Plógur - 06.11.1900, Page 7

Plógur - 06.11.1900, Page 7
63 Um fjölhæfismanni, þá nær hún of skamt, tekur ekki allar hliðar hag- spekinnar. Eg ætla í næsta kafla að sýna roeð 'dæmum úr daglega lífinu, að hagspek- in er ekki þýðingarlaus fyrir bú- manninn. (Frh.). Áburðarhlrðing. „Hver ráð eru ti) þess, að efla áhuga manna á góðri meðferð á á- burði? Þessi spurning var lögð fyrir mig einu sinni. Eg verð að játa það hreinskilnislega, að mér varð ekki fljótt til svars. Það er nú kunnugt, að nú í 30—40 ár læfir það verið brýnt fyrir mönnum, að áburðar- hirðingin væri eitt af þeim helztu ■atriðum. sem góður búskapur byggist á, að skilyrði fyrir grasræktinni sé nógur og góður áburður. En hvaða ■ávöxt hafa allar slíkar bendingar bor- ig? Mjög litla ávexti. Það er hreint ■og beint sorglegt að hugsa til þess, að ,þrátt fyrir alla þekkingu, sem bændur nú hafa á ýmsum greinum meira og minna, og mikla viðleitni til að gera umbætur í búskaparlegu tilliti, þá skuli þó hirðing á áburði vera svo léleg, nálega alstaðar um. land alt, að það er hrein og bein skömm fyrir þjóðina í heild sinni. — Þetta máské þykja nú stór orð, en því miður eru þau sönn. Eri* það merkilegasta er, að ná- lega allir bændur kannast við þörfina á nógum og góðum áburði, viður- kenna að illa sé farið með hann. En sannfæringin er ekki orðin svo sterk í þessu, að til framkvæmda leiði. Enginn vafi er á því, að hirð- ing á áburði fer þó heldur fra.m en aftur. En það gengur svo hægum fet- um, að enginn lfkindi eru ti) þess að vér eftir t. a. m, 100 ár verðum komn- ir eins langt í áburðarhirðingu og ná- granna þjóðirnar eru nú komnar. Vér þolum ekki svona hægfara fram- þróun. Þessu og fleyru þarf að kippa í lag á fáum áratugum, eða helzt á 1 áratug. Eg held að eina ráðið til þess, að fá bændur alment til að hirða betur áburðinn en nú gerist, sé að veita verðlaun af opinberu fé hverjum þeim bónda, sem eftir dómi óvilhollra manna, hirtu áburð sinn líkt og nú tíðgast í Danmörk. Væri smérlíkistollinum vel varið til slíkra verðlauna, sem fyrst 1 stað yrðu að vera til muna. Eg býst við að fá það svar úr einhverju horni, að það sé óþarfi ann- að eins og þetta, að borga bændum fyrir það að hirða vel áburðinn, sem þeir hafa sjálfir mesta hagnaðinn af. En þessu má svara með þvíað benda mönnum á, að nágrannaþjóðirnar hafa komið búnaði slnum á það stig, sem hann nú er á, mestmegnis með verð- launum til þeirra, sem skarað hafa fram úr í eiuhverri grein landbún- aðarins. Nú eru Norömenn farn- ir að verölauna fjósakonur og fjósa- menn og dygg vinnuhjú. Þeim þykir sllkt borga sig. Það er heiðurinn, sem menn gangast meira fyrir en hagsmununum. Það heldur hver músin verst í slnni holu. Eftirtektaverður greinarstúfur er í

x

Plógur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.