Helgarpósturinn - 12.10.1979, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 12.10.1979, Blaðsíða 3
—Jie/garposturinru Föstudagur 12. október 1979 3 hafi deilt um viöbygginguna. Seg- ir hún i framhaldi af þvi, aö nauö- synlegt sé aö hefjast handa um lagfæringar á húsinu, áöur en vetur gangi i garö. Kerfið á fullu 8. Borgarráö samþykkir á fundi sinum 4. september viöbygging- una margumtöluöu og vitnar jafnframt i samþykkt húsfriöun- arnefndar. Telur sig þó ekki geta fallist á aö friöunarkvööinni veröi aflétt af húsinu. 9. Byggingarnefnd fjallar laus- lega um máliö 6. september, en formaöur ráösins, neitar þremur nefndarmönnum um að taka málið til afgreiöslu. En á hverju hefur raunverulega staðiö? Hvers vegna hefur gengið jafn stirölega og raun ber vitni aö koma þessu, að þvi er viröist, ein- falda máli i höfn? Það er ljöst að mál þetta flækist nokkuö strax i upphafi, þegar húsfriðunarnefnd lendir i andstööu viö borgar- minjavörö og umhverfismálaráö. Nanna Hermannsson borgar- minjavörður sagði við Helgar- póstinn, að hún teldi að húsfriöun- arnefnd hafi ekki skiliö fyllilega, þegar þeir lögöu blessun sina yfir viðbygginguna, hvaö B-friöun húsa raunverulega þvddi. „Þetta var vinnuslys,” sagði Nanna. ^Wjá M,öto'(S6'ng'n "L'Tog netndum. hinum ÍH,SU r I,mtnerfism®'ata*1'.. ) í«W*^njf ui**1- b0t6atta(a 'íti —- 10. Hinn 12. september sendir Nanna Hermannsson minjasafns- vörður bréf til umhverfismála- ráðs, þar ;em hún skýrir frá þvi, aö henni hafi ekki tekist að kom- ast aö samkomulagi viö Þuriöi Bergmann um aö fyrirhuguö við- bygging yröi minnkuö. 11. Umhverfismálaráö synjar teikningu hússins, meö öllumat- kvæöum gegnu einu. Það geröist 12. september. 12. Byggingarnefnd synjar Þuriði Bergmann Jónsdóttur um aö breyta og stækka Þingholtsstræti 13 meö viðbyggingu samkvæmt þeim teikningum sem hún hefur lagt fram. Voru fjórir nefndar- menn sammála þvi aö leyfa ekki viðbygginguna, en þrir með þvi aö hún yrði leyfö. Fundurinn haldinn 13. september. 13. Borgarstjórn orðin vettvang- ur málsins. Sjöfn Sigurbjörns- dóttir leggur til að þessu máli veröi enn á ný visaö til bygging- arnefndar. Þaö samþykkt i borg- arstjórn. Gerðist þetta 20. sept- ember. 14. Byggingarnefnd tekur málið enn einu sinni fyrir á fundi sinum 27. september. Þar fellur erindi Þuriöar á jöfnum atkvæöum 3 - 3 (1 sat hjá). 15. Borgarstjórn á nýjan leik 3. október. Þá er þaö samþykkt aö borgarstjórn fyrir sitt leyti heim- ilar Þuriöi Bergmann aö byggja viðbyggingu við hús sitt Þing- holtsstræti 13 samkvæmt þeim teikningum sem hún hefur lagt fram. Samþykkt meö 10 atkvæö- um gegn fjórum. (Alþýöubanda- lagsmenn á móti). Borgarkerfið stíflast endanlega Nú var sú staöa komin upp á málinu, aö borgarstjórn og bygg- ingarnefnd greindi á. Þá gerðist þaö sjálfkrafa aö erindiö fór til félagsmálaráöherra. Borgarkerf- ið haföi sem sagt kastaö þessari 20 fermetra viöbyggingu milli húsfriöunarnefndar, umhverfis- málaráös, byggingarnefndar, borgarráös, og borgarstjórnar, auk f jölda embættismanna á veg- um borgarinnar í tæpa fjóra mán- uði. A meöan næddu vindar um húsnæöiö aö Þingholtsstræti 13. Eigandinn Þuriöur Bergmann Jónsdóttir segir um þennan biö- tima. ,,Mig haföi aldrei óraö fyrir þvi, aö svona nokkuö tæki eins langan tima og raun hefur boriö vitni. Baöherbergiö hefur staöiö nær opiö þessa mánuöi. Aöeins veriö tyllt járnplötum á þak þess og þar inn streymir vatn og ég óttast mjög aö vatniö nái I raf- leiöslur. Þá hefur nætt hér og blásiö. Hitaveitureikningur hér i húsinu hefur margfaldast af þess- um sökum.” ,,Ég held aö ef ég heföi náð að lýsa minum skoöunum i þessu sambandi fyrir húsfriöunarnefnd, áöur en hún tók afstöðu, þá heföi nefndin tekiö aöra stefnu i þessu máli. Ég var hins vegar erlendis þegar þetta kom fyrir húsfriöun- arnefnd, og tókst þvi ekki aö skýra mina hliö mála fyrir nefnd- armönnum.” Magnús Skúlason formaöur byggingarnefndar sagöi viö Helgarpóstinn: „Samþykkt húsfriöunar- nefndar var ekki tekin á faglegum grundvelli. Þar var ekki tekin ábyrg afstaöa til húsa- friðunar. Ég harma þaö mjög, aö það hafi komið til þess, aö I odda skarst milli þessara nefnda, þvi viö friöunarmenn þurfum á öllu okkar að halda.” //Kerfisstríð" Höröur Agústsson