Kennarablaðið - 01.01.1900, Síða 1

Kennarablaðið - 01.01.1900, Síða 1
JIlþvbumeníui'L d fiorðurlöndum. 3. Svíþjóð. Urti skóla í Svíþjóð er svo rækileg ritgerð eftir dr. Por- vald Thoroddsen í sjöunda ári Andvara, að það er í sjálfu sér að bera í bakkafullan lækinn, að fara að rita um það mál nií aftur. En af því að búast má við, að ýmsir af lesendum Kennarablaðsins hafi ekki þá ritgerð við hendina, þá skal þó hér að nýju gefið ofurstutt yfirlit yfir alþýðuskóla-fyrirkomu- lagið sænska. Svíar telja svo til, að aðalbaráttan um að koma alþýðu- fræðslunni í skipulegt, og lögbundið horf hafi staðið yfir frá 1809 til 1842. í þeirri baráttu stóðu tveir flokkar öndverðir, annars vegar bændaflokkurinn, er gerðist formælandi' aukinnar alþýðufræðslu, en hins vegar klerkarni]-, er vildu halda henni í svipuðu horfi og fyr. Þó var flokkagreiningin eigi fyllri en svo, að nokkra öfluga fyigismenn höfðu bændur úr klerka- flokknum. Þessi mentahreyfing stóð í ailnánu sambandi við frelsishreyfingar og stjórnarbreytingar hjá þjóðinni. IDað kom þar fram, sem oftar, að aukið þjóðfrelsi og aukin alþýðu- fræðsla hafa reynst samborin systkin, enda ættu jafnan svo að vera, ef vel á að fara. 18. júní 1842 gaf Svíakonungur út tilskipun þá um al- þýðufræðslu í landinu, sem enn er í aðalatriðum eftir farið, þótt ýmsar breytingar og viðaukar hafi að vísu síðan komið. Tvær tilskipanir hafa að vísu síðan komið lít, hin fyrri 1882

x

Kennarablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.