Leikskrár Þjóðleikhússins - 05.01.1996, Blaðsíða 25
Andrés Sigurvinsson, leikstjóri,
brautskráðist frá Leiklistarskóla íslands 1978 og sótti
síðar námskeið í leikstjórn hjá Ritva Siikala og kynnti
sér leikstjórn í Bandaríkjunum og á ftalíu. Andrés
hefur víða starfað, bæði sem leikari og leikstjóri, tók
meðal annars þátt í að endurreisa Stúdentaleikhúsið
1982-1983 og var framkvæmdastjóri þess. Starfsemin
hlaut menningarverðlaun D.V. ‘83. Hann stofnaði Pé-
leikhópinn 1987 og leikstýrði á hans vegum Heim-
komunni og Húsverðinum eftir Harold Pinter, / tilefni
dagsins eftir Þorvald Þorsteinsson (Óháða listahátíðin
‘92) og Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen (Lista-
hátíð Hafnarfjarðar ‘93). Andrés liefur leikið hjá Þjóð-
leikhúsinu, Leikfélagi Akureyrar, Alþýðuleikhúsinu og
Stúdentaleikhúsinu, Útvarpsleikhúsinu og í sjónvarpi.
Síðustu 10 ár hefur hann eingöngu starfað sem leik-
stjóri. Hann hefur stjórnað leiksýningum hjá
Stúdentaleikhúsinu, Leikfélagi Akureyrar, Pé-leik-
hópnum, leikstýrt fjölda verka hjá Útvarpsleikhúsinu
og einnig hjá sjónvarpinu og fjöldamörgum skóla- og
áhugaleikfélögum. Ilér í Þjóðleikhúsinu hefur hann
sett upp Gertrud Stein Gertrud Stein Gertrud Stein
eftir Marty Martin, Lítið fjölskyldujyrirtæki eftir Alan
Ayckbourn, Ef ég væri þú eftir Þorvarð Ilelgason,
Ástarbréf eftir A.R. Gurney, Seið skugganna eftir Lars
Norén og Snædrottninguna eftir Evgení Schwartz. Var
sú sýning tilnefnd til Menningarverðlauna D.V. í leiklist
‘95. Einnig stjórnaði hann ljóðadagskránni Á meðan
blómin anga í tilefni 100 ára afmælis Davíðs
Stefánssonar. Andrés var fastráðinn leikstjóri hjá
Þjóðleikhúsinu síðastliðin tvö leikár. Hann var for-
maður Félags leikstjóra 1991-1992, og sat í stjórn
B.Í.L. á sama tíma. Næstu verkefni hans eru Animal
farm (Dýrabærinn) hjá Leikfélagi M.II. og Nanna syst-
ir eftir þá Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson hjá
Leiltfélagi Akureyrar.
Elísabet Snorradóttir, þýðandi,
lauk magisterprófi í enskum og amerískum bókmennt-
um frá University of East Anglia í Bretlandi. Ilún hefur
verið afkastamikill þýðandi m.a. fyrir leiksvið og
Útvarpsleikhúsið. Meðal verka hennar má nefna Hús-
vörðinn og Heimkomuna eftir Ilarold Pinter fyrir Pé-
leikhópinn og fyrir Þjóðleikhúsið þýddi hún Gertrud
Stein Gertrud Stein Gertrud Stein eftir Marty Martin.
Einnig vann hún leikgerðina að Snædrottningunni
eftir Evgeni Schwartz ásamt Andrési Sigurvinssyni.