nefndar- maöur i húsfriöunarnefnd sagöi, ,,aö hér heföi kerfisstriö veriö á ferðinni og borgin tekið mjög klaufalega á þessu máli öllu”. „Viö tókum mjög faglega afstööu til þessa máls,” hélt Hörðuráfram,” og skoöuöum þaö frá öllum sjónarhornum. I þessum efnum sem öðrum mega menn ekki vera of einstrengis- legir. Fólkiö sem býr i þessum húsum hefur ákveönar þarfir og óskir og þaö þarf aö koma til móts viö þetta fólk. Ég óttast aö fólk veröi hrakiö úr þessum gömlu húsum, sem þurfa mikla umönnun, ef slfk einstefna er viö- höfö. Fók vill sem betur fer búa i þessum gömlu rótgrónu og menningarsögulegu húsum og það á aö hvetja til þess, en ekki hrekja það á brott meö stifni og þrákelkni. Viö verðum aö muna eftir þvi aö það er fólk sem býr i þessum húsum, eins og t.a.m. á Þingholtsstræti 13. Þaö hús er enginn safngripur. Það er alþýöu- heimili.*' Þuriður hefur endurbætt húsiö á Þingholtstrætinu mikiö siöan hún keypti þaö af borginni á 6 milljónir króna áriö 1976. Er hún tók viö þvi haföi borgin átt þaö um þriggja ára skeið. Var ekki búiö i húsinu sex árum áöur en Þuriöur kom til sögunnar. Var húsiö vettvangur róna og annarra útigangsmanna og mjög illa far- iö. Gólf fúin, vatnslögn ónýt engin skólplögn og ekkert heitt vatn. Þá var kjallari hússins hálffullur af vatni og raflögn ónýt. Allt þetta færöi Þurföur i samt lag og geröi húsiö ibúöarhæft. Var m. annars skipt um gólf i húsinu og er nú veriö aö endurnýja járn- klæöningu aö utan. Sökun kulda i húsinu hafa kvef- pestir sótt mjög á ibúa þess i sumar. 8 ára dóttir Þurlöar hefur veikst vegna kuldans og áttræö kona sem einnig býr þarna og ávallt veriö viö hestaheilsu hefur Þuriöur Bergmann Jónsdóttir I salernisskúrnum gegnumfúna og leka. Skúrinn er ónýtur og hann viil hún rifa og byggja i staðinn nýja viðbyggingu. einnig lagst veik vegna næöings- ins og kuldans frá baöskúrnum. Þetta hefur verið eins og i óþéttu hesthúsi segir Þuriöur. ,,Ég er búin að vera i start- holunum i allt sumar og beðiö eftir grænu ljósi frá yfirvöldum. Sonur minn ætlaöi aö vinna viö þetta f sumar meö trésmiöi, en hann hefur af augljósum ástæðum staöiö verkefnalaus, og varö af þessum sökum af annarri vinnu i sumar. Er þaö mjög baga- legt fyrir hann, þar sem hann er skólanemi og heföi ekki veitt af launaðri sumarvinnu. Ég hef ekkert getaö annaö gert, en beöið og beöiö lengur, á milli þess sem ég geng á milli embættismanna meö þetta erindi mitt. Og Þuriöur Bergmann Jóns- dóttir segir siöan: ,,Mér þykir vænt um þetta hverfi og vil ógjarnan flytjast héðan. Vildi lifa og deyja i þessu húsi. Ég er mikil friöunarmann- eskja i mér og vil varöveita þetta hús. Annað væri mér fjarri. En aö þessi viöbygging sem ég hef lagt til, skaöi útlit hússins að einu eöa ööru leyti, er viösfjarri. Þaö getur hver maður séö.” Bitbein kerfisins? Hefur Þuriöur Bergmann veriö bitbein kerfisins? Þingholtsstræti 13 er fyrsta húsiö sem hefur veriö friöaöB friöun, sem þýöir aö ytra útlit eöa hluti hús er friöaöur, og er jafnframt i einkaeign. Má þvi ætla hér séum prófmál aö ræöa. Hefur eigandi hússins og Ibúi litinn sem engan rétt? I þessu tilviki var ekki aö ræöa um húsiö sjálft eins og þaö var i sinni upp- haflegu mynd, heldur skúra sem voru byggðir við húsiö af van- efnum mun siöar. Teikning sú sem eigandi lagöi fram, var þannig aö viöbyggingin sæist alls ekki frá götu, svo ytra útlit hús- sins heföi ekki breyst i neinu, þar sem baklóðin er umkringt háum húsum á alla vegu. Magnús H. Magnússon, félags- málaráöherra fékk umrætt bréf frá borgarráöi ekki fyrr en i gær. Hann tók þá ákvöröun samdæg- urs i samráöi við skipulagsstjóra rikisins aö leysa mál Þuriöar og heimila henni þessa viöbyggingu. Hún fær þvi vonandi klósettiö sitt strax I næstu viku. Litla stórmáliö ætti þvi loks aö vera i höfn. eftir Guðmund Arna Stefánsson — myndir: Friðþjófur Verzbnarbanldm í Umferöarmiðstöðinni 12. október breyttist hin almenna afgreiðsla Verzlunarbankans í Umferðarmiðstöðinni í úti- bú með öll innlend bankaviðskipti og sjálfstæða reikninga. Verið velkomin til viðskipta við útibú okkar mið- svæðis í alfaraleið þar sem bflastæði eru þó ætíð til staðar. UTIBUIÐ UMFERÐARM1ÐST()Ð1NN1

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.