Alþýðublaðið - 08.10.1926, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
mikil steinlögð. Var hún áðtir
notuð sem aftökustaður, og þar
mistu margir ágætir höfðingjar
höfuð sín eða létu lífið á annan
hátt. Þar voru ííka galdramenn
brendir, en nú fara þar fram her-
æfingar. Minnisvarðar ýmsir
standa þar, og er að þeim hin
mesta prýði.
Þegar flötinni sleppir, er gengið
inn um hlið eitt, og er nú alt á
fótinn, en sums staðar tröppur.
Verður fyrst fyrir manni turn sá,
sem kendur er við Argyll (argæl),
því að þar var Archibald mark-
greiíi frá. Argyll geymdur um
skeið, þangað til hann var drep-
inn 1661. Sonur hans, jarlinn af
Argyll, sat og löhgu seinna fang-
inn í kastalanum, en hnnn v7ar
ekki geymclur í Argyllturni, held-
ur annars staðar. Honum heppn-
aðist að sleppa burtu í þjóns-
búningi og í fylgd með tengda-
dóttur sinni, sem hafði fengið
leyíi til að heimsækja hann. Lá
þó við sjáift, að flóttinn mis-
heppnaðist, því að þegar kemur
að ytra hliðinu, þá veður að hon-
um varðmaður einn og þrífur í
handlegg honum allóþyrmilega.
Jarlinum verður hverft við, missir
kjólálóða frúarinnar og liggur við
sjálít, að hann komi öllu upp. En
íengdadóttir hans lætur sér hvergi
bilt við verða, þrííur upp slóoann,
sem er ákaflega Iangur og hefir
fallið ofan i foiina, og slær hon-
um framan í jarlinn og hund-
skammar hann um leið fyrir
hirðu'.eytið. Þá Iét vörðurinn þau
fara leiðar sinnar.
Þar sem hæðin er hæst, stend-
ur kastalahöllin. I ’henni eru
meðal arinars kórónustofa, Mar-
íustofa og veizlusaiur. í kórónu-
stofunni eru geymd tignarmerlyi-
Skoíakonunga: kóróna, sproti. rík-
issverð o. fl. Svo er sagt, að Ró-
bert konungur Bruce (d. 1329)
hafi borið kórónuna fyrstur
mánna og síðan Skotakonungar
hver af öðrum, þangað til Jakob
sonur Maríu Stúart náði í kórónu
Englands 1603. Á dögum Crom-
weils voru íignarmerkin flutt burt
úr kastalanum og 'falin undir
kirkjugólíi nokkru. Seinna voru
þau aftur geym'd í kastaianum,
n 1707 faidi skozka stjórnin þau
öryggis vegna, og vissi enginn,
hvar þau voru niour komin fyrr
en 1817, aö Waiter Scott fékk
stjórnina tii að iáta leita þeirra,
og þau fundust í eikarkistu járn-
bentri. Sú kista er og til sýnis
í kórónustofunni. Svo mæia nú
lög fyrir, að tignarmerki þessi
skuli aldrei notuð, en geymast
í Edinborgar-kastala til minja.
(Þess má geta, að tignanrierki
Englakonunga hinna fornu voru
eyðilögð á dögum Cromweils.
Mariustofa er kölluð svo af því,
að María drotíning Stúart bjó þar
um tíma, og er stóil hennar þar
,enn þá. Heldur er tómlegt í stofu
þessari, og lá við sjálft, að mér
fyndist þar ömuriegt, en líklegí
er, að þar hafi mestu valdið
minningin um Maríu Stúart, þessa
fögru og gáfuðu drottningu, sem
seinast lét iífið undir böðulsöxi.
Annars hygg ég óþarft að rekja
hér sögu hennar.
Veizluhöllin er geysimikill sal-
ur, 84 íeta iangur og 33 feta
breiður og 45 feta hár. Var hann
áður notaður fyrir þinghald og
átveiziur, en nú eru þar geymd
\'opn og verjur frá ýmsum öldum.
