og samfélag.
Reiturinn verður þéttur, en
án þess að missa sveigjanleika í
útfærslum. Þeir staðir þar sem
götur, stígar og hús koma saman
eru mótaðir með tilliti til ríkjandi
vindátta, birtu og landhalla – og
eru nýbyggingar aðlagaðar með
Breiðbrautarreitur á Ásbrú glæddur nýju lífi
246 ÍBÚÐIR Í FJÖLBREYTTRI OG SKJÓLGÓÐRI BYGGÐ
Helstu tölur og stærðir:
Fjöldi íbúða: 246
Fjöldi bílastæða: 290
Byggingarmagn: 26.386 m²
8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM