Kennarablaðið - 01.01.1900, Side 16
64
uppeldi hinnar uppvaxandi kynslóðar? Það þykir lélegur hús-
faðir, sem lætur afskiftalaust uppeldi unglinga á heimili sínu,
þó að eigi séu hans eigin börn. Stjórnir ailra landa rná vel
skoða sem húsfeður allrar þjóðarinnar, börn þjóðarinnar þeirra
börn; en hvað má þá hugsa um þær stjórnir, sem aldrei
skifta sér neitt af uppeldi sinna þjóða, sinna þjóða barna, sem
aldrei leggja qrð í belg, þegar börnin eru að bollaleggja, hvað
þau eigi að læra og hvernig? Yíst og satt er það, að stjórn-
ina'okkar þarf eigi.síður að vekja en aðra. Pá væri vel, ef
Kennarablaðið gæti orðið til þess að ýta svolítið við henni.
Kennarablaðið kemur þó kennurunum sjólfmn öllum fremur
að liði. Hversu mikils virði er það ekki fyrir þá, að geta
skrifast á í því, sett fram hugsanir sínar og séð annara hugs-
anir. Sýni það sig, að þeir finni enga þörf hjá sér til að
spjalla saman og leiða hesta sína saman um „uppeldi og
kenslumál", þá — já, þá er það vottur um verri anda.
Ég fyrir mitt leyti er mjög þakklátur fyrir „Kennara-
blaðið" og vil feginn mega senda þvi línu, þegar mig langar
til að fræðast um eitthvað, eða til að létta huga minn með
því að kvarta yfir einhverju við það, sem mér finst að laga
mætti. Kennari.
„Kennarabl.“ endurtekur enn á ný þá ósk sína, að
kennararnir út um landið láti heyra til sín. Það væri og
æskilegt, að vér úr þessu færum að fá að vita, hvað útsölu
blaðsins hður. Kvartanir yfir útsendingu blaðsins sendist ann-
aðhvort til ritstj. eða til Sigurðar kennara Þórólfssonar í
Reykjavik.
T^PnmrHhlHnín ^e,nur nt einu sinni á mánuði. Meðlimir
^ -'iélUfU íslenzka Kennarafélags11 fá það
ókeypis, en fyrir aðra kostar það 1 kr. 25 aur. — erlendis 1 kr. 75
aur. — árgangurinn. Borgist fyrir lok júnímánaðar. Skilvísir útsölú-
menn fá i/8 í sölulaun. Nýir útsölumenn- og kaupendur gefi sig fram
sem fyrst.
Útgefandi: Sigurbdr Jónsson, barnakennari, Reykjavík.
Aldar-prent8miðja.