Helgarpósturinn - 17.08.1979, Blaðsíða 24
—JielgarpösturinrL- Föstudagur 17. ágúst 1979
• A fyrsta kvöldi Reykjavfkur-
vikunnar hélt popphljómsveitin
Brunaliðiö tónleika á Klambra-
túni. Þó dálitill fjöldi fólks sótti
skemmtunina, aðallega þó yngri
kynslóðin, sem dillaði sér við
músikina. En þarna mátt lika sjá
æskulýðsfrömuðinn Hinrik
Bjarnason hjá LSD og Markús
örn Antonsson, borgarfulltrúa,
sem sæti á ,i framkvæmdanefnd
þessarar merku viku. Þeir
hlýddu á Brunaliðið alvarlegir á
svip eins og myndastyttur og
engu likara en að verið væri að
spila þjóðsönginn. Skammt frá
stóð Sjöfn—Sigurbjörnsdóttir,
borgarfulltrúi, formaður fram-
kvæmdanefndarinnar, i hóflegri
fjarlægð frá mannfjöldanum, og
dillaði sér léttilega. Eiginmaður-
inn hélt þó uppi virðingu fjöld-
skyldunnar. Hann haggaðist
ekki...
§ Um verslunarmannahelgina
efnu nemendur I bókmenntum
við Háskóla Islands til ráðstefnu,
þar sem umræðuefnið var ekki
endilega bókmenntir sem slfkar,
heldur fremur kennsla i grein-
inni. Voru þar gagnrýndir ýmsir
fræðimenn islenskirá þessu sviði.
Ráðstefnumenn lýstu sjálfum sér
sem „helgimyndabrjótum” og
skildi fólk það þannig fyrst, að
þarna hefðu menn dundað sér við
aö rifa niður „helgimyndir”
islenskra bókmenntafræða i lik-
ingu við Sigurð NordaL Svo var
hins vegar ekki. Ein helgimyndin
var Njörður P. Njarðvik. Hann
var afgreiddur pent og úrskurð-
aður gamaldags...
O Fjárhagsvandræði dagblaös-
ins Timans eru geysileg og
eru skuldir sagðar mun meiri en
opinberlega hefur verið haldið
fram af Timamönnum eða hátt á
annað hundrað milljónir. Staðan
er nú svo slæm, þrátt fyrir fjár-
söfnun sem staðið hefur yfir að
undanförnu, að i fyrradag var
fjórum starfsmönnum blaðsins
sagt uppá einu bretti. Er þar um
að ræða einn blaðamann, eina út-
litsteiknarann á blaðinu, einn
starfsmann auglýsingadeildar og
einn hjá afgreiöslu. Aður mun
konu þeirri sem sér um kaffiveit-
ingar fyrir starfsfólk hafa verið
sagt upp störfum. Þá hefur verið
ákveðið að leggja niður daglegar
erlendar fréttir og viðskiptum við
Reuterfréttastofuna slitið. Eftir
þvi sem Helgarpósturinn hefur
fregnað nær skuld blaðsins fyrir
erlendu fréttaþjónustuna allt að
þrjú ár aftur i timann. Þá mun i
bigerð að leigja i fjáröflunarskyni
stóran hluta hinna rúmgóðu rit-
stjórnarskrifstofa Timans i Siðu-
múlaogþjappa blaðamönnum og
öðrum starfsmönnum saman.
Eru Timamenn sagðir ihuga al-
varlega frekari uppsagnir og
jafnframt að minnka blaðið niður
i átta siður hvunndags og 12 siður
um helgar. Fjárhagsvandinn
steðjar reyndar að fleiri blööum
en Timanum, og mun Þjóðviljinn
einnig hafa ihugað minnkun á
blaðinu vegna sparnaðar...
® 1 Bolungarvík segja menn að
sé meiri almenn velmegun en i
öörum bæjarfélögum á landinu.
Viö erum ekki dómbærir á það.
Það vakti hinsvegar athygli okk-
ar þegar viö fréttum að pósturinn
á staðnum hjólar ekki milli hús-
anna með bréfin, eins og póstar
gera viðast hvar, heldur ekur á
glansandi rauöum Mercedes
Benz, árgerð 1979, með vökva-
stýri, aflhemlum og ööru sem
fylgir slikum lúxuskerrum. Er
engin furða þótt fólki á Bolungar-
vik þyki talsvert til sin koma þeg-
ar þaö sér póstinn stiga inni vagn-
inn, aka 20 metra spotta, ganga
tigulega með bréfin i hús, stiga
aftur i dýrðina og aka að næsta
húsi...
