Kennarablaðið - 01.01.1900, Blaðsíða 2

Kennarablaðið - 01.01.1900, Blaðsíða 2
50 og hin síðari 1897, en í báðum þeim er bygt á grundvelhn- um, sem lagður var 1842 ; verður því í þessu stutta yíirliti aðallega fylgt elztu tilskipuninni, en jafnframt minst á höfuð- breytingarnar, sem á henni hafa orðið. í tilskipuninni 1842 er svo fyrir mælt, að í hverri sókn skuli skóli vera, annaðhvort fastaskóii eða þá umferðarskóli. fá er eiginiega ekki nema um eins konar skóla að ræða; en 1858 er sú skipun gerð, að alþýðuskólunum megi skifta í tvær aðaldeildir : smáskóla og fólkskóla. í smáskólunum eru börnum kend byrjunaratriðin, og þau að því búnu látin ganga á fólkskólann. í sumum héruðum eru smáskólar miklu fleiii en fólkskólar, eldri börnunum talin minni vorkunn, þótt skóla- ieiðin sé nokkuð löng fyrir þau, en yngri börnunum. Sum- staðar er smáskóli og fólkskóli í sama skólahúsinu. Skólastjórnin í sveit hverri er í höndum skólaráðs; í því sitja prestur og kosnir menn af sveitamönnum. Skólaum- sjónarmenn eru skipaðir til að hafa umsjón með skólunum, hver á sínu svæði; eiga þeir að ferðast um og athuga, hvern- ig alt fer fram í skólunum, leiðbeina kennurum og skólaráð- um og gefa skýrslu um allan hag skólanna. Fyrir flestum af umsjónarmönnum þessum er starf þetta þó hálfgej't hjáverka- starf, því að þeir hafa svo mörgu öðru að gegna, eru annað- hvort prestai*, kennarar við kennaraskóla eða iærða skóla o. s. frv.; æskja því margir að fyrirkomulagi þessu sé breytt þannig, að umsjónarmennirnir hafi umsjónarstaríið eitt áhendi og séu úr kennaraflokki, og er það svo í sumum bæjunum. Yfirumsjón skólanna er í höndum biskupa og stjórnarinnar. Þegar 1847 var svo fyrirskipað, að 1 skólum skyldi kent lestui-, skrift og róttritun, kver og biblíusögur, landafræði, saga, reikningslist, teikning, náttúrufi'æði, fimleikar og sálma- söngur; einnig var gert ráð fyrir, að kend yrði trjáplöntun og garðrækt. 1877 var gefin út tilskipun um það, að piltum skyldi kend handavinna og veittur sérstakur fjárstyrkur til þess; þó er þetta ekki skyldunámsgrein, en við marga skóia er hún kend. Nú er á sama hátt fyrirskipað, að stúlkum skuli og kend handavinna, og þar á meðal matreiðsla ef ástæð-

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.