Leikskrár Þjóðleikhússins


Leikskrár Þjóðleikhússins - 27.05.1994, Qupperneq 9

Leikskrár Þjóðleikhússins - 27.05.1994, Qupperneq 9
III. Úr Sigurði Fáfnisbana og Ragnarökum Sigurður Fáfnisbani (Siegfried) Þegar óperan hefst eru mtirg ár liðin. Ráða- gerð Óðins um að endurheimta hringinn virðist hafa runnið út í sandinn. Signý fæddi Sigurð, son þeirra Sigmundar, en andaðist litlu síðar. Drengurinn ólst upp r skóginum hjá niflungnum Mími, skammt frá Gnitaheiði, bæli Fáfnis. Hann er orðinn stór og sterkur og kann ekki að hræðast. 1. Þáttur. í Ijelli Mímis Mímir hefur í hyggju að láta Sigurð drepa orminn fyrir sig, en hiröa sjálfur gullið. Hann bisar við að smíða enn eitt sverð handa Sig- uröi, sem til þessa hefur jafn óðum brotið hvert það sverð sem Mímir hefur smíðað og svo fer einnig nú. Mímir sakar Sigurð um vanþækklæti fyrir að hafa annast hann frá blautu barnsbeini en Sigurður kann Mími litlar þakkir fyrir og kveðst hafa andstyggö á honum. Hann neyðir Mími til að skýra sér frá uppruna sínum og fær þá að heyra um komu Signýjar í skóginn og andlát hennar skömmu eftir að hún ól hann. Er Sigurður heyrir um sverðsbrotin, sem Signý haföi meðferðis, krefst hann þess að Mímir smíði úr þeint nýtt sverð, en heldur svo sjálfur til veiða. Óðinn birtist í líki förumanns (Wanderer). Hann býður Mími að leggja fyrir sig þrjár spurningar og leggur höfuðið að veði. Óðinn svarar öllum rétt og krefst þess að Mímir svari einnig þremur spurningum. I svörum þeirra eru rakin helstu atriði þess sem áður hefur gerst. Mími tekst að svara fyrstu tveim- ur þeirra, en fær ekki svarað því hver fái smiðað voldugt sverð úr brotum sverðsins Grams. Óðinn gefur honum svarið og segir að það geti aðeins sá sem ekki kunni að hræðast. Síðan hverfur Óðinn af vettvangi. Sigurður kemur af veiðum, en sverð Mímis er ekki tilbúiö. Mímir segir að sá einn, sem ekki kunni að hræðast, geti smíðað sverðið. Sigurður kveðst ekki kunna það en hafa hug á að læra það. Mímir greinir honum þá frá orminum Fáfni og Sigurður vill ólmur hitta hann, og ákveður að smíöa sjálfur nýtt sverð úr brotum Grams. Á meðan Sigurður smíðar sverðið13 bruggar Mímir eiturdrykk, sem hann hyggst gefa Sigurði eftir að hann hefur drepið orminn. 2. þáttur. Við bœli Fáfnis á Gnitaheiði Við bæli Fáfnis er Andvari á vappi. Óðin irer þar að og þeir rifja upp fyrri viðskipti sín. Andvari segir Óðni að hypja sig, en Óðinn kveðst aðeins vera kominn til að fylgjast með. Hann segir að Sigurður muni brátt koma og drepa drekann. Sér til gamans vekur Óöinn orminn og varar hann við komu Sigurðar, en Fáfnir skeytir því engu og fer aftur að sofa. Sigurður og Mímir birtast. Mímir reynir að vekja ugg í brjósti Sigurðar, en hann segist treysta á sverð sitt og því sé ekkert að óttast. Siguröur rekur Mími burt og er hann heyrir igðuna klaka, reynir hann að herma eftir hljóðum hennar, en tekst illa. Sigurði þykir dauflegt, lilæs í veiðihorn sitt og Fáfnir vaknar. Sigurður fagnar honum og gerir að gamni sínu við hann, en Fáfnir hótar að éta Sigurð. Sigurður ræðst þá að orminum með 13 Notung! neidliches Schwert! (Siegfried). 9

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.