Mosfellsblaðið - 01.05.1999, Qupperneq 10
Handverksfólk úr Mosfellsbœ, glaðbeittur og skemmtilegur hópur, einhverja vantar þó á mynd-
ina.
Handverkssýning
í Laugardalshöll
Handverkssýning var haldin í Laugardalshöll dagana 22- 25. apnl s.l. Voru 16
aðilar frá Mosfellsbæ með ákveðið svæði á sýningunni, kom þetta afar vel út og
margir seldu vel og all-
ir hlutu góða kynningu.
Mosfellsbær styrkti
verkefnið og var fólkið
afar þakklátt fyrir það.
Ennfremur var ístex h/f
í Mosfellsbæ með bás á
sýningunni með sínar
frábæru ullarvörur.
Guðjón Kristinsson hjá
Istex í sínum bás.
I\ýll skfp, gott hal
Magnús Þorvaldsson, skipstjóri
Dvergholti 6, er að koma með
nýlegt skip frá Noregi í stað gamla
Sunnubergsins, mikið aflaskip sem
hann hefur verið með í fjölda ára.
Nýja Sunnubergið er í eigu Tanga h/f
á Vopnafirði, er 1250 tonn, vel endur-
nýjað og ætlað til togveiða á kolmunna
og nótaveiða á síld og loðnu. - Á heim-
leið frá Noregi var trollinu kastað í
fyrsta sinn og þá sunnan við Færeyjar,
í því voru 270 tonn af kolmunna, þeg-
ar þessi grein er skrifuð.
Góð byrjun það hjá þessum þekkta
aflaskipstjóra.
Iilwanis afliendlr
blóðrannsóknatæki
Kiwanisklúbburinn Geysir í Mosfellsbæ afhenti nýlega Heilsugæslu Mosfells-
umdæmis að gjöf mjög fullkomið blóðrannsóknatæki af gerðinni NA/K 320
frá IONETICS, ásamt
fylgihlutum. - Tækið
gefur þá möguleika
að fullvinna mjög
margar blóðrann-
sóknir á staðnum, fá
þar niðurstöður strax
og og geta brugðist
við þeim á viðeigandi
máta. Myndin sýnir
Guðmund Benedikts-
son f.h. Kiwanis af-
henda Þengli Odds-
syni, yfirlækni
Heilsugæslunnar hið nýja tæki í viðurvist Ingvars Ingvarssonar, heilsugæslulækn-
is og Kiwanismanna.
Lenln í 3. sæli
Suðumesjarallið, fyrsta rall sumars-
ins var haldið laugardaginn 15. maí s.l.
Hin hefðbundna leið er Kleifarvatn -
Isólfsskáli - Reykjanes. Mosfelling-
amir og „kjúklingamir“ Rögnvaldur
Pálmason og Sigurður Bragi Guð-
mundsson lentu núna í 3. sæti á sínum
Rover Metro vegna smábilana, en í 2.
sæti vom Páll Halldór og Jóhannes og
því 1. feðgamir Rúnar og Jón Ragnars-
son.
Rögnvaldur og Sigurður Bragi unnu
Suðurnesjarallið í fyrra og halda
ótrauðir áfram í sumar
Stefnur, eiginkonur manna í Karlakómum Stefni í Mosfellsbæ, vom glað-
beittar með glæsilegan kökubasar í Kjama í lok mars til styrktar kómum.
Ekki er að undra þó mikið tónlistar- og kóralíf þnfist vel hér í Mosfellsbæ,
þegar svona samhent fólk tekur höndum saman.
Mosfcllsblaðiö