Eftir þvi sem Helgarpósturinn
hefur fregnað eru nú nokkrar lik-
ur á þvi að eitt helsta stórstirnið i
poppinu um þessar mundir,
Meatloaf komi hingað i mars á
næsta ári og haldi hljómleika
ásamt hljómsveit sinni. Hann
mun hafa lýst áhuga sínum á að
koma hér við á'leiðyfir hafið enda
hefur hann hvergi i veröldinni
orðið vinsælli miðað við fólks-
fjölda. Plata hans Bat out of Hell
seldistica. 13 þúsund eintökum
eða fyrir hátt i 100 millj. krónur.
Hlýtur það að teljast met fyrir er-
lenda plötu að vera til á um 4.
hverju heimili. Ný plata frá þess-
um snillingi er væntanleg hingað i
lok þessa mánaðar. Hvort kapp-
inn sjálfur kemur svo á næsta ári
mun velta talsvert á velvilja
stjórnvalda...
# Steingrímur Hermannsson,
dómsmálaráöherra er í nokkrum
vanda um þessar mundir vegna
veitingar stöðu bæjarfógetai
Kópavogi en meðal umsækjenda
eru margir mætir og traustir
framsóknarmenn. Liklegast er þó
taliö að Eiias Eiiasson, bæjarfó-
geti á Siglufirði hreppi hnossið
þótt ekki sé hann i framsóknar-
hópnum og vegi þar þungt aö
ýmsar stöður eru að opnast i
Noröurlandskjördæmi vestra, og
þarf að halda vel á spööum þegar
Ólafur formaöur hverfur þaðan
úr framboði. Þannig mun bæjar-
fógetinn á Sauðárkróki vera að
láta af embætti fyrir aldurs sakir
og fái Elias Kópavog losnar staöa
hans á Siglufirði...
# Þegar upp koma millirikjamál
af þvi tagi sem Jan Mayen-deilan
er þá er það jafnan reyndin að góð
náin samvinna tekst milli
I blaðamanna hérlendis og erlendis
um fréttir frá báðum hliðum.
Þannig hefur þetta verið undan-
farið milli islenskra og norskra
blaðamanna út af Jan Mayen.
Þessi samvinna er reyndar undir-
rót „lekans” mikla á dögunum,
þegar tillögur utanrikisráðherra
birtust að hluta i norska Aften-
postinumá dögunum. Blaöamað-
ur þaðan hringdi i kollega sinn á
einu dagblaðanna hér kvöldið eft-
irað BenediktGröndalhafðireifað
hugmyndir sinar i Jan Mayen-
málinu og þeir fóru að spjalla um
það hvað i tillögum Benedikts
fælist. Blaðamaðurinn islenski
lýsti persónulegu mati sinu á þvi,
en vissi svo ekki fyrr en Aften-
posten hafði birt frétt um tillög-
una og að hann hafði hitt nagl-
ann á höfuðið eftir viðbrögðum
innlendra ráðamanna að dæma.
Aftenpostsmenn vissu heldur ekki
hvaðan á sig stóð veðrið, þegar
linurnar hitnuöu hjá þeim daginn
sem fréttin birtist, og höföu sam-
band við heimildamanninn i
Reykjavik til að spyrja hvort
hann heföi virkilega ekki verið
með fréttina sjálfur. Nei hann
hafði ekki treyst sér til aö birta
persónulega ágiskun og missti
þannig af ,,scoop”-inu...
#Aldrei stendur á dagblööunum aö
segja skilmerkilega frá þvi, þeg-
ar kviknar eldur I húsi. Hitt vill
gjarna gleymast að eldsvoðum
fylgja oft sorgarsögur. Þannig
var þaö t.d., þegar bruninn varö
að Þingholtsstræti 23 á dögunum.
Þar brann og eyöilagöist gjör-
samlega heil ibúð, sem ung kona
hafði fest kaup á. Hún og fleiri
höfðu unniö ötullega að þvi að
gera ibúðina upp og daginn eftir
að bruninn varð ætlaöi hún að
flytja inn. Allt fuöraöi þetta upp.
Endurbygging mun kosta hátt i 40
milljónir. Bæturnar nema aðeins
broti af því...
# Það fer miklum sögum af mið-
stýringunni á Siglufirði um þess-
ar mundir og hvernig allar
ákvarðanir sem teknar eru fyrir
rikisfyrirtæki séu sóttar til
Reykavikur. Þannig er að til
stendur að mála verksmiðjuhús-
næði Sildarverksmiðja rikisins á
Siglufirði, og segja heimamenn
að fyrir skömmu hafi komið tveir
menn frá Reykjavik i þeim er-
indagjörðum einum að velja lit á
verksmiðjuna...
