Víkurfréttir - 14.05.2025, Side 15
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 15
Veðurguðirnir skörtuðu sínu fegursta á laugardaginn en þá var
merkilegur atburður í Grindavík, knattspyrnulið bæjarins var að
leika fyrsta heimaleik í íþrótt síðan fyrir hamfarirnar í nóvember
2023. Knattspyrnudeildin lagði mikið í daginn, hoppukastalar og
kandýfloss fyrir krakkana, grillaðir borgarar og til að ganga úr skugga
um að veðrið yrði gott, var tónlistarmaðurinn Ingó Veðurguð fenginn
til að skemmta.
Haukur Einarsson var hálf
meir á þessum
t í m a m ó t u m ,
að sjálfsögðu
var spjallið við
hann tekið inn
í gula húsinu
s v o k a l l a ð a ,
sem var reist
árið 1986 af for-
kálfum knatt-
spyrnudeildarinnar.
Sál í húsinu
„Það er mikil sál í þessu húsi, hér
ólst maður upp má segja. Þetta er
frábær dagur myndi ég segja, það
er ofboðslega gaman að geta leikið
aftur hér í Grindavík og myndi ég
segja að dagurinn hafi tekist full-
komlega, eina sem vantaði var
sigur í leiknum en hann kemur
bara næst.
Það skal alveg viðurkennt að
þetta er búið að vera mjög erfitt
frá rýmingu 2023, stundum vorum
við alveg við það að bugast en við
gáfumst aldrei upp og ég er rosa-
lega stoltur af samfélaginu mínu,
af fólkinu mínu. Allt sem ég á í dag
er vegna Grindavíkur, þess vegna
er maður að leggja þetta á sig.
Róðurinn hefur verið ansi þungur
oft á tíðum en vonandi sjáum við
fram á bjartari tíma. Þetta var
erfitt í fyrra, við getum seint full-
þakkað Víkingunum sem hýstu
okkur í Safamýrinni og við fengum
aðstoð margra annarra félaga,
þau gripu okkur má segja og fyrir
það verðum við ævinlega þakklát.
Stemningin fyrir liðunum okkar
náðist bara aldrei á neitt flug, við
vorum ekki „heima“ og við settum
stefnuna strax á að geta leikið
heimaleikina
hér í Grindavík
og eru al l ir
himinl i fandi
hér í dag.
M a r k m i ð
o k k a r f y r i r
s u m a r i ð e r
held ég bara
að njóta, við
ætlum að gera okkar besta og
munum gera okkar til að laða
Grindvíkinga til að koma í gamla
heimabæinn, koma á leik og hitta
fólkið sitt. Við erum að gera þetta
fyrir Grindvíkinga, ég vona að fólk
muni líta á þetta eins og hefur
verið hjá körfuboltaliðunum, að
sýna sig og sjá aðra Grindvíkinga,“
sagði Haukur.
Lék á gamla malarvellinum
Hjálmar Hallgrímsson var einn
lykilmanna knattspyrnu- og körfu-
knattleiksliða Grindavíkur en und-
anfarið hefur hann staðið í broddi
fylkingar í bæjarstjórnarmálum
Grindvíkinga.
„Ég spilaði eitthvað um 300
knattspyrnuleiki og þótt ég hafi
ekki leikið á þessum grasvelli, þá
á ég góðar minningar því áður
en grasið kom
var hér góður
malar vö l lur,
það var gaman
þegar bílunum
var lagt með-
fram hliðar-
línunni. Þetta
v o r u g ó ð i r
tímar en sem
betur fer er aðstaðan orðin allt
önnur í dag.
Þetta er frábær dagur, það er frá-
bært að fá liðið aftur heim, ég lít á
þetta sem táknrænt merki í endur-
reisn bæjarins. Það er frábært að
sjá allt þetta fólk, maður skynjar
vonina í brjósti fólks, sumarið er
framundan og Sjóarinn síkáti, svo
nú verður þetta bara upp á við hjá
okkur, það er ég sannfærður um.
Svo vona ég að mínir menn geri
Stakkavíkurvöllinn að vígi og það
verði erfitt fyrir andstæðinginn að
mæta Grindavík, eins og var þegar
ég spilaði,“ sagði Hjálmar.
