Alþýðublaðið - 18.03.1926, Page 1
Gefið út af Alþýðuflokknum
1926.
Fimtudaginn 18. marz.
66. tölublað.
Sáttatilrann.
Síðdegis í gær boðaði sátta-
semjari ríkisins samninganefnd
Sambandsstjórnarinnar á fund
sinn kl. 9,30 e. h., en í þeirri
nefnd eru: Jón Baldvinsson
(sambandsforseti), Björn Blöndal
Jónsson og Pétur G. Guðmunds-
son (sambandsritari).
Á sama tíma voru komnir til
fundar við sáttasemjara þessir út-
gerðarmenn: Magnús Th. S. Blön-
dahl, Magnús Magnússon, Páll
ólafsson og Þorgeir Pálsson.
Hið fyrsta, sem gerðist, þegar
fundum þeirra bar saman, var
það, að sambandsfulltrúunum var
afhent bréf það frá „Félagi ísl.
botnvörpuskipaeigenda“, sem birt
er ú öðrurn stað hér í blaðinu.
Sáttasemjari gekk á .milli aðilja
og leitaði um sættir. Er þar
skemst frá að segja, að fulltrúar
útgerðarmanna héldu fram fyrri
kröfum sínum óbreyttum: 80 aur.
kaup um klst. handa verkakonum
og aðrar vinnugreiðslur (ákvæðis-
vinna) í álíka óhagstæðum hlut-
föllum.
Frá þessu boði sögðust full-
trúar útgerðarmanna ekki víkja
né til slaka á þeim á nokkurn
hátt.
Fulltrúar Alþýðusambandsins
héldu hks vegar fram sem kröf-
um skiiyrðum þeim til samkomu-
lags, sem verkakonur höfðu áður
auglýst, og fieiri kröfum, sem þær
höfðu gert til útgerðarmanna,
rneðan þær áttu í samningum við
þá. Um þessar kröfur vildu full-
trúar Alþýðusambandsins ræða.
En þar eð fulltrúar útgerðar-
manna börðu blákalt fram ofan-
rituð skiiyrði sín sem úrslitaskil-
yrði og sýndu með því, að peir
vildu ekki semja, varð þessi sátta-
tilraun árangurslaus.
Verkbann.
Sáttasemjari ríkisins afhenti
1 samningamönnum Alþýðusam-
bandsins svo hljóðandi bréf kl.
8,30 í gærkveldi:
Taisimi 616.
FélagíslenskraBotnvörpuskipaeigenda
i Assoclíiíion of Icelandic Sf caniTra wler O vnors
Reykjavík 17. mars 1926.
(Iceland)
Vegna samþykktar Alþýðusam-
bands Islands, samanber tilkynn-
ingu til félags vors dags. 15. þ.
m. um að stöðva uppskipun úr
togurunum, hefir félag vort á
fundi í dag samþykkt að stöðva
frá kl. 6 e. h. á morgun alla
hafnarvinnu hér í Reykjavík við
upp og útskipun á kolum þeirn
og salti, sem félagsmenn ráða yf-
ir, nema því að eins, að oss hafi
'innan þess tírna borist tilkynning
frá yður um að lokið sé tilraun-
um yðar til að stöðva vinnu við
togarana.
Þetta tilkynnist yður hérmeð.
Virðingarfyllst
Fyrir.hönd Félags íslenskra
Botnvörpuskipaeigenda
Páll Ólafsson.
Til
stjörnar Alþýðusambands íslands.
Samúðaryerkfall
I Hafnarfipði.
Þegar fréttist um, að Grímur
Kamban væri væntanlegur til
Hafnarfjarðar í gær, gerði sam-
;bandsstjórnin verkamannafélögun-
jlum/ í Hafnarfirði aðvart og óskaði
þess, að þau gerðu samúðarvefk-
fall, svo að fiski þessum, sem
;reynt var að koma unclan verk-
fallinu, yrði ekki skipað upp þar.
iBrugðust félögin vel við og létu
;þegar í stað auglýsa í Hafnar-
firði, að bönnuð væri afgreiðsla
Atogurum, sem flýðu frá Reykja-
ivík til Hafnarfjarðar undan verk-
failinut
Ingólfur Flygenring lýsti bréf-
ilega yfir því við stjórn verka-
mannafélagsins, að „Alliance“
hefði samið við sig um uppskip-
un og verkun úr togurum þess
félags, en hve mikið af fiski yrði
(lutt í land í Hafnarfirði og hve
mikið verkað, færi eftir geðþótta
framkvæmdarst jóra „ All iance“,
svo að augsýnilega var hér að
eins um undanbrögð að ræða.
Um kl. 5 e. li. í gær kom
Grímur Kamban til Hafnarfjarðar
með 60 tonn fiskjar. Reyndi
Edinborg að láta skipa upp úr
honurn, en að eins örfáir utan-
félagsmenn og sveitamenn fengust
til vinnu, en hættu, er þeir sáu,
að slíkt atferli yrði ekki þolað
af hafnfirzkum verkaiýð, sem
eins og „Dagsbrún“ styður verlca-
konurnar í kaupdeilunni.
Togarinn Baldur átti einnig að
fara til Hafnarfjarðar kl. 6 í gær-
kveldi í sömu erindum, en mun
enn ófarinn vegna fréttanna um
stöðvun Gríms Kambans.
Samtök verkalýðsins hafa sýnt
sig.
Færeyski togarinn Grímur Kam-
ban, sem nú er gerður út frá
Reykjavík og „Alliance" sér um
um afgreiðslu og verkun fyrir,
var vegna samúðarverkfalls
„Dagsbrúnar" sendur til Hafnar-
fjarðaf. Tók verzlunin Edinborg
að sér að sjá um uppskipun fiskj-
arins.
Rangt
er það, sem „Mgbl." segir, að full-
trúar Alþýðusambandsins hafi leyft,
að kol væru látin i Grlm Kamban, ef
hann færi til Færeyja. Þetta er vitan-
lega alveg rangt.
75 ára
er í dag Katrín Eyjólfsdóttir, til
heimilis á Vesturgötu 59.