Fánar margir hanga niður úr
rjáfrinu, og er salurinn allur
skrautlegur riijög. Gluggarnir eru
málaðir skjaldarmerkjum skpzkra
höfðingja frá öilum öldum.
Austan til við höllina er tima-
bySsan. Það erfalibyssa, sem skoti
er hieypt úr kl. 1 á degi hyerj-
um (nema sunnudögum). Þar hjá
er brunnur einn ákaflega djúpur,
höggVinn þvert niður í gegn um
hamarinn. Nú er hann ekki Ieng-
ur notaður, því að nýtízkuvatns-
ieiðsla er inn í kastalann. Sterk
járngrind er yfir brunninum, og
glórir í vatnið lengst niðri í hýl-
dýpinu.
Ðavíðsturn er þar skamt frá.
Hann var byggður nálægt 1367',
og er mikið af honum í jörðu.
Einhvern tíma, þegar Davíðsturn
hafði skemsí mikið — líklega
vegna skothríðar — og átti að
byggja hann upp afíur, þá var sú
aðferð höfð, að rústirnar voru
næstum því fyltar upp með rnold
og hverju öðru, sem hendi var
næst, og síðan reistur turn utan
urn og ofan á. Nú hefir Davíðs-
turn verið grafinn upp, og eru
50 fet niður á neðsta gólf. Þar
þótti áður vera valinn staður fyrir
dýflissu, því þar er bæði fúlt og
kait, og engin glæta kemst þang-
að. Jaxnvel efst í turninum er
dagsbirtan mjög af skornum
skamti. Nú eru þar vitanlega alis
staðar rafljós.
(Frh.)
Floímesmir ferMýðsfimslur
i Vestmannaeyjum.
Samkvæmt símfrétt frá Vest-
mannaeyjum hélt verkamannafé-
lagið „Drífandi“ fund rétt eftir
hielgina í Garnla bíó. Var þar rætt
um verkamannaféiagið nýja, og
var húsið troðfult út úr dyrum.
Auðvalclsblaðið „Skeggi“ í Vest-
mannaeyjum er afarhriíið af hinu
ríýja verkamannafélagi, og sýnir
það flestu betur eðli þess. Þar
er eitt aðalstefnuatriði þess taiið
„að styðja að sem beztu sam-
komu'agi milli vinnuveitenda og
vinnuþiggjenda". Þetía er ósvikið
auðvaldsorðalag. „Bezta sam-
komu:agið“ þess er það, að burg-
eiear ráði einir öllu; þeir „veiti“
vinnuna, en verkamenn „þiggi“.
Um dagmn og veginn*
Næturlæknir
er i nótt Magnús Pétursson,
Grundarstíg 10, síini 1185.
80 ár
eru í dag, síðan Björn Jónsson rit-
stjóri fæddist.
Alþýðumenn,
sem farið burtu úr bænum! Mun-
ið eftir að kjósa í skrifstofu bæj-
arfógetans áður en þér farið. A-
listinn er li'sti alþýöunnar. Við
íandskjörið er A-listinn einnig listi
þeirra, sem ekki una íhaldsstjórn.
Trúlofun.
3. þ. m. opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Katrín Kr. Hallgrímsdóttir,
Bergsstaðastræti 48, óg Marinö Kr.
Jónsson sjómaður, Lindargötu 10 A.
Grænlantí.
Ölafur Friðriksson ætiar að halda
fyrirlestur um það og sýna skugga-
mýndir þaðan í Iðnó á sunnudag-
inn.
Drukknun.
Stýrimaður af þýzkum togara,
sem var á veiðuin suður við Reykja-
nes, féll útbyrðls og drukkxaci. Tog-
arinn flutti líkið í gær til Vest-
mannaeyja íil greftrunar.
Guðspekifélagið.
Reykjavíkurstúkan heldur fund í
kvöld stundvíslega kl. 8Va- Formað-
ur félagsins talar um afstöðu vora