Meyr vallarstjóri
Gunnlaugur Hreinsson gengdi
stöðu vallarstjóra Grindavíkur-
vallar um tíma en var búinn að
láta af störfum sökum aldurs en
var meira en til í að hjálpa knatt-
spyrnudeildinni við að koma
Stakkavíkurvellinum í stand fyrir
sumarið. Hann átti erfitt með að
hemja tilfinningar sínar á þessum
merka degi.
„Ég er ofboðslega glaður, það er
frábært að sjá alla þessa Grind-
víkinga og ég verð bara meyr
þegar ég hugsa um þetta. Ég var
vallarstjóri fram í janúar 2023 og
þá áttu heldri árin einfaldlega að
taka við með alls kyns ævintýrum
en þau urðu heldur betur öðru-
vísi. Þetta er búinn að vera erfiður
tími, það fer vel um okkur í Hvera-
gerði en við söknum Grindavíkur.
Það var engin spurning í mínum
huga að svara kalli Hauks og fé-
laga í knattspyrnudeildinni og hef
ég ekið hingað daglega með bros
á vör undanfarnar tvær vikur. Við
slógum völlinn af og til í fyrra svo
hann færi ekki í algera órækt og
ég held að hann sé upp á sitt besta
hér í dag. Mín vinna undanfarið
hefur verið að koma öllu í stand,
finna út hvar línurnar eiga að vera,
setja net í mörkin, koma vélum í
gang o.s.frv. Starfsmenn Golf-
klúbbs Grindavíkur munu sjá um
sláttinn á vellinum en þessi völlur
hefur alltaf verið talinn mjög góður
grasvöllur, það verður enginn
knattspyrnumaður svikinn af því
að leika á Stakkavíkurvellinum í
sumar.
Varðandi leik dagsins þá hef
ég bara enga tilfinningu fyrir því
hvernig hann fer, mér finnst úr-
slitin í raun vera algert aukaatriði,
aðalatriðið er að við erum að leika
Meistaramæðgin úr Grindavík
Tilfinningaflóð á fyrsta heimaleik í Grindvík frá rýmingu
GRINDAVÍK
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Adam Árni Róbertsson skorar þriðja mark UMFG.
Það er kannski við hæfi að geta
föðursins, Þorvaldar Sæmunds-
sonar en hann þótti og þykir jafnvel
ennþá, ansi liðtækur snóker-
spilari. Valdi hafði einkar gott lag
á því að „batta“ ofan í [hvítu kúlu
skotið í aðra kúlu sem fer af batta
í gat á móti battanum] en nokkuð
mikil snóker-menning var í gangi
í Grindavík í kringum 1990 og þá
skein sól snóker-spilarans Valda
Sæm hvað hæst. Hvert veit nema
hann muni endurvekja snóker-
íþróttina í Grindavík og því skyldi
hann ekki einhvern tíma verða
kjörinn íþróttakarl Grindavíkur
en nóg um pabbann, hvar liggja
íþróttarætur móðurinnar?
Íþróttabakgrunnur
„Ég er með talsverðan íþrótta-
bakgrunn, ég stundaði bæði
frjálsar íþróttir og handbolta í Ár-
bænum. Ég var t.d. í úrtakshópi
fyrir Ólympíuleikana í Sydney
árið 2000, ég keppti bæði í spjót-
kasti og kringlu svo það að kasta
pílu er ekki það fyrsta sem ég
geri í íþróttum. Ég held að það
geti skipt máli hvort viðkomandi
er með grunn í öðrum íþróttum,
þetta þekkjum við t.d. í golfíþrótt-
inni, knattspyrnumenn t.d. sem
leggja golf fyrir sig að loknum
knattspyrnuferlinum, eru venju-
lega fljótari að komast upp á lagið
með golfið en aðrir en svo eru
auðvitað sumir sem eru bara með
þetta í sér. Ég var nokkuð fljót að
tileinka mér pílutæknina en ég
byrjaði bara sem „pílumamma“
sem fylgdi syni sínum á mót og
keyrði á æfingar. Síðan gerðist það
fyrir u.þ.b. fjórum árum að önnur
„pílumamma,“ Sandra Dögg sem
sjálf var byrjuð að kasta, bauð
mér á prufukvöld og ég hef í raun
ekki litið til baka síðan þá. Þess
má geta að Sandra er makkerinn
minn í dag í tvímenningi. Ég hef
náð ágætis árangri á árinu, er með
tvo Íslandsmeistaratitla og stefni á
fleiri ásamt góðum árangri í öðrum
mótum. Ég var t.d. önnur stigahæst
kvenna á landinu í fyrra á stigalista
ÍPS. Við Alexander erum saman í
landsliðinu, það er sko ekki leiðin-
legt að vera þar með honum. Ég er
með stór markmið og ætla mér að
ná langt í íþróttinni.
