Landsmál - sep. 1947, Blaðsíða 8

Landsmál - sep. 1947, Blaðsíða 8
TÍMARIT UM LANDSMÁL stóls. En þeir, sem áttu féð voru yfirleitt hræddir við þann grundvöll, sem nýsköpunin var byggð á. Þess vegna varð með litlum undirbúningi að gera ráðstafanir til stórkostlegra lánveitinga, því á annan hátt var ekki unnt að selja gjaldeyrinn og ná tækjunum. Þessar lán- * veitingar hafa valdið stóraukinni verðþenslu, og þótt ekkert lánsfé hefði þurft að nota, þá gat ekki hjá því farið, að það hlaut að valda óhemju verðþenslu eitt út af fyrir sig, að verja 300 millj. kr. á tveimur árum til innflutnings á skipum, vélum og tækjum, þótt til ný- byggingar væri. Stofnlánadeild sjávarútvegsins var mynduð með því, að Alþingi skyldaði Landsbankann að lána 100 millj. kr. af erlendum innstæðum sínum, gegn 2'/2% vöxtum. Þessi hluti stofnlánadeildarinnar skyldi standa undir þeim hluta lánveitinganna, sem útheimta erlendan gjald- eyri, og nefnd eru A-lán. Fjár til B-lána, eða þess hluta, sem erlendan gjaldeyri þarf ekki til (vinnulaun o. fl.) skyldi aflað með verðbréfasölu innanlands. Sala þeirra vaxtabréfa gekk mjög báglega. Það er nú kunnugt að Nýbyggingarráð hefir mælt með 44 millj. kr. hærri A- lánveitingum en Stofnlánadeildin hefir til umráða. Ekki er kunnugt að ráðið hafi gert sér grein fyrir, hvernig átti að afla fjár til þessara lánveitinga, fram yfir það sem sjóðurinn hafði til umráða. Þetta sýnir að litlu leyti, hversu óskiljanlegt og óverj- andi fyrirhyggjuleysi hefir verið ráðandi í framkvæmd nýsköpunarinnar. En það sýnir líka þá geipilegu hættu sem fylgir því að láta opinbera nefnd gerast forsjón fyrir alla landsmenn á sviði atvinnumálanna og eiga að skipa málunum eftir sínu höfði, án þess að hafa nokkura . ábyrgð eða áhættu. Þó er enn ónefnd ein hlið þessa máls, sem enginn gaumur var gefinn í öllu nýsköpunarglamr- inu. Hún er sú, að þessar framkvæmdir þarfnast beint og óbeint innflutnings í stórum stíl til reksturs og við- halds, ef þær eiga að koma að gagni. Um það er fyrst 8

x

Landsmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landsmál
https://timarit.is/publication/2071

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.