Víkurfréttir - 14.05.2025, Síða 9
„Við viljum fagna með bæjarbúum og kveikja nýja von um uppbygg-
ingu og samveru á Vatnsnesinu,“ segir Steinþór Jónsson, stofnandi
Hótel Keflavík, sem ásamt eiginkonu sinni Hildi og dætrum þeirra
heldur utan um nýjan viðburð sem ber nafnið Vor á Vatnsnesi. Há-
tíðin verður haldin um helgina og markar bæði afmæli hótelsins, sem
opnaði 17. maí 1986, og nýtt upphaf í þróun svæðisins við Vatnsnes.
„Markmiðið er einfalt – að
skemmta okkur og öðrum í upp-
hafi sumars,“ segir Lilja Karen,
dóttir hjónanna, sem ásamt systur
sinni Unni Maríu, tekur virkan
þátt í rekstri hótelsins. „Við viljum
bjóða upp á gleði, menningu og
upplifun fyrir alla aldurshópa og
með þessari hátíð vonumst við til
að leggja grunn að árlegri bæjar-
hátíð.“
KEF fjölskyldan horfir til framtíðar
Í samtali við Víkurfréttir leggja
hjónin og dæturnar áherslu á að
Vor á Vatnsnesi sé hluti af stærri
sýn. „Við trúum á framtíð Vatns-
nessins sem nýs miðbæjarkjarna,“
segir Unnur María. „Við höfum
fjárfest í lykileignum, eins og
gamla Olís-húsinu og Framnesvegi
29, og sjáum fyrir okkur svæði þar
sem KEF SPA, KEF Restaurant og
Hótel Keflavík tengjast í upplifun,
þjónustu og menningu. Við köllum
þetta KEF CENTER.“
„Þetta er draumur sem á rætur
að rekja aftur til 1995, þegar pabbi
og afi okkar, Jón William, horfðu
fyrst til þessara lóða með framtíð
hótelsins í huga,“ bæta þær við.
Dagskrá fyrir allt samfélagið
Hátíðin hefst á fimmtudag með
konukvöldi í KEF SPA og afmælis-
matseðli í KEF Restaurant. Föstu-
dagurinn býður upp á listasýningu
í Vatnsneshúsinu, 80’s kvöld í
heilsulindinni og tónlist með Kósý-
bandinu.
Á laugardag fer fram Moët
kampavínshlaup, verðlaunaaf-
hending með Lúðrasveitinni
og skemmtun fyrir börnin með
hoppuköstulum og matarvögnum.
Kvöldið endar á Eurovision partýi
í KEF SPA. Á sunnudag er fjöl-
skyldudagur með barnabröns og
sýningu Leikhópsins Lottu.
„Við erum þakklát fyrir traust
bæjarbúa í gegnum árin,“ segir
Hildur. „Við viljum með þessari
hátíð sameina gömlu rótina og nýja
drauma – og við bjóðum ykkur öll
hjartanlega velkomin.“
Steinþór bætir við með brosi:
„Ég lofa sól alla dagana – og stend
við það, eins og áður.“
Dagskrá afmælishátíðarinnar
má sjá á vefnum www.kef.is/vor-
avatnsnesi
Vor á Vatnsnesi:
„Sameina gömlu
rótina og nýja
drauma“
HÓTEL KEFLAVÍK FAGNAR 39 ÁRA AFMÆLI
MEÐ NÝRRI BÆJARHÁTÍÐ OG FRAMTÍÐARSÝN FYRIR MIÐBÆINN
Hafnargata fær nýtt líf
FRAMTÍÐARSÝN FYRIR MIÐBÆ REYKJANESBÆJAR
Breiðbrautarreitur á Ásbrú glæddur nýju lífi
Hildur og Steinþór
fyrir framan
Vatnsnesið sem
hefur gengið í
gegnum endurnýjun
lífdaga.
því að opnast eða hliðrast í takt
við núverandi aðstæður. Þannig
nýtist reiturinn sem heild og
býður upp á fjölmargar rýmisupp-
lifanir, þar sem áhersla er lögð á
sjónræna samfellu og samhengi
milli nýs og gamals.
Kynningu á vinnslutillögunni er
nú lokið og hefur Umhverfis- og
skipulagsráð Reykjanesbæjar veitt
heimild fyrir því að vinna megi
fullgilda deiliskipulagstillögu í
samráði við skipulagsfulltrúa bæj-
arins. Þar með hefst næsta skref í
hönnunar- og samráðsferlinu, þar
sem tillagan verður þróuð frekar
með áherslu á framkvæmdahæfni,
ásýnd og samspil við nærliggjandi
byggð.
Tilgangur skipulagsins er að styrkja, treysta og setja
stefnu um uppbyggingu og yfirbragð svæðisins.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 9