Ef ég er alveg heiðarleg þá átti
ég ekki von á að eiga möguleika á
að hljóta þessa nafnbót, Íþrótta-
kona Grindavíkur. Alexander var
líka kjörinn íþróttamaður Grinda-
víkur í fyrra og ég lét mig ekki einu
sinni dreyma um að við myndum
hljóta þessa nafnbót saman ein-
hvern tíma. Þess vegna er þetta
ofboðslegur heiður, ég var í skýj-
unum bara með að vera tilnefnd en
að hljóta svo nafnbótina og deila
þessum heiðri með syni mínum er
æðislegt!“
Komst strax í landsliðið í pílu
Alexander Veigar hlaut hefð-
bundið íþróttauppeldi í Grindavík
og æfði bæði körfuknattleik og
knattspyrnu. Fyrir rýmingu var
Pílufélag Grindavíkur búið að
opna glæsilega aðstöðu í nýju
íþróttamannvirki Grindavíkur og
voru æfingar hafnar hjá börnum
og unglingum. Alexander var
einnig efnilegur í knattspyrnu og
var orðinn u.þ.b. sextán ára þegar
hann setti knattspyrnuskóna upp
í hillu og einbeitti sér af körfu-
knattleiknum. Hann byrjaði hins
vegar að æfa pílukast um þrettán
ára, það var svipað hjá honum eins
og mömmu hans, Alex Máni vinur
hans sem einmitt er sonur Söndru
Daggar, dró hann á æfingu með
sér.
Körfuknattleikur og píla fara
mjög vel saman að mati Alexanders
en stundum þarf körfuknattleik-
urinn að víkja þegar þetta tvennt
skarast.
„Ef maður spáir í það, þá gilda
svipuð lögmál í körfuboltaskoti
og pílukasti, þetta svokallaða
„follow-through“ [láta kast- eða
skothöndina fylgja hreyfingunni
í gegn]. Hingað til hefur körfu-
boltinn verið númer eitt hjá mér
en ég f inn hvernig skiptingin
er að verða nær 50/50. Það eru
ýmis tækifæri fyrir mig til að ná
árangri í pílukasti og nú þegar hef
ég keppt erlendis og ég hef þá trú
á mér að ef ég held áfram að æfa
og æfi eins og þeir bestu, geti ég
náð langt í pílunni. Ég var valinn
í landslið fullorðinna 2023 og hef
verið þar síðan eftir að hafa verið
í landsliði unglinga U-18 síðan ég
var þrettán ára og nýbyrjaður að
æfa pílu. Meðal móta sem ég hef
unnið undanfarið er Reykjavík
International Games tvö ár í röð,
var stigahæsti karlinn á stiga-
lista IPS, sigraði Grindavík Open,
Sjally Pally og komst í undanúr-
slit í Euro tour í Riga. Einnig varð
ég annar af tveimur Íslendingum
sem skrifuðum söguna þar sein-
ustu helgi þegar við komumst í
úrslit á Iceland Open en það er í
fyrsta skipti sem Íslendingum tekst
það. Svo urðum við hjá Pílufélagi
Grindavíkur Íslandsmeistarar
félagsliða þriðja árið í röð. Pílu-
félag Grindavíkur vann allar
hugsanlegar liðakeppnir, bæði
einmenning og tvímenning, m.a.
skoruðum við karlaliðið 240 stig
í úrslitaleiknum sem er nokkuð
sérstakt myndi einhver segja í
ljósi póstnúmers bæjarins. Þetta
segir okkur hversu framarlega við
Grindvíkingar stöndum í pílunni
á landsvísu. Markmið mitt í píl-
unni nær lengra en verða Íslands-
meistari, ég ætla mér að komast í
atvinnumennsku og tel það raun-
hæft markmið. Við mamma erum
afskaplega stolt yfir því að vera
íþróttakarl og -kona Grindavíkur
árið 2024,“ sagði Alexander.