Alþýðublaðið - 04.09.1926, Síða 5

Alþýðublaðið - 04.09.1926, Síða 5
ALÞ.ÝÐUBLAÐID 5 Reonfrakkar. Regnfrakkar. Allir regnfrakkar, ca. 40 stykki af mörgum litum og gæðum, seljast nú með 25%—30% afsl. Alt alullarfrakkar, regnpéttir. Af öllum öðrum vörum 10—15%. — Notið nú tækifærið. Guðm. B. Vikar, Laugavegi 21. klæðskeri. Sími 658. Gyðingalandi, lýðríkjum Suður- og Mið-Ameríku ásamt Vestur- Indíum. Ofurstinn er þrautreyndur starfsmaður. Einhverju sinni var hann dæmdur til tíu daga fang- elsisvistar vegna boðunar fagn- aðarerindisins um Jesúm Krist. Fátækt og margvíslegar þreng- ingar, eldgos og' önnur stórkost- leg náttúruundur og afleiðingar þeirra hefir hann þolað. Orð fer af því, að ofurstinn sé vel máli farinn, og sem söngvari og hljómlistarmaður er hann og kunnur. Hann talar vonum framar dönsku, spánversku og ensku mæta-vel. Hérálandi hefir ofurst- inn túlk. Dvöl hans hér verður mjög tak- mörkuð. Innlend tlðindi. Seyðisfirði, FB., 3. sept. Tjón af ofviðri. Afspyrnurok hér austanlands á þriðjudagsnótt. Ljósleiðslu- og síma-þræðir skemdust. Tveir vél- bátar skemdust á höfninni á Norð- firði. Annars urðu furðulitlar skemdir. Símstöðvarstjóraskiftin á Seyð- isfirði. Þorsteinn Gíslason tók við stjórn símstöðvarinnar hér 1. sept., og blöktu þá í fyrsta skifti íslenzk flögg á báðum flaggstöng- um stöðvarinnar. Sildveiði eystra. Allir Austfirðir eru enn þá sagðir fullir af síld, en smærri síld heíir gengið inn upp á síð- kastið. Nokkur síldveiði er á Reyðarfirði, Eskifirði og Fá- skrúðsfirði, en hér og á öðrum fjörðum minni nema í lagnet. Gömui veiðitæki eru stöðugt end- urbætt með nýjum, og er viðbótin talsverð. H. Um dagimx og veginn. Næturlæknir er í nótt Jón Kristjánsson, Mið- stræti 3 A, símar 686 og 506, og aðra nótt Magnús Pétursson, örund- arstíg 10, sími 1185 (í stað Guð- mundar Guðfinnssonar, sem ér í utanför og verður erléndis þenna mánuð). Sunnudagslæknir er á morgun Óiafur Þorsteinsson, Skólabrú 2, sími 181. Berjaförin, Farið var í morgun frá Aiþýðu- húsinu laúst eftir kl. 10, Um 100 börn voru i förinni. Ferðinni var heilið í námunda við Miðdal. Messur á morgun: I dómkirkjunni kl. 11 séra Bjarni Jónsson, kl. 5 séra Frið- rik Hallgrímsson. I fríkirkjunni kl. 2 séra Árni Sigurösson. I Landa- kotskirkju kl. 9 f. m. hámessa. —- 1 Sjó.mannastofunni kl. 6 e. m. guðs- þjónusta. Allir velkomnir. 38 ár eru í dag frá dánardegi Jóns Arnasonar bókavarðar, safnanda ] þjóðsagnanna. Listasafn Einars Jónssonar verður framvegis opið á sunnu- clöcjiim og miövikudögum kl. 1—3. Danzskemtun á Þingvöllum. Á rnorgun verður danzskemtun á Þingvöllum. Vörubíiastöð Islands hefir lofað að útvega fólki mjög ódýra gistingu. Nokkrar . bifreiðar fara í kvöld. Fargjald fram og aft- ur, gisting í nótt, matur og kaffi, kostar alls að eins 11 — ellefu — krónur. — Notið tækifærið. Al. Skemtunin i Kópavogi á morgun, sem kvenfélagið „Hringurinn" heldur til ágóða fyrir hressingarhælið, verður fjölbreytt, svo sem menn sjá af auglýsingu hér í blaðinu í dag. Þess skal get- ið, að aflvéiin, sem á að framleiða rafmagn, getur ekki verið komin í notkun á niorgun. Hermann Diener frá Heidelberg hefir látið Alþýðu- blaðinu í té 100 aðgöngumiða að fiðluhljóinleikum sínum í kvöld, og seljast þeir meðlimum verkalýðs- félaganna fyrir hálfvirði, á 1 krónu. Er þetta þakkarvert, enda óvíst, hvenær verkamönnum gefst tæki- færi til að heyra slíkan meistara, sem Diener er. Veðrið. Hiti 10—9 stig. Átt austlæg og norðlæg, hæg. Víðast þurt veður. Djúp loftvægislægð fyrir súnnan land, hreyfist til austurs. Otlit: Víða regn. Sennilega þurt á Vest- urlandi í nótt. — Hér í Reykja- vik er þurt og gott veður. Alþýðublaðið er sex síður í dag. Skipafréttir. „Nonni", aukaskip Eimskipafél. Is- lands, kom hingað í nótt. Draugur, sem kveða verður niður. „Skutull“ segir, að drykkjuskapur hafi, síðan bannið var lögleitt, aldrei verið meiri á Isafirði en í sumar. Hafi þó skipakomur þangað verið með minna móti og ekki fari orð af, að smyglun hafi aukist; sagt sé, að áfengisútsalan þar hafi selt með langminsta móti í, sumar, en al- mannarómur sé, „að með aðstoð læknanna Eiríks Kjerúlfs og Hall- dórs Stefánssonar fáist nú áfengi úr lyfjabúðinni greiðara en nokkru sinni fyrr“. Hefir nú lyfsalinn þar og læknar þessir verið kærðir, eins og áður hefir verið skýrt frá. Sain- kvæmt frásögn landlæknisins hefir lyfsali þessi fengið minna vín en áður frá áfengisverzluninni eftir því, sem skýrslurnar segja til. Verða upptök vinflóðs þessa wonandi rann- sökuð til hlítar og reynt að sporna við því, að þessi vínausturssaga endurtaki sig. Vínflóðið er sá draugur, sem kveða þarf niður af atorku. Áheit á Strandarkirkju, afhent Alþýðublaðinu: Frá Oddi Sigurgeirssyni: Peningar, kr. 1,50, og tvö vaxkerti. Frá Ó. Ó. kr. 5,00. Næturvörður er næstu viku í lyfjabúð Reykja- víkur. Ekki gott til samvinnu. Ekki er gott, að menn, sem eiga að vinna saman, séu í ill- deilum. Það er líkt og ef hægri fótur einhvers manns tæki upp á þeirri vitleysu að sparka við hvert fótmál í þann vinstri. Þetta spakmæli stóð nýlega í minsta blaðinu, sem prentað hef- ir verið hér í bæ.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.