Lísing - 01.12.1898, Page 2

Lísing - 01.12.1898, Page 2
2 borgar. Er útsíni fagurt alstaðar í fjöllunum meðfram braut- inni. Lítill er þar jarðvegur, en mikið af ljómandi fögrum og margbreittum blómum, og vaxa fau í ótal rifum og holum í klettunum, og er það allsnotur sjón. Alstaðar er sauðféð og geíturn^r í fjöllunum, og við og við sjés-t Þar Beduina-hjarðmenn sem virtust búa í hellrum sem við sáum mikið af, er við rend- um framhjá, Eru íbúðar hellrar þessir vanalega nálægt upp- sprettulindum sem riðja sér veg fram undan klettabeltunum. Mér þikir vænt um blóm og gaman hef ég af uppsprettum, en ekki vildi ég hætta á að klifrast um snarbrattar fjallahlíðar, klöngrast ifir klettana, sofa í hellum, verða skaðbitinn af mí- vargi og vera á sífeldri leit eftir snöpum handa skepnunum, hve margar sauðkindur eða geitur sem óg hefði firir félaga mína. Heldur vildi ég stunda lög í Visconsin. Oss furðaði það mikið, er vér sáum að Jerúsalem liggur á fjallsbrún einni 2,500 fet ifir sjáfarmál. Þar er hvergi slétta nein, hvorki í borginni né umhverfis hana. Alstaðar eru hengi- ílug, snarbrattar brekkur, gjár og klettasprungur. Smátindar nokkrir eru þar reindar fáeinum hundruðum feta hærri en borg- in. Alstaðar er landið snoðið og hrjóstugt. Augað getur að- eins hvílt sig á fáeinum olíuviðar trjí m og viltum blómum, er menn fara um landið. Þar ern engii ,-kogar; þeir hafa allir ver- ið höggnir og brendir firir löngu síðnn. Borgin sjálf innan gömlu veggjanna er einkum orðlögð firir ruslið í henni og óþverrann, firir trfina og rústirnar, firir guð- hræðsluna og fátæktina. Allar eru biggingar þar fátæklegar og óásjálegar. Mest er þar af ein- eða tvíloftuðum húsum úr grjót- steipu og er lítill sem enginn viður í þeim. I mörgum þeirra er viðargólf ekkert og valla sést þar glerrúða í glugga eða múr- strompur á húsi. Neðsta eða neðra loftið í húsi hverju sem búið er í, er vanalega haft til að geima hesta og asna. Hvít- þvegin eru húsin með kalkblöndu, og er það hérumbil hið eina hreinlætismerki.sem sjá má í borginni. Strætin eru viðbjóðs- leg. Þau eru þetta 5 til 6 feta breiðir ranghalar og mjóst að ofan, dimm og óhrein; en breiðust eru þau 10—12 fet. Sum strætin eru á sjálfri klöppinni og höggnar tröppur í helluna svo að hægra sé að klifrast upp og ofan og er þar bratt mjög víða. Illa eru þau steinlögð sem ekki liggja á hellunni sjálfri og öll eru þau óþokkaleg. Er þar fleigt út á strætin öllum saur karla, kvenna og barna innanum tað úlvalda, asna, hunda og katta.

x

Lísing

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lísing
https://timarit.is/publication/35

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.