Kennarablaðið - 01.01.1900, Blaðsíða 11

Kennarablaðið - 01.01.1900, Blaðsíða 11
59 ÍDvað líður leafraríóÆinni? Einhverntíma flaug sú fregn fyrir, að Kennarafélagið hefði með höndum útgáfu nýrrar lestrarbókar handa alþýðu. Hvað sem kann að vera hæft í þessu, þá er víst, að ekki bólar á Barða. Engin kemur lestrarbókin. Enginn flnnur það betur en kennararnir, hvílík vandræði það eru að vera lestrarbókarlaus, t. d. við móðurmálskensluna. Jt’annig lagaða lestrarbók þui’fum við endiiega að fá, sem sniðin væri til þess að hafa til afnota við móðurmálskensluna. Án slíkrar alþýðulestrarbókar er móðurmálskenslan afar örðug, ef ekki ómöguleg, Hvaðan eigurn vér að taka hentugt efni til munnlegra og skriflegra æflnga við móðurmálskensluna, eins og nú stendur? Efnið er að vísu til í ýmsum prentuðum bók- um og smápésum. í „Samtíningi" t. d. er margt nýtilegt tii þess. En það er ólíkt hentugra að hafa í einni bók nægiiegt og hentugt efni á hinum ýmsu kensiustigum, og það einmitt í bók, sem börnin sjálf eiga, eða að minsta kosti hafa til afnota. Lestrarbókin er alveg nauðsynlegt hjálparmeðal við kensl- una fyrir hvern duglegan kennara. Fyrir miður duglega kenn- ara er hún því fremur nauðsynleg til stuðnings og leiðbeiningar við hina fyrstu barnafræð'slu, og kemur á sama hátt að ágæturn notum á heimilunum, þeim einu skólunum, sem flest íslenzk börn eiga enn sem komið er við að búa. Þörfin á alþýðulestrarbók er svo brýn, að það má ekki dragast lengur, að þoka því máli eitthvað áleiðis. Allir flnna og sárt til þess, hversu nauðsynlegt er að til séu bækur, hentugar fyrir börn og unglinga til að lesa sér til skemtunar og fróðleiks og til þess að æfa sig í lestri. Úr þessari þörf hefir átt að bæta með útgáfu „fornsögu- þáttanna". En mér finst það sem út er komið: Goðasögur og forneskjusögur, í engu vera við barna hæfl, nema að því leyti, að þær eru prentaðar í litlu broti. Úað verður ekki séð, að útgefendunum hafl þótt annað nauðsynlegt til að gera forn- sögurnar að barnabók en það, að gefa þær út í barnabóka-

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.