# Og úr þvi verið er að tala um
fiskimjölsverksmiðjuna á Siglu-
firði þá má nefna að staðið hafa
yfir miklar endurbætur á verk-
smiðjunni og verið þar að snur-
fusa allt og kippa i liðinn áður en
loðnuveiöarnar hefjast um mán-
aðamótin. Þessari vinnu átti að
vera lokið i siðasta mánuði en
ennþá mun vera svo langt i land
með að verkinu ljúki að heima-
menn telja það borna von að
verksmiðjan geti byrjað að taka á
móti strax og loðnuveiðarnar
hefjast. Samt segja Siglfirðingar
að þetta sé smámál miðað við
nýju fiskimjölsverksmiðjuna á
Skagaströnd. Hún er fullbúin, en
það á enn eftir að leggja til henn-
ar rafmagnið. Jslendingar eru
alltaf jafn fyrirhyggjusamir...
' # Sendiherrastaðan i Kaup-
mannahöfn hefur verið talsvert
til umræðu undanfarið og hefur
vakið athygli að Gyifi Þ. Gislason
hafnaði henni. Nú er haft fyrir
satt að Einar Agústsson, fyrrum
utanrikisráðherra hafi lýst veru-
legum áhuga á að fara til Hafn-
% Nú, þegar Albert Guðmunds-
son hefur lýst áhuga sinum á for-
setaembættinu, eru kunnugir
farnir að spá i hirð hans. Það þyk-
ir ljóst, að kosningastjórar hans
verða Pétur Sveinbjarnarson og
Ragnar Kjartansson hjá Hafskip,
þar sem Albert er stjórnarfor-
maður. Forsetaritari verður
væntanlega Lúðvig Hjálmtýsson,
i Ferðamálaráði, Gústaf Pálsson
i Tollvörúgeymslunni verður
væntanlega bilstjóri hans og allt-
muligmaður. Kristin Magnús-
dóttir móttökustjóri að Bessa-
stööum en sagt er að Jakob V
Hafstein verði af hirðstöðu að
þessVsinni...
# A Selfossi stendur yfir um
þessar mundir undirskriftasöfn-
un i þeim tilgangi að knýja á um
að gengið verði til kosninga um
það hvort opna skuli áfengisút-
sölu i kaupstaðnum. Undirtektir
hafa verið þokkalegar, en þriðj-
ung bæjarbúa þarf til að kosning-
in fari fram. Ein helsta röksemd-
in fyrir opnuninni ku vera sú að
hún færi bæjarfélaginu ómælda
tekjuaukningu, ekki bara vegna
prósentu af sölu áfengisins, held-
ur einnig, og ekki siður, vegna
þess að hingað til hefur það verið
auðsótt mál hjá húsmæðrum
staðarins að fá kallana meö sér til
Reykjavikur i Hagkaup á föstu-
dögum. Það hefur þótt góð afsök-
un til að bregða sér i Rikið. Kefi-
vikingar fundu fyrir þessu um
leið og rikið var opnað þar.
Þá hætti fólk að hlaupa i bæinn
eftir búsilagi, og þá fyrst fór
sjálfstæðurverslunarrekstur i
Keflavik að plumma sig..
# Helgarpósturinn hefur það
fyrir satt, að Benedikt Gröndal .-
utanrikisráðherrra, hafi ritað
bók um störf Alþingis. Byggir
Benedikt þar á 20 ára þingmanns-
reynsiu sinni. Marga fýsir að sjá
þessa bók á prenti, en á þvi verð-
ur einhver bið", þvi enn hefur ut-
anrikisráðherra ekki fengið út-
gefanda að bókinni. Hann mun
hafa leitað til eins eða tveggja út-
gefenda...
# Laxastiginn fini og dýri i Laxá
i Þingeyjarsýslu hefur verið
vatnslaus og þar meö laxlaus i
sumar eftir þvi sem Helgarpóst-
urinn hefur heyrt. Fara þar mikil
verðmæti I súginn en laxastiginn
mun hafa kostað allt að hundrað
milljónum. Nú er eina lausnin á
þessum vanda sögð vera að
stifla á nýjan leik til þess að fá
vatn...
ar...
SINDRA A STAL HF.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Bitajárn
Allar algengar stærðir
U.N.P. H.E.B. I.P.E.
LJ H I
Borgartúni 31 sími 27222
SINDRA A STÁL HF.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
svartar og
galvaníseraðar pípur
OQQoooo O °OOo
sverleikar: svart, 3/8 — 5"
galv., 3/8 _ 4"
Borgartúni 31 sími 27222