Plógur - 01.10.1901, Page 6

Plógur - 01.10.1901, Page 6
62 taka alvarlega í taumana, ef nokk- uðá að verðagert til verulegra bóta. Bændur og búalýður ættu að láta meira til sín taka um þetta efni, koma með ákveðnari kröfur. Það mundi eflaust greiða fyrir nýtileg- um framkvæmdum í þessa átt. _________ H. Rófnarækt til fóðurs. Það mundi án efa hafa talsverða þýðingu fyrir jarðrækt vora, ef það gæti náð almennri útbreiðslu að rækta rófur til fóðurs. Hingað til hefur þetta verið lítið reynt hér á landi, mest, ef til vill, af því, að almenningur hefur ekki vitað neitt um að til væru rófnategundir, sem hentugar væru til fóðurs, og sem hér mundu geta þrifist sem nokk- urnveginn arðvissar. En það er eng- um efa bundið, að ýmsar af þeim fóðurrófnategundum, sem almennt eru ræktaðar í nágrannalöndum vorum, geta með góðri hirðingu þrifist hér í öllum árum. Landrými til þess konar ræktunar er alstað- ar til sveita nóg, þó það auðvitað sé misjafntaðgæðum. Ymsirkunna ef til vill, að ímynda sér, að rófna- rækt til fóðurs geti ekki borgað sig, í samanburði við grasræktina — að meiri eptirtekja verði af jafn- stórum bletti með grasrækt en rófna- rækt — þetta getur átt sér stað þeg- ar um vel ræktað tún eraðræða, en rófnaræktin á heldur ekki að rýma grasræktinni brott, eða draga úr henni, þvert á móti — hún á að verða sem nokkurskonar arðsanit aukatriði, grasræktinni til stuðnings- og ef vér einhverntíma tækjum upp aðra aðferð við grasræktun, verður rófnaræktin sem nauðsynlegur milli' liður, og verður minnst á það nán- ar síðar. Að það borgar sig að fóðra með rófum er fyrir löngu sannað með reynslu erlendis og þær fáu tilraun- ir, sem gerðar hafa verið með það hér benda á hið sama. Víða upp til sveita er míkið af óræktar móum umhverfis túnin eða í grend við þau, — sem eru injögf vel fallnir til rófnaræktunar, þessir landskikar liggja nú arðlausir og ónotaðir, og það verður ekki með réttu sagt, að búnaður vor sé að taka framförum, ef vér látum slíka bletti, rétt í kringum túnin, liggja ónotaða framvegis, þegar vér vitumi að hægt er að hafa þá undir arð- samri ræktun, sem kostar minna í fyrstu og gefur fljótar arð en ef þeim ér breytt í tún. Hitt og J»etta. Helzta ráðið til þess að gera kýr hámjólkar, er að mjólka þær opt á dag. Danskur dýralæknir að nafni, Hege- lund, hefur gert ýtarlegar tilraunir með þetta og tekist ágætlega. Bezt geng- ur það með ungar lágmjólkar kýr, auð- vitað verður fóður og hirðing að vera í góðu Iagi. Hr. Hegelund hefur um nokkur ár gert ýmsar tilraunir og at- huganir um mjaltir á kúm, og hefur

x

Plógur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.