Alþýðublaðið - 16.07.1926, Qupperneq 5
algleymingi. Ekki í þetta sinn
heldur tókst Stresemann aö koma
Þýzkalandi inn fyrir hin helgu
vébönd. Pólland með Frakka að
bakh-jarli og Brazilía með Musso-
lini sem leikþul sáu fyrir því.
Er nú ekki annað sýnna en að
þar meö sé Locarno-samþyktin
gengin veg allrar veraldar, þrátt
fyrir allar hátíðlegar yfirlýsingar
um, að alt sé óbreytt. Víst er um
það, að skrípaleikurinn í Genf
hefir aukið á óvissuna og veikt
trúna á bandalagið hjá þeirn, sem
enn kunna að hafa átt það hnoss
í fórum sínum. „Andinn frá Lo-
carno“ á sér vart uppreisnar von
úr þessu, enda vafamál, hvort
skaðinn muni geta talist óbætan-
legur. (Frh.)
14. 6. ’26.
—rn—.
Kvikmyndaleyfamálið
í bæjarstjörninni.
Á bæjarstiórnarfundi í gær bar
Haraldur Guðmundsson fram svo
felda tillögu í kvikmyndaleyfa-
málinu:
»Bæjarstjórn ályktar, að öll
kvikmyndahús í bænum skuli rekin
fyrir reikning bæjarsjöðs svo fljótt,
sem þvi verður við komið vegna
leyfa þeirra, sem þegar hafa verið
veitt til reksturs kvikmyndahúsa
og felur bæjarlaganefnd að leita
samkomulags við núverandi leyfis-
hafa um, að þeir láti leyfin af
hendi. Jafnframt felur bæjarstjórnin
fjárhagsnefnd að gera áætlun um
kostnað við stofnun og starfrækslu
nýs kvikmyndahúss.«
M. a. benti Haraldur á, að ekki
hefði enn verið lækkaður aðgang-
ur að kvikmyndasýningum i þeim
tveimur kvikmyndahúsum, sem nú
hafa einkarekstur kvikmyndasýn-
inga hér í bænum. Eftir miklar
umræður var tillaga Haralds feld
með 8 atkv. gegn 6, Greiddu jafn-
aðarmennirnir atkvæði með henni,
en borgarstjóri og ihaldsflokkur
hans á móti (Guðm. Ás., Hall. Ben.,
Jón Ás., Jón Ól., Jónatan, Pétur
Halld. og Pétur Magnússon), nema
Þ. Sv. var farinn af fundi, og Björn
var fjarverandi.
Næst kom til atkvæða svo feld
tillaga frá Jóni Ásbjörnssyni:
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
»Bæjarstjórnin ályktar að fela
fjárhagsnefnd að rannsaka kostnað
við stofnun og rekstur vandaðs
kvikmyndahúss og önnur skilyrði
fyrir þvi með það fyrir augum að
taka kvikmyndasýningar i hendur
bæjarins, ef tiltækilegt þykir, og
vill því ekki að svo stöddu veita
einstökum mönnum leyfi til nýs
kvikmyndareksturs,«
Það kom greinilega í Ijós í um-
ræðunum, að þetta var svæfingar-
tillaga til þess eins að draga mál-
ið. á langinn. Hefir það og við
reynslu að styðjast, að meiri hluti
bæjarstjórnarinnar vill draga mál-
ið endalaust, því að því lík álykt'-
un, sem tillaga J. Ás. fór fram
á, var gerð í fyrra í bæjarstjórn-
inni, en síðan hefir hún ekkert
gert í málinu. Jafnaðarmennirnir
greiddu því atkvæði gegn tillögu
þessari og auk þeirra Guðm. Ás.,
Hall. Ben., Jón Ól. og Pétur
Halld., en með henni: K. Z., J.
Ás., 'Jónatan og P. Magn. Féll
liún þannig með 10 atkv. gegn A-
Þá var borin upp tillaga frá
IJéðni Valdimarssyni og St. Jóh
Stefánssyni.
»Lárusi Jóhannessyni sé veitt
leyfi til kvikmyndareksturs hér í
bæ með sömu skilyrðum og Pet-
ersen og þeim aukaskilyrðum, sem
sett kunna að verða í endanlegt
leyfisbréf til h.f. Nýja Biós.«
Sú tillaga var feld með 8 atkv.
