Vonin - 28.08.2025, Qupperneq 8
kynning
Vonin - Féhirðir YES QUEENS!!! You made it!
Velkomin í Verzlunarskólann! En hvað gerir
þessi drolla sem er féhirðir? Féhirðir sér um
fjárhag Nemendafélagsins okkar og er
basically gjaldkeri NFVÍ. Féhirðir ber því mikla
ábyrgð, því hann deilir pening út til nefnda svo
þær geti sinnt sínum störfum. Það er æðislegt
að geta verið féhirðir, því þú þarft að vinna jafnt
með öllum og kynnist svo mikið af nýju fólki. Þú
þarft líka að tala við fyrirtæki og er þetta
ótrúlega góð reynsla fyrir atvinnulífið. Féhirðir
sendir og bókar alla reikninga fyrir styrki og
greiðslur sem NFVÍ þarf að greiða. Það er
mjög mikilvægt að hafa gott skipulag og sjá til
þess að peningurinn komi sér til skila. Það er
mikilvægt að vera skipulagður og að hafa góð
samskipti við alla í skólanum. Og það sem gerir
þetta skemmtilegast er að sjá alla vinnuna
sem nefndir leggja í sitt starf koma sér til skila,
t.d með blöðunum, böllunum, leikritum, lögum
og fleira. Verið bara þið sjálf og you will eat
verzló up!
ERON
Gott að sjá ykkur busameistarar og verið velkomin í Verzló! Ég veit
nákvæmlega hvernig ykkur líður, þið eruð ekkert eðlilega spennt að
kynnast nýju fólki, eruði í smá sjokki yfir því hvað þetta er allt
eitthvað stórt, og vitið eiginlega ekkert hvað er að gerast. En hahaha
þið hafið ratað á rétta blaðsíðu, við erum Skemmtó og við erum hér
til að taka vel á móti ykkur. Við höfum verið á fullu í sumar að
heimsækja nýnema og flippast aðeins í þeim og hlökkum ekkert
eðlilega mikið til að sýna ykkur vakningamyndbandið í
Nýnemavikunni (önnur vika skólaársins). Þar er sko allt að gerast,
party á marms, skreyttar stofur, stigaleikir og bara allt það besta
sem Verzló hefur uppá að bjóða. Vikan endar með stæl á
nýnemaferð og illuðu balli. Næst á dagskrá er
Skemmtunarskólablaðið (skemmtilegasta meme tískublað Verzló)
sem við gefum út með V91 í VÍ-emer vikunni. Eftir þetta bíður það
allra besta... VÆLIÐ, stærsti og flottasti viðburður Verzló sem haldinn
er í Eldborgarsal Hörpu. Allir klæða sig í sitt fínasta púss, fara út að
borða með bekknum sínum og skemmta sér rosalega á
söngvakeppni sem inniheldur skemmtiatriði, artista og færustu
söngvara Verzló. Eftir alla þessa gleðivímu brýst ástin að sjálfsögðu
fram, en það er í Valentínusarvikunni sem við höldum með Listó um
miðjan febrúar. Já þar getur þú, elsku nýnemi, loks fundið ástina þar
sem marmarinn er málaður rauður af ástarsendingum og rómantík.
Ásamt öllu þessu er okkar helsta markmið að tryggja að fólk sé alltaf
í góðum gír og við tryggjum það með skemmtilegum hittingum yfir
skólaárið ;) Við í Skemmtó hlökkum til að sjá ykkur og getum ekki
beðið eftir því að fá að kynnast ykkur betur!
DAGUR
EVA-KÁRI HLÍÐBERG-ÍSOLD-TINDUR-PÉTUR-GUÐRÚN-KÁRI HJALTA-VALUR