Kennarablaðið - 01.10.1899, Side 11

Kennarablaðið - 01.10.1899, Side 11
11 er; það þarf ekki að fara mörgum orðum um orsakirnar; það er nóg að nefna að eins strjálbygðina, fátæktina, áhugaleysið og trúleysið -á það, að það só kostandi miklu upp á fræðslu unglinganna fram yfir það, sem heimili og prestur leggja fram. Þó er það engan veginn alstaðar fyrir áhugaleysi og trúleysi, að eigi verða almenn not að umferðakennaranum, heldur er það oft og viða strjálbygðinni og fátæktinni að kenna. fetta tvent er örðugt að sigra til fulls, en eins tilflnnanlegur hnekkir ætti ekki að verða að því eins og nú er, væri fyrir- komulaginu á umferðakenslunni breytt nokkuð frá því, sem nú er algengast. í flestum hreppum landsins eru nú sjálfsagt kennarar, í sumum einn, öðrum fleiri. En mikið mun vanta á, að jafnan sé svo haganlega séð fyrir verkum handa þeim, sem skyldi. Par mundi það nokkuð bæta úr skák, ef það gæti orðið almenn venja, að hreppsbúar ræddu með sér á fundi ár hvert, hvernig umferðakenslunni skyldi hagað í hreppnum þann og þann veturinn. Þá ætti það að koma nokkurn veginn í ljós, hverjir umferðakennara vildu hafa og hve lengi; sömu- leiðis mundi það þá koma hér um bil fram, hve mörg börn í hreppnum á námsskeiði mundu næsta vetur fara á mis við reglulega fræðslu af kennara hálfu, og þá mundu þær sveitir, sem áhugamiklar væru urn unglingafræðslu, leita ráða til að þessi ungmenni yrðu sem allra fæst. Einhverjum þeirra mundi unt að koma fyrir á heimilum, þar sem kennari væri ráðinn; en þó mundu sjálfsagt fleiri eða færri verða eftir, sem ekki þætti kostur á' að koma til kennara, og þá þyrfti að grípa til nýrra ráða með þau. Þar er að vísu úr vöndu að ráða; þó er ekki ólíklegt, að dálítil bót yrði að því að fá umferða- kennarana til þess að fara eins konar húsvitjunarferðir um þau heimili, þar sem eru börn, er eigi geta notið kenslu hans um lengri tíma. Það mætti hugsa sér fyrirkomulagið þannig, að hann byrjaði umferðakenslu sina með því að fa.ra um þá bæi, þar sem eigi væri von um, að hann kendi börnunum af um veturinn, og leiðbeindi foreldrunum og börnunum, gæfl þeim foiskriftir í skrifbækurnar sínar o. s. frv, Slíkar leið-

x

Kennarablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.