Leikskrár Þjóðleikhússins - 27.05.1994, Side 3
Aörar vættir
Rínardætur (Rheintöchter): Dísir, sem búa í
cljúpi Rínar og gæta gullsins.
Igðan (Waldvogc), skógarfugl): Fugl viö bæli
Fáfnis. Fuglinn varar Sigurð við svikum Mímis og
vísar honum á Brynhildi.
í mannheimi
Völsungar
Sigmundur (Siegmund) og Signý (Sieglinde):
Tvíburasystkini, börn Óðins og mennskrar konu.
Þau verða viðskila í æsku og sjást ekki fyrr en
Sigmund ber að garði í húsi Hundings, eigin-
manns Signýjar. Sigmundur fellur fyrir Hundingi,
en Signý hrekst til skógar þar sem hún fæðir
Sigurð, son þeirra Sigmundar.
Siguröur Fáfnisbani (Siegfried): Sonur Sig-
mundar og Signýjar, sem elst upp í skóginum hjá
Mími og kann ekki að hræðast. Hann drepur
drekann Fáfni og nær hringnum og gullinu, ríður
vafurlogann og vekur Brynhiidi. í höll Gjúkunga
er honum byrlaður óminnisdrykkur svo hann
gleymir Brynhildi, en hrífst af Guðrúnu.
Gjúkungar (Gibbichungen)
Gunnar (Giinther): Höfðingi ættflokks Gjúk-
unga í Rínardal. Kvænist Brynhildi.
Guðrún (Guthrune): Systir Gunnars, giftist Sig-
urði Fáfnisbana.
Högni (Hagen): ITálfbróðir Gunnars og Guð-
ri'inar, sonur Andvara. Hann leggur á ráðin um
að Guðrún og Gunnar fái Sigurðar og Bryn-
hildar, en sjálfur ætlar hann að ná hringnum, að
undirlagi föður síns.
Gjúkaþegnar (Vasallen)
Aörir menn
Hundingur (Hunding): Eiginmaður Signýjar,
fjandmaður Völsunga. Hann fellir Sigmund í ein-
vígi, en lætur sjálfur lífið fyrir hendi Óðins.
Brynhildur boðar Sigmundi feigð. Alriði úröðrumþœtti Valkyrjunnar. Teikning eftir Theodor Pixis, Muncben 1870.
3