Leikskrár Þjóðleikhússins - 05.01.1996, Síða 14

Leikskrár Þjóðleikhússins - 05.01.1996, Síða 14
Guðrún Þ. Stephensen (Doris) lauk prófi frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1954 en hóf strax að námi loknu að leika hjá Leikfélagi Revkjavíkur þar sem hún starfaði í tvo áratugi. Meðal minnisstæðra hlutverka hennar þar má nefna Madge í Tíminn og við, Marinu í Vanja frænda, Magdalenu í Húsi Vernörðu Alba, Marisku í Það er kominn gestur og tvær kostulegar konur í leikritum Jökuls Jakobssonar Dómínó og Kertalogi og er þá aðeins fátt eitt nefnt. Ógleymanleg verður frábær túlkun hennar á Bessí Burgess í Plógi og stjörnum. Síðustu tvo áratugina hefur Guðrún verið fastráðin við Þjóðleikhúsið og leikið á fimmta tug hlutverka og skipað sér í röð okkar fremstu leikkvenna. Meðal eftirminnilegra persóna, sem hún hefur leikið eru Kerlingin í Gullna hliðinu, Soffía frænka í Kardemommubænum, Sólveig í Lúkasi, Stella í Sólarferð, móðirin í Þeir riðu til sjávar, Lóna Ilessel í Máttarstólpum þjóðfélagsins, frú Arneus í íslandsklukkunni og Valborg í Valborg og bekkurinn. Á síðustu árum hefur Guðrún m.a. leikið Fjalladrottningu í Búkollu, Idu í Himneskt er að lifa, Þrúði í Elín, Helga, Guðríður; bangsamömmu í Dýrunum í Hálsaskógi og Tengdamóðurina í Blóðbrullaupi. Guðrún sat um árabil í þjóðleikhúsráði. Hún hefur leikið fjöldann allan af útvarps-sjónvarps-og kvikmyndahlutverkum, nú síðast Gunnlaugu í Benjamín dúfu. 12

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.