Lísing - 01.12.1898, Qupperneq 8

Lísing - 01.12.1898, Qupperneq 8
24 Alla þessa skatta vilja ’einskattsmenn‘ afnema að undan- skildum hinum síðasta. Þeir vilja ekki leggja skatt á annað en landið og afgjald kess, og því er skattur þessi kallaður einskatt- ur, eða réttara: einskattur á verðmæti lands. Orðin verðmæti lands innibinda verðmætið eða leiguna af biggingum þeim og umbótum sem vera kunna á landinu. Hér er þess að gseta að skatturinn leggist á landið eftir verðhæð þess, en ekki eftir fiatarmáli eða hvað það' er stórt. Það væri þíðingarlaust að leggja jafnan skatt á hvert ferhirn- ings ’yard‘ eða ekru af landi hvort sem það væri í borginni eða úti á landi. Það væri að sækja í gamla horfið. I miðhluta stórra borga eins og t. d. Havana ogNew York kosta sumar ekrurnar miliónir dollara. Og undir einskattslög- um mundi eigandi þess borga margar þúsundir dollara í skatt. En í hinum fátæku landshlutum er landið einskis virði fram ifir það sem biggingar og umbætur á landinu hlaupa. Og undir einskattslögum mundi eigandi þess lands als engan skatt þurfa aðgreiða. • En er það þá rétt að láta nokkurn mann sleppa hjá að greiða skatt? Já, vissulega; svo framarlega «em hann njóti engra hlunninda hjá þjóðinni. Hugmindin með einskatt er sú, að skattarnir eru goldnir firir einkaréttindi þau, að fá að nota land sem þjóðin í heild sinni hefur gjört verðmikið. Stórir landeigendur í borgum ættu að borga ákafiega mikla skatta, því að með landinu hafa þeir fengið ákaflega mikil einkarétt- indi. Svo er land í smáborgum, þorpum, bæjum og auðugum sveitum sem er í mjög misjöfnu verði. Af öllu þessu landi irðu skattar greiddir eftir verði og gæðum landsins, en biggingar allar á því og umbætur væru skattfríar. p Undir einskattinum mundu skattar lagðir á menn hvort sem þeir notuðu landið sem best mætti verða, eða als ekki. Til dæmis setjum vér lönd tvö sem liggja hvert hjá öðru og eru jafnstór, jafnfrjósöm og jafnvel löguð til ræktar, og þéss vegna jafnmikils virði að undanskildum biggingum. A öðru landinu er ekkert nema illgresi, en á hinu er uppskera mikil og biggingar nógar. Eigendur beggja landanna mundu gjalda jafnan skatt. Mundi þess vegna maðurinn sem átti uppskeruna og bigging-

x

Lísing

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lísing
https://timarit.is/publication/35

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.