Kennarablaðið - 01.10.1899, Blaðsíða 13

Kennarablaðið - 01.10.1899, Blaðsíða 13
13 Annarstaðar. þar sem ágreiningurinn í trúarbragðaefnum að vísu er minni, en þó allmikill, eru menn enn eigi á eitt sáttir um þetta atriði. Sumir álíta, að þótt eigi sé ágreiningur um höfuðatriði trúarinnar, þá sé þó svo mikill mismunur á lífs- skoðunum þeim og andastefnum, sem börnin mæta á heimil- unum, að óheppilegt eða jafnvel ranglátt sé að láta öil börn njóta sömu trúarbragðafræðslunnar í sömu skólunum. Aðrir aftur á móti álíta, að það sé varla tiltækilegt að aðskilja þessa fræðslu frá hinum almennu barnaskólum þar sem ríkið og kirkjan standa i nánu sambandi; þeir segja, að ríkið verði að hafa fasta tryggingu fyrir því, að börnin njóti þeirrar fræðslu, sem meðlimum þjóðkirkjunnar er nauðsynleg, og að þessi trygging geti naumast fengist nema því að eins að trúar- bragðafræðslan fari fram í þeim skólum, sem ríkið hefir urn- sjón yflr. Auk. þess má segja, að kirkjan sé móðir skólans, og er það líka ástæða til þess, að margir eru tregir til að slíta sambandið milli þeirra. Þessar mótbárur á móti því að afnema kristindómsfræðsluna í barnaskólunum væru þó tiltölu- lega þýðingarlitlar, ef að það yrði sannað, að það yfir höfuð só þýðingarlaust eða jafnvel rangt frá uppeldisfræðislegu sjón- armiði skoðað, að kenna kristindóm í barnaskólunum. En menn hljóta að viðurkenna hið gagnstæða, því að einmitt kristindómsfræðslan hefir ákaflega mikla þýðingu, ef til viil meiri en nokkur önnur námsgrein, í þá átt að gera barnið að nýtum og góðum manni, að vekja tilfinningar þess fyrir öllu góðu og fögru og beina vilja þess í rótta átt; en þetta er ein- mitt það takmark, sem skólinn á að keppa að. Þetta, sem nú hefir sagt verið um ástæðurnar fyrir því að halda kristindórnsfræðslunni sem námsgrein í barnaskólun- um, má nú flestalt með fult eins miklum rótti heimfæra til ástandsins hór á landi, þ. e, a. s. þar sem barnaskólar eru, og ástæðurnar á móti því eru hér miklu minni, þar sem svo að segja enginn verulegur ágreiningur í trúarefnum þekkist. Auk þess mundi lika erfitt að fá næga og nógu góða kenslu í þeirri námsgrein á annan hátt, því að prestarnir hafa ærið annað að starfa og oft er líka erfitt að ná til þeirra. Að

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.