Alþýðublaðið - 17.07.1926, Side 4

Alþýðublaðið - 17.07.1926, Side 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 4 höll og fareysi um alian hinn mentaða heim blasa við auganu frásagnir og stórmerki um lífið í alls konar myndum listarinnar ungu, — frásagnir og lofsöngur um að vera til, — um að skreyta á einhvern undursamlegan hátt — helzt fagurt — og heilnæmt og bjart. Petta er lis'tin unga — um alian héim, um víða veröld, -— úti um móa og — uppi í Listvinci- félagshúsi. Listvinafélag Islands er einn laukinn í menningarlífi okkar, eins og vera ber, og góður vottur sam- hygðar listinni ungu, — en að- staða félagsins er dálítið undar- leg, — líkt og ný tegund gróðurs í óreyndum jarðvegi. Vöxtur List- vinafélags Islands getur að' eins orðið góður, — ef Jistamennirnir sjálfir eru listvinir, ef þeir unna hugsjón þeirri, sem listin byggist á, — að prýða, — að skrevta. Islenzkir Iistamenn hafa nú orð- ið samtaka um sýningu í List- vinafélagshúsinu, þó á annan hátt sé en í listvinafélagshúsum er- lendra stórborga, og getur það vel verið, að mannfæð okkar sé þess valdandi, — en þá má með sanni segja, að stakkur sé snið- inn eftir vexti. Sýni.ngin í Listvinafélagshúsinu er að öllu jöfnu ekki verri en vorsýningar í stórborgum ná- grannaþjóðanna, — og þó gat bessi sýning okkar orðið enn meiri og fjölskrúðugri, ef þátt- takan hefði orðið meiri, og er það aðalgallinn, að húsið er helm- ingi of lítið til þess að geta jboð- ið höfuðstaðarbúum okkar inn á jafngóða lístasýningu og tíðkast í míHjónaborgunum. — En þessir ágaliar eru auðvitað af þessu sama, — að listin íslenzka er ung; — hún á menn sína á víð og dréif úti um alla heima, Gunn- laug í París, Jón Stefánsson í Höfn, Nínu í Ameríku og Kristínu við húsmöðurstörf i Reykjavík, — Einar Jónsson í Skjaldborg og Guðjón í önnum víó byggingar rttnsins. Listin unga verður Islands háill. Hún mun yngjast með aldrinum eins og góðu börnin, — og hún mun þroskast og dafna á hinum mörgu krókaleiðum milli listvina og sleggjudóma, — því hún á nóg ónumið Iand til þess að frjóvga og byggja. — Hún á nóg af Ás- gríms bláfjöllum og voguðum lit- um þessa merkilega brautryðj- anda, sem ekki lætur skámmir né skilningsleysi hafa áhrif á sjálf- sagdar sfefnubreytingar. Listsýningin í Reykjavík, eins og hún er nú, er fyrstu alhliða straumskiftin í sameiginlegri, ís- lenzkri list, — íslenzkum listastefn- um til bóta í allri framtíð. — Þessi 'sýning er byltingin mikla, sem enginn vissi um og tæplega listamennirnir sjálfir, — atvik, sem enginn skilur, hvernig hef- ir átt sér stað, en sem listsýningin glögglega ber merki um. — Og viti það nú öll hin íslenzka borg, að þessi listsýning er fyrsta sýn- ingin hindurvitnalausa; — með ölium sínum öfgum og alþýðu- syndum er hún alúð listamann- anna innbyrðis, — þar sem þeir ekki metast um fleti né rúm né heimta skatta, sem ekki eru til. Þessi sýning er sú, — þar sem listamennirnir sjálfir hafa gerst milljónerar og bjóða borgarbúum inn fyrir hundrað aura fil þess að gefa þeim þátttöku í dýrðinni, til þess að hafa einföldustu og skiljanlegustu reglur fyrir alvöru- menn þjóðarinnar, þar ■ sem hver og éinn gestur á kost á áð verða listvinur, listamaður og almátt- ugur meistari, — svo framarlega sem hann vogar og kann. En sýning þessi er fyrst og fremst sú, þar sem listamennirnir horfa á annað en sjálfa sig, — þar sem þejr í innsæi og aðdáun horfa á listina ungu og reyna að skilja hana. Þessi sýning er sýning á meist- araverkum hins fákunnandi og broskaða hlið við hlið, — þar sem granninn.á eld handa þeim unga, sem langar til þess að eiga Ijós á kerti. Þessi sýning er vísirinn mikli með Ijósrákina í hinum heilögu samtöku'm, sem bæði listamenn og þjóðirnar undrast, — samtakið mikla, sem hugsjónamenn hefir dreymt um í Jónsbók og annál- um Espólíns, — sýningin, sem er sagan um eldrítin austan frá Dyrfjalistindi yfir Meðalland,'þar sem foreldrar flúðu sandorpna jörð út á annes við Reykjavík, þar sem menningin á aö búa. Þessi sýning er bygð upp úr kreddum og trúgirni listamanns- ins, — og hún er afspringur stjórnmálaþroskans íslenzka við erlenda skóla og íslenzkt víðsýni í skýjum himins, yfir vanræktu landi. Með þessari sýningu byrjar ný, öld á íslandi í listum, — nýr þroski íslenzkra nýyrkjumanna hjá listinni ungu og fyrir hana. — Heill vkkur, listvinir! Heill þér, listin unga! Otvarpað í Reykjavík 6. júlí 1926. Jóhannes Sveinsson KjarvaL Hugleiðfnpr Tryggs eftir Anatole France. I. Menn, dýr og steinar verða stór- ir, er þeir nálgast, og gnæfa him- inhátt, þegar þeir eru komnir að mér. Það er ekki svo um mig. Ég helzt jafnstór, hvar sem ég er. II. Þegar húsbóndi rninn réttir mér — undir borðinu — mat, sem hann er að því kominn að setja upp í sig, þá gerir hann það til þess að freista mín, svo að hann geti hegnt mér, ef ég læt undan freistingunni, því að ég get -ekki trúað því, að hann myndi sýna sjálfsafneitun mín vegna. III. Þefurinn af hundum er sætur fyrir vitin. IV. ■ Húsbóndi minn heldur mér heit- um, þegar ég ligg fyrir aftan hann í stórum stól. Það er vegna þess, að hann er guð. Fyrir framan eld- stóna er heitur steinn. Sá steinn er guðdómlegur. V. Ég tala, þegar mér sýnist. Ot úr munni húsbónda míns koma líka skynsamleg hljóð. En mein- íng hans er ekki eins skýr eins og meiningin, sem kemur fram í hljóðum raddar minnar. Hvert hljóð, sem ég mæli, hefir sína meiningu. Af vörum húsbónda míns kemur margvíslegur mein- ingarlaus hávaði. Það er erfitt en

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.