Plógur - 01.10.1901, Side 4
6o
tilfinnanlegt er það ekki, móts við
vinnu þá, sem fyrir það fæst.
Þar sem eg þekkti til í Norgi
var algengt, að þeir grannar verk-
þiggjanda, sem næst bjuggu létu
að morgni vinnudagsins færa hon-
um heim mjólk og Iéðu einnig mat-
arílát og önnur borðáhöld.
Eg hefnokkrum sinnum að gamni
mínu verið við slíka vinnu þar, og
gekk allt mæta vel, kappsamlega
unnið og gott samkomulag. I eitt
skipti var eg með, þar sem 30
menn unnu að girðingu og það
Var allálitlegt dagsv. að kveldi.
Væri ekki reynandi að taka þetta
til fyrirmyndar hér ? Menn munu
svara, að strjálbyggðin geri það
ómögulegt, en eg hygg að því
megi víðast við koma. Mér dett-
ur í hug ýms kotahverfi hér á Suð-
urlandi þar sem allt er ógirt, hver
beitir annars tún og gerir öðrum
tjón, nnmdi ekki heppilegra að
reyna að vera í samvinnu, girða
af túnin sín og slétta þau, túnin
yrðu þá fyrst og fremst margfallt
arðmeiri, og svo væru menn laus-
ir við nábúakrit og önnur óþæg-
indi, sem alloptast fylgir þröngbýl-
inu. Það væri ekki ófróðlegt að
fá að heyra álit lesenda Plógs í
ýmsum héruðum landsins um þetta.
Eg hygg að slíkri samvinnu mætti
víða við koma, og að hún mundi
geta borið heilladrjúga ávexti fyr-
ir landbúnað vorn. J. J.
Ólafsdalsplögurinn nýi.
I blaðinu „ísafold" skýrði eg í
sumar frá reynslu minni og áliti
um hinn nýja plóg, sem skólastjóri
Torfi Bjarnason hefir smíðað, Ef
vera kynni að einhverjir af lesend-
um „Plógs“ annaðhvort ekki hafi
lesið þessa skýrslu mína eða þá
gleymt henni skal eg hér stuttlega
minnast á plóg þennan. Plógur
þessi er léttari í drætti en allir aðrir
plógar, sem reyndir hafa verið hér
á landi, og vinnur verk sitt mjög
vel á allskonar jörð, og fyrir þúf-
ur er hann betur lagaður en nokk-
ur útlendur plógur, sem eg þekki.
Aður en eg reyndi þennan plóg
var eg á þeirri skoðun að tæplega
mundi unnt að sameina í einni
plógmynd öll þau skilyrði, er heimta
verður af plógnum á ýmiskonar
jörð, og vér mundum þessvegna
þurfa, þar sem mikið væri plægt,
að hafa fleiri en einn plóg. En
hr. Torfi Bjarnason hefur hér nað
svo langt, að þessi nýi plógur hans
getur unnið verk sittvandlega und-
ir öllum þeim kringumstæðum, sem
hjá oss geta komið til greina við
plægingar fyrst um sinn. Nú í vet-
ur verður smíðað í Olafsdal mikið
af þessum plógum, og gerðar ýms-
ar smábreytingar á plógnum, þann-
ig, að þessir, sem smíðaðir verða,
verða að ýmsu leyti ennþá betri
en sá, sem eg reyndi. Eg vil þess
vegna ráðleggja öllum, sem kaupa
vilja plóg, að kaupa einmitt þenn-