Leikskrár Þjóðleikhússins


Leikskrár Þjóðleikhússins - 27.05.1994, Qupperneq 2

Leikskrár Þjóðleikhússins - 27.05.1994, Qupperneq 2
Persónur Niflungahringsins Þegar Wagner saincli Niflungahringinn leitaöi hann m.a. fanga í fornum norrænum bókmennt- um sem varðveist hafa á Islandi. Nöfn persóna og atburðir Niflungahringsins eiga sér nána samsvörun í norrænni goðafræöi og hetjusögum og koma því flestum íslendingum kunnuglega fyrir sjónir þótt Wagner hafi sveigt atburðarás og eiginleika persóna að lögmálum eigin verks. I sýningu Listahátíðar og hér á eftir eru notaðar þær norrænar nafngiftir persóna, staða og hluta, sem nánasta hliðstæðu eiga í verki Wagners en nöfn Wagners sjálfs eru t sviga. Þær persónur sem ekki koma fram í sýningu Listahátíðar eru merktar með stjörnu (*). í heimi goða og vætta Æsir Óðinn (Wotan); Alfaðir, æðstur ása. Hann fær jötnana Fáfni og Regin til að reisa Valhöll og greiðir þeim fyrir með Rínargullinu, ægishjálmi (huliðshjálmi) og hringnum, sem hann rænir frá niflungnum Andvara og er þar með orðinn með- sekur í stuldi þess frá Rínardætrum. Hann óttast að hringurinn komist aftur í hendur Andvara sem þá muni ná heimsyfirráðum en fær sjálfur ekki að gert vegna samninga sinna við jötnana. Fx'igg (Fricka): Eiginkona Óðins og gyðja hjónabandsins. Freyja (Freia): Systir Friggjar (tg gyðja ástar og æsku; hún gætir eplanna, sem halda goðunum ungum. Freyr (Froh): Bróðir Friggjar, frjósemisguð. Þór (Donner): Bróðir Friggjar, orrustu- og þrumuguð. Persónur tengdar ásum Loki (Loge): Hinn slóttugi, ráðkæni og svikuli félagi Óðins. Hann er jafnframt elclurinn (iogi) sem æsir tömdu. Jöró (Erda): Frummóðirin og völvan, sem allt veit. Með Jörðu getur Óðinn valkyrjurnar níu. Valkyrjur (Walkuren): Dætur Óðins og Jarðar, níu að tölu. Þær sendir Óðinn til hverrar orrustu að kjósa feigð á menn og ráða sigri. Þær fram- kvæma vilja Óðins. Brynhildur (Briinnhilde): Valkyrja, dóttir Óðins og'Jarðar. Hún óhlýðnast boði föður síns um að láta Sigurð falla fyrir Hundingi og hann refsar henni með því að gera hana að mennskri konu. •Valþrúður (Waltraute): F.in valkyrjanna. Nornirnar þrjár: Dætur Jarðar með spádóms- gáfu. Þær spinna mönnum og goðum örlaga- þræði. Niflungar (dvergar) Andvari (Alberich): Drottnari í Niflheimí. Hann rænir gullinu frá Rínardætrum og smíðar úr því hringinn sem getur fært honum heimsyfirráð. Hann missir hringinn í hendur Óðni og leggur þá bölvun á hringinn að hann verði hverjum eiganda sínum að bana. Hann neytir allra bragða til áð ná honum aftur og beitir syni sínum, Högna, fyrir sig. *Mímir (Mime): Bróðir Andvara. Hann smíðar ægishjálminn (huliðshjálm) úr gullinu og síðar fóstrar hann Sigurð í skóginum í þeim tilgangi að láta hann ná hringnum og gullinu fyrir sig undan Fáfni. Jötnar Fáfnir (Fafner) og Reginn (Fasolt): Þeir byggja Valhöll fyrir .Óðin gegn því aö fá Freyju að launum, en semja svo um að fá gullið í staðinn ásamt ægishjálmi og hringnum. Fáfnir drepur Regin og leggst síðan í ormslíki á gullið. 2

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.