Leikskrár Þjóðleikhússins - 05.01.1996, Blaðsíða 20

Leikskrár Þjóðleikhússins - 05.01.1996, Blaðsíða 20
Þóra Friðriksdóttir (Mildred) hefur starfað hér við Þjóðleikhúsið í þrjá áratugi og leikið um 80 hlutverk. Ilún nam við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og Gentral School of Speech. Um skeið lék hún með Leikfélagi Reykjavíkur, m.a. í Tíminn og við, Tannhvassri tengdamömmu og Túskildingsóperunni. Þóra hefur frá fyrstu tíð verið jafnvíg á dramatísk hlutverk og gaman- hlutverk. Meðal hlutverka hennar í Þjóðleik- húsinu má nefna aðalhlutverkið í Fædd í gær, Súsönnu í Litla kofanum, Pálinu Ægis í Delerium Búbonis, Ljónu Ólfer í Strompleiknum, móður- ina í Hungsilmi, Rauðmýrarmaddömuna í Sjálf- stæðu fólki, Blanehe Dubois í Sporvagninum Girnd, Kötu í Liðinni tíð, frú Stokkmann í Þjóðníðingi, Nínu í Sólarferð, Júllu í Týndu teskeiðinni, Matthildi í Syni skóarans og Mary Tyrone í Dagleiðinni löngu. Af hlutverkum henn- ar síðustu árin má nefna Daladrottningu í Búkollu, Goru íHimneskt er að lifa, Frú Pearce í My FairLady og Ókunnu konuna í Sannar sögur af sálarlífi svstra. Á liðnu ári lék Þóra í Herbergi Veróniku í Kaffileikhúsinu og hér í Þjóðleik- húsinu leikur hún um þessar mundir hlutverk 18 Báru Fengel í Þreki og tárum. Þóra átti fjörutíu ára leikafmæli á liðnu ári.

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.