Leikskrár Þjóðleikhússins - 27.05.1994, Side 5
í fyrstu er Óðinn hikancli við að ræna
gullinu, en þegar æsir finna fyrir þverrancli
kröftum eftir að gullepli Freyju eru horfin,
fellst hann á að halda með Loka í Niflheim.
3■ alridi. t Niflheimi
Óðinn og Loki koma til Niflheims og hitta
fyrir Mími, bróður Andvara. Mímir segir þeim
frá hringnum, sem Andvari hefur smíðað úr
gullinu. Sjálfur kveðst hann hafa smíðað
ægishjálm en misst í hendur Andvara.
Andvari birtist og Loki fær hann til að sýna
mátt huliðshjálmsins. Fyrst notar Andvari
hjálminn til að breyta sér í risavaxinn orm,
en Loki ginnir hann þá til að breyta sér í
agnarsmáan frosk, sem þeim félögum reynist
auðvelt aö fanga.
4. atriði. Við Valhöll
Andvari er fangi Óðins, sem neyðir hann til
að afhenda gullið og huliðshjálminn.
Óðinn slítur hringinn af Andvara en hann leggur
á að hringurinn verði hverjum höfuösbani er eigi.
Æsir fagna endurkomu Óðins og Loka, og Fáfnir
og Reginn snúa aftur með Freyju og krefjast
gullsins í hennar stað. Það semst svo um að
jötnarnir fái eins mikið gull og þarf til að hylja
Freyju. Æsir stafla upp gullinu þar til |rað þrýtur,
en þá sjá jötnar enn í hár hennar og krefjast
huliðshjálmsins til að hylja það. Regni er sárt um
að missa Freyju og kveðst enn sjá í augu henni.
Hann krefst hringsins til að hylja þau, en Óðinn
neitar. Völvan Jörð rís þá úr djúpinu og varar
Óðin við því að halda hringnum því það muni
leiöa til tortímingar goðanna.3 Viö það lætur
Óðinn jötnunum hringinn eftir, en Joeir taka
þegar að deila um skiptingu gullsins. Lýkur svo
viðskiptum þeirra að Fáfnir drepur Regin, en
heldur sjálfur á brott með gullið.
Óðinn hefur nú gert sér grein fyrir þeirri bölvun
sem hringnum fylgir og verður uggandi um
afleiöingar gerða sinna. Valhöll ljómar þá í skini
aftansólar. Óðinn dásamar glæsileika hennar og
traustan umbúnað4 og vongóður gengur hann
siðan fyrir ásum yfir Bifröst til hallarinnar. Eftir
stendur Loki, fullur fyrirlitningar á framferði
goðanna, en slæst svo í förina og kveinstafir
Rínardætra undirstrika þann órétt sem sjálfur
Alfaðir hefur Ireitt þær.
3 Weiche, Wotan! (Erda).
4 Abendlicht strahlt (Wotan).
Óðinn gengurjyrtr ásum
yfir Bifröst til Valballar.
Loki stendur á sviðinu.
Teikning eftir Tbeodor
Pixis, 1869.
5