Landsmál - sep. 1947, Blaðsíða 23

Landsmál - sep. 1947, Blaðsíða 23
Barátta gegn dýrtíð og hrunl BJÖRN ÓLAFSSON hefir í sex ár varað við afleið- ingum verðbólgunnar, sérstaklega á árunum 1943—’44, meðan hann var fjármálaráðherra. Hér birtast nokkrir stuttir kaflar úr ritgerðum og ræðum eftir hann, sem birzt hafa á prenti, þar sem hann varar við þeim þreng- ingum, er þjóðin hljóti að komast í ef dýrtíðinni eru ekki skorður settar. Ástandið eins og það er nú orðið og lýst er í ritgerð hans hér að framan, er hverjum manni ærið áhyggju- efni. En þegar svo er komið, er heldur ekki úr vegi að rifja upp lítilsháttar hvað þeir menn hafa sagt, sem ætíð hafa varað við hættunni er af dýrtíðinni hlýtur að leiða og öllum er nú að verða ljós. Ritað í Vísi 7. jan. 1941. „-------Sterk bein þarf til að þola góða daga. Það r hlýtur að verða prófsteinn á atgjörfi landsmanna til að ráða málum sínum og byggja upp fullvalda þjóðfélag, hvernig þeim tekst að vefa sér örlög úr þeim þráðum sem forsjónin hefur nú um stund fengið þeim í hendur. I Ef manndómur þjóðarinnar er nógu mikill til að halda ró sinni og dómgreind um þessar mundir, þá verður henni til giftu og gengis í framtíðinni það fé sem hún fær nú fyrir starf sitt og framleiðslu. En þoli hún ekki með- lætið þá skapast hér óheilbrigð þensla og óvarlegur rekst- ur er valdið getur hruni og öngþveiti í þjóðfélaginu. Aðal 23

x

Landsmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landsmál
https://timarit.is/publication/2071

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.