Alþýðublaðið - 17.07.1926, Blaðsíða 5
BT'
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
nauðsynlegt að geta sér til hugs-
ana húsbóndans.
VI.
Gott er að eta, — betra að hafa
etið, því að óvinurinn, sem liggur
á verði, er sterkur og snar.
VII.
Alt fram streymir endalaust. Ég
einn er vaíanlegur.
VIII.
Ég er miðdepill alls; mönn.um,
dýrum og hlutum, fjandsamlegum
mér og vinveittum, er raðað í
kringum mig.
IX.
1 svefni sé ég menn, dýr, hesta,
tré, skemtilegar og óskemtilegar
myndir. Þegar ég vakna, eru þess-
ar myndir horfnar.
X.
íhugun. Ég elska húsbónda
minn, Berg, vegna þess, að hann
er voidugur og ógurlegur.
XI.
Verknaður, sem ég er barinn
fyrir, er vondur verknaður. Verkn-
aður, sem ég fæ mat fyrir eða
gælur, er góður verknaður.
XII.
Á nótlunni læðast ill öfl kring-
um húsið. Ég gelti, til þess að hús-
bóndi minn "varist og reki þau
burt.
XIII.
Bœn. Ó! Bergur, húsbóndi minn,
hreystinnar guð! Ég tilbið þig.
Vertu lofaður, þegar þú er't óg-
urlegur. Vertu lofaður, þegar þú
ert miskunnsamur. Ég skríð að
fótum þér. Ég sleiki hendur þínar.
Þegar þú situr við uppbúið borð
°S gleypir nægtir af kjöti, þá
ertu mjög mikiil og mjög fagur.
Mjög mikill og mjög fagur ertu,
þegar þú slærð eld úr mjórri
spýtu og breytir nótt í dag.
Varðveittu mig í húsi þínu, og
haltu burtu öllum öðrum hundum.
Og þú, Engilríður, eldhússtúlkan,
mikli og góði guðdómur! Ég ótí-
ast þig og sýni þér lotningu, svo
að þú megir gefa mér mikið að
eta.
XIV.
Hundur, sem skortir tilbeiðslu
á mönnunum og fyrirlítur helgi-
dóma þá, er saman.eru komnir á
heimili húsbónda síns, lifir aumu
flökkulífi. ,
XV.
Einu sinni rann vatn á fægt
stofugölfið úr brotinni krukku,
fullri af vatni, sem borin var um
stofuria. Þeirri óþverra-krukku
hlýtur að hafa verið hegnt með
flengingu.
XVI.
Menn hafa guðdómlegan mátt
til að opna allar dyr. Ég get ekki
opnað nema sumar sjálfur. Dyr
eru miklir helgidómar, sem ó-
gjarna hlýða hundum.
XVII.
Lif hundsins er fult af hættum.
Ef hann vill komast hjá þjáningu,
verður hann stöðugt að vera á
verði, á málum og jafnvel í
.^vefni.
XVIII.
Ómögulegt er að vita, hvort rétt
sé breytt gagnvart mönnum. Þá
verður að "tilbiðja án þess að
reyna að skilja þá. Vísdómur
þeirra er dularfullur.
XIX.
Aköllun. Ó, hræðsla, tigna og
móðurlega hræðsla, helgi og frels-
andi ótti! Gagntak þú mig! Fyll
þú mig í hættunni, svo að ég
megi forðast það, sem skaðvæn-
legt er, að ég kasti mér ekki yfir
óvininn og gjaldi óforsjálni minn-
ar.
XX.
Til eru vagnar, sem hestar
draga um göturnar. Þeir eru ógur-
legir. Til eru aðrir vagnar, sem
hreyfast sjálfkrafa og anda hátt.
Þeir eru líka hræðilegir. Menn
í tötrum eru viðbjóðslegir, einnig
þejr, sem bera körfur á höfðum
sér eða velta tunnum. Mér þykir
ekki vænt um krakka, sem reka
upp há org og flýja hvert fyrir
öðru og elta hvert annað á hlaup-
um um göturnar. Veröldin er full
af fjandsamlegum og hræðilegum
hlutum. (Þýtt.)
Frá Steindöri
á morgun (sunnudag)
til Þingvalla,
— Hafnarfjarðar
— Vífilstaða
í landsins beztu bifreiðum.
Fólkið segist skemta*
sér bezt í Steindórs
ágætu bifreiðum, enda
er svo til ætlast.
Simi 5S1.
I
SJm d^g|isiti og veginn.
Næturlæknir
er í nótt Matthías Einarsson,
Kirkiustvæti 10, sími 139, pg aðra
nótt Ólafur Þorsteinsson, Skólabrú
2, sími 181.
Sunnudagslæknir
er a morgun Jón . Kristjánsson,
Miðstrætl 3, símar 686 og 506.
Messur
á morgun: I dómkirkjunni kl. 11
síra Friðrik Hallgrímsson. Engin
síðdegismessa. I fríkirkjunni kl. 2
sira Árni Sigurðsson, kl. 5 Haraldur
prófessor Níelsson. 1 Landakots-
kirkju kl, 9 f. m. hámessa.
Áttræður
er í dag Eiríkur Briem prófess-
or, og er hann enn hinn ernasti.
Hann var lengi mjög umbótasinnað-
ur maður, og „auðfræðingurinn"
síra Arnljótur kallaði hann „kom-
munista" fyrir um 40 árum.
íslandsglíman
verður í kvöld kl. 8V2 á íþrótta-
vellinum. Kept er um glímukóngs-
titilinn, Islandsglímubeltið (handa
mesta glímumanni landsins) og
„Stefnu-hornið" (handa bezta glímu-
manni landsins).
Kappsundið.
Nú á það að fara fram á morg-
un og hefst kl. 8 e. m. Bátar ganga
frá steinbryggjunni. Keppendur og
starfsmenn eru beðnir að koma
ekki seinna -en kl. 7Va. Börn, sem
hafa loíað að selja aðgöngumerki,
vitji peirra á Skólavörðust. 38 eða
út i sundskála.
„Gullfoss"
fer héðan kl. 6 annað kvöld á-
leiðis til Vestf jarða,