Leikskrár Þjóðleikhússins - 05.01.1996, Qupperneq 30
Leigjandinn
eftir Simon Burke
Glænýtt, breskt verðlaunaleikrit. Sögusviðið er lítil borg í
Bretlandi. Ung kona með vafasama fortíð kemur til borg-
arinnar í leit að húsnæði og tekur á leigu subbulegt herbergi.
Smám saman takast kynni með henni og húseigandanum en
fortíðin eltir hana miskunnarlaust uppi.
Spennandi atburðarrás sem kemur sífellt á óvart.
Þýðing: HaUgrímur H. Helgason
Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason
Leikmynd og búningar: Vignir Jóhannsson
Hljóðmynd: Georg Magnússon
Leikstjórn: Hallmar Sigurðsson
Leiltendur:
Tinna Gunnlaugsdóttir, Örn Árnason, Randver Þorláksson,
Pálmi Gestsson, Stefán Jónsson og Anna Kristín
Arngrímsdóttir.
Frumsýnt um miðjan janúar
Tröllakirkja
eftir Ólaf Gunnarsson
oý Þórunni Sigurðardóttur
Skáldsagan Tröllakirkja var tilnefnd til íslensku bókmennta-
verðlaunanna 1992 og þótti tímamótaverk. Sagan gerist í
Reykjavík á árunum eftir stríð, og segir frá íslenskum
athafnamanni sem dreymir um að byggja voldugt stórhýsi í
Reykjavík. Skýjaborgirnar hrynja til grunna þegar ofbeldis-
verk er framið í fjölskyldunni.
Átakanlegt verk um hefnd og fyrirgefningu. Er fall sérhvers
manns falið í draumi hans?
Tónlist: Hjálmar H. Ragnarsson
Lýsing: Elvar Bjarnason
Leikmynd: Gretar Reynisson
Búningar: Helga I. Stefánsdóttir
Leikstjórn: Þórhallur Sigurðsson
Leikendur:
Arnar Jónsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Eyjólfur Kári
Friðþjófsson, Jóhann Sigurðarson, Guðrún S. Gísladóttir,
Margrét Vilhjálmsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson,
Ililmar Jónsson, Ilelga Bachmann, Róbert Arnfinnsson,
Bryndís Pétursdóttir og Sveinn Þ. Geirsson.
Frumsýnt í marsbyrjun