(borgarstjóraliðsins) gegn 6 (jafn-
aðarmannanna). — Loks var sanr-
þykt með 8 atkvæöum (borgar-
stjóraliðsins) gegn 6 atkv. (jafn-
aðannannanna) tillaga frá meiri
hluta bæjarlaganefndar, þar sem
ákveðið var að veita engin ný
kvikmyndaleyfi fyrst um sinn.
Voru nafnaköll höfð við allar
þessar atkvæðagreiðslur. »
Þannig hefir meiri hluti bæjar-
stjórnarinnar framlengt tvíokun
J)á á kvikmyndaleyfum, sem hér
er, en felt bæði að bæjarfélagið
taki rekstuf kvikmyndahúsa í sín-
ar hendur og að leyfa samkeppni
annara manna við þá kvikmynda-
sýnendur, sem fyrir eru.
Um daginn og veginn.
Veðrið.
Hiti 14—10 stig. Víðast hæg sunn-
anátt. Talsvert regn hér sunnan-
lands. Loítvægislægð fyrir vestan
5
land. Otlit: Suðvestan- og sunnan-
átt. Orkoma víða, einkum sunnan-
lands. 1 nðtt nokkur úrkoma á
Suður- og Vestur-landi. Þoka við
Suðurland.
„The Iceland Year-Book“
heitir bók á ensku eftir Snæbjörn
Jónsson þýðara, nýkomin út á kostn-
að Helga Zoéga í samráði við ríkis-
stjórnina. í bók þessari er margvís-
legur fróðleikur um Island, náttúru
þess, þjóð, menningu og hag. Ot-
gáfan er mjög vönduð og prýdd
fjölda góðra mynda. Ritið er prent-
jað í Gutenberg.
Qengi erlendra mynta í dag:
Sterlingspund..........kr. 22,15
100 kr. danskar .... — 120,77
100 kr. sænskar .... — 122,22
100 kr. norskar . . . . —■ 100,00
Dollar.................— 4,56l/2
100 frankar franskir. . . — 11,65
100 gyllini hollenzk . . — 183,46
100 gullmörk þýzk. . . — 108,58
Eiðaskólinn.
Skýrsla um hann s. 1. vetur er
nýlega komin. Nemendur voru alls
33, þar af 16 í efri deildinni. Bind-
indisfélag var við skólann, og hefir
svo verið áður. 1 því eru bæði kenn-
ararnir og nemendurnir. Tillög þess
voru lögð í sjóð, sem verja á til
væntanlegrar barnauppeldisstofnun-
ar á Austurlandi. — Allur kostnaður
við fæði og þjónustu um skólaárið
var að meðaltali kr. 517,12 fyrir
pilta, en kr. 413,70 fyrir stúlkur í
liátt á 7. mánuð. „Heilsufar var hið
bezta, enda tókst að verjast misling-
um“, sem gengu sums staðar ú Aust-
urlandi. — I vor voru búnaðaræf-
ingar, er tveir námsmenn tóku þátt
i, og vefnaðarnámskeið, er fjórar
stúlkur sóttu.
„Hugur og tunga“
heitir nýútkomið málfræðirit eflir
dr. Aiexander Jóhannesson. Eru í
þvi rannsökuð tvö efni íslenzkrar
málvísi, er hingað til hefir lítið
verið sint, hljóðgervingar (eftir-
hermur náttúruhljóða, orð, er lýsa
með hljóði sínu athöfnum og við-
burðum, og kendarorð, er ósjálfrátt
falla af vörum við geðshræringu)
og uímnýndun eða alþýðuskýringar
ókunnugra eða útlendra orða. Bókin
er rituð af miklum lærdómi, en
niðurstaðan um sumt er vafasöm,
eins og gengur um þess háttar rann-
sóknir.
Hjálparstöð hjúkrunarfélagsins
„Líknar“ er opin:
Mánudaga ....... kl. 11 — 12 f. h
Þriðjudaga...........— 5 — 6 e. -
Miðvikudaga........— 3— 4 - -
Föstudaga............— 5-6--
Laugardaga...........— 3-4--
Næturlæknir
er í nótt Jón Hj. Sigurðsson,
Laugavegi 40, sími 179.