Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 16
32
hugmynd um þau áhrif, sem lýðháskólarnir hafa haft eða
munu hafa á dönsku þjóðina; en víst er um það, að þeir hafa
sýnilega afarmikla þýðingu í þá átt að vekja hana og glæða
hjá henni áhuga á öllu því, er áð sönnum framförum lýtur,
bæði andlegum og verklegum.
----W------
jKréííir frá slmlununþ
BarnasJcóli Beykjavíkur hefir nú fulla 300 nemendur. Er
þeim kent í 11 bekkjum; en í skólahúsinu eru 12 kenslustofur
og 30 börnum ætlað rúm í hverri. Tala skólabarnanna fer
vaxandi ár frá ári, og má því búast við að húsrúmið verði
brátt of lítið. Yirðist aðsóknin að skólanum naumast bera
vott um, að það sé alment álit bæjarbúa, að börnin læri þar
lítið eða ekkert annað en ósiði, þótt málgagnið hans Breiðfjörðs
léti þá skoðun sína í ljósi fyrir skömmu. Kennarar og kenslu-
konur eru alls 20 í vetur; að eins skólastjóri og 1 aðstoðar-
kennari hafa föst laun, en allir aðrir fá 50 aura borgun fyrir
hverja kenslustund. í hverjum bekk er kent 25—29 stundir
á viku. Skólinn byrjar vanalega starf sitt 1. okt. og endar í
miðjum maí.
— Innan skamms vonum vér að geta gefið lesendum vor-
um yfirlit yíir starf sveitakennaranna á síðastl. vetri.
gplp" „Kennarablendurtekur þá ósk sína, að kennar-
arnir út um landið láti heyra til sín.
\T o-u -n n ro 1 \1 o Á i kemur út einu sinni á mánuði. Meðlimir
JS.ölllialaL)IaUlU „hins íslenzka Kennarafélags11 fá það
ókéypis, en fyrir aðra kostar það 1 kr. 25 aur. — erlendis 1 kr. 75
aur. — árgangurinn. Borgist fyrir lok júnímánaðar. Skilvísir útsölu-
menn fá i/B í sölulaun. Nýir útsölumenn og kaupendur gefi sig fram
sem fyrst.
Útgefandi: Sigubbub Jónsson, barnakennari, Reykjavík.
Aldar-preutsmiðja.