Kennarablaðið - 01.10.1899, Blaðsíða 16
16
getur sjálft hjálpað sér fram úr kverinu. Þá verða hinir eldri
að hjálpa því til að lesa greinarnar, á meðan það er að kynna
sér þær. Barnið er nú látið fara eitthvað á afvikinn stað,
þangað sem fátt glepui fyrir því, á meðan það er að læra
það, sem því hefir verið sett fyrir til dagsins. Yanalega mun
fjósið vera sá staður, sem leitað er til, því að þar er hiýtt,
og þar er fátt sem truflar; en þar á móti er birtan þar vana-
lega mjög af skornum skamti og loftið naumast sem hollast..
Þarna verður nú barnið að hýrast þangað til það kann lexí-
una sína eða þá þangað til það sér ekki lengur til, því að oft
endist dagurinn ekki til að læra eina til tvær greinar þolan-
lega. Auðvitað er þá leti kent um, og náttúrlega er það líka
oft henni að kenna. En það er sannarlega heldur eigi við
öðru að búast, því að þessi aðferð hlýtur að gera nærri því
hvert barn latt. (Framh.).
------<«?>■—*—
J-'rMíir fró skólununþ
Flenslorgarskölinn var settur 2. þ. m. í kennaradeildina
eru að eins komnir 3 nemendur, en í gagnfræðadeildunum vitum
vér enn eigi með vissu, hversu margir nemendur verða, vegna
þess að þeir eru ekki allir komnir, þegar blaðið kemur út;
væntanlega veiða þeir nálægt 30.
Barnaskólinn í Reykjavík hefir þegar fengið um 280 nem-
endur og von á fleirum.
Nákvæmari fregnir í næsta blaði.
l/annoroKlorSirí kemur út einu sinni á mánuði. Meðlimir
iVöIlIlaldlJldUKJ „hins íslenzka Kennarafélags“ fá það
ókeypis, en fyrir aðra kostar það 1 kr. 25 aur. — erlendis 1 kr. 75
aur. — árgangurinn. Borgist fyrir lok júnimánaðar. Skilvísir útsölu-
menn fá !/6 í sölulaun. Nýir útsölumenn og kaupendur gefi sig fram
sem fyrst.
Útgefandi: Siguebur Jónsson, barnakennari, Reykjavík.
Aldar-prentsmiðja.