Helgarpósturinn - 12.10.1979, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 12.10.1979, Blaðsíða 11
11 —JielgarpOStuhnrL. Föstudagur 12. október 1979 Halli og Laddi ætia aö hvfla bæði sjálfa sig og aftra fram aö áramótum. Þeim veitir liklega ekki af, þvi átakalaust gengur þaö ekki fyrir sig þegar þeir taka sig til, eins og sjá má á þessari mynd, sem var tekin þegar þeir voru I landreisu meö Brimkló i sumar. HALU OG LADDI I FRÍI Halli... Við ætlum aö taka þaö rólega fram aö áramótum, bæöi til aö endurnýja okkur, hlaöa okkur upp á nýtt, og hvfla bæöi okkur og alla hina, segir Haraldur Sigurðs- son sölumaöur. Betur þekktur undir nafninu Halli - bróöir Ladda. En hann lofar þvi, að þegar „Halli og Laddi” koma fram á sjónarsviöið á ný um áramót verði þeir með splunkunýtt prógram, sist verra en hin fyrri. En að sjálfsögðu var ekki mögu- legt að fá hann til aö kjafta frá væntanlegum uppátækjum þeirra bræðra. Nei, nei, við erum alls ekki orðnir leiðir á þessu. Ef svo væri gætumviðekki haldið þessuáfram. En þvi er ekki að neita, að það koma alltaf þeirdagar, að maður verður hundleiður á þessu. En ég er sannfærður um að þti verður sjálfur hundleiður á blaða- mennskunni af og til, segir Halli. Og við fórum ekki lengra út i þá sálma. En hvaö eruð þiö aö bardúsa um þessar mundir? Ég er nýkominn frá útlöndum. Var i frii að slappa af í heljar- greipum fjölskyldunnar, og er eiginlega ekki byrjaður á neinu sérstöku ennþá. Þó verð ég eitthvaö með skrýplana i haust, m.a. i barnatima sjónvarpsins. Hinsvegar verður Laddi með einhverja sjónvarpsþætti i vetur. Þaö eru liklega ekki margar fristundirnar i þessum bransa? Nei, þaö er óhætt að segja. Siöan viö byrjuðum að koma fram opinberlega, árið 1973, má segja aö frihelgar okkar megi telja á fingrum sér kannski aö viðbættum eins og tveimur tám. Áöur en ég sleppi þér og slæ á þráöinn til Ladda langar mig aö spyrja þigaö einu. Þú ert skráöur sölumaöur í simaskránni. Hvaö seluröu? Það er nú einna helst að égselji okkur bræðurna. Annars var ég i mörg ár einn af þessum „tösku- sölumönnum”, eins og Svavar Gestsson kallar þá. Ég var með fyrirtækið Haraldur Sigurðsson h/f og flutti meðal annars inn snyrtivörur. Núna er þetta eigin- lega hobbi hjá mér. Ég hef þetta i rassvasanum og kjallaranum og flyt inn sendingu og sendingu öðru hvoru, segir Haraldur Sigurðsson sölumaöur alias Halli. ... og Laddi Það er nú eiginlega þess vegna semvið ætlum aö taka þetta rólega til áramóta. Við erum orðnir svo- litið þreyttir á þessu, segirLaddi, þegar við sláum á þráðinn til hans og spyrjum hvot hann sé ekki farinn aö þreytast á trúöleikum þeirra bræðra. Við verðum sérstaklega þreyttir á að flytja skemmtiþætti á venju- legum böllum. Þar ræður fólk sér ekki fyrir fyllirii, nennir ekki að þegja og er alltaf að gripa frami, Það er þó skárra að syngja, og lokuðu samkvæmin eru mun betri. Það var þetta með sjónvarps- þáttinn, sem Halli sagöi mér frá. Þetta er frumraun þin á þeim vettvangi, er ekki svo? Ég hef unniö að sjónvarps- þáttum meö fleirum, en það er rétt, að þetta er i fyrsta sinn sem ég stjórna sjónvarpsþætti einn. Ég er að vinna að þessu núna, og hef ekki gengið endanlega frá þvi hvernig þetta verður. En ætli það verði ekki svona i minum stil - margir smáþættir og einhver músikk, og ég fæ ýmsa skemmti- krafta, meira og minna þekkta, mér til aðstoðar, segir Laddi. Þátturinn hefur heldur ekki fengið nafn, en sá fyrsti fer Ut á öldur ljósvakans fyrsta vetrar- dag, 27. október, og takist hann vel verða þeir fleiri. Fram að áramótum verður það sem sé annaðhvort Halli eða Laddi - „Halli og Laddi” taka sér fri - eða gefa fólki frl, allt eftir þvi hvernig á málin er litið. eftir Þorgrim Gestsson Jón Hjartarson meistari Þórbergur endurborinn? „EIGUM ÝMISLEGT SAMEIGINLEGT - EN MIG SKORTIR GENIALITETIÐ 77 — Þaö er ekki fráleitt aö segja, aö einhverjir þættir séu sameigin- legir meö okkur Þórbergi, þó ekki væri annaö en þessi meöfædda sveitamennska og kannski hef ég eitthvaö af barnalegri og opin- eygrieinfeldnihans. En égreikna meö, að mig skorti eitthvert genialitet, sem var hinn megin- parturinn af upplagi hans. Það er Jón Hjartarson leikari sem lýsir þannig andlegum skyldleika sinum við Þórberg Þórðarson, en um þessar mundir býr hann sig undir aö túlka meistarann á sviði Iðnó. Verkið sem um ræðir er leikgerð Kjart- ans Ragnarssonar á Ofvitanum sem liklega er fysta leikverk þar sem fjallað er um persónu þjóð- kunns Islendings sem er ný lát- inn, og margir muna. En hvernig ætli það fólk, sem þekkti meistara Þórberg i lifanda lífi — og yfirleitt þeir sem hafa sterkar taugar til hans og verka hans — hvernig ætli þetta fólk bregðist við, þegar hann birtist ljóslifandi á sviði Iðnó? Það hefur sýnt sig, að ýmsir eru viðkvæmir fyrir þvi, þegar „óviðkomandi persónur” fara að hrófla við minningu látinna manna — á prenti eða með öðrum opinberum hætti. — Fólk er kannski viðkvæmt fyrir verkum manna, sem eru rétt nýlega burtsofnaðir. En við höfum algjörlega leitt það hjá okkur. Ég vona bara að kallinn hefði haft gaman af þessu — hann var svo mikill spéfugl sjálfur i blandvið alvöruna, að hann hefði sjálfsagt gefið okkur góð ráð. Það hafa margir upplifað verk Þór- bergs, og hafa sinar hugmyndir um þau. Það verða þvi liiriega ekki allir sammála túlkun okkar á honum. En fólk getur haft sinar skoðanir og það er óþarfi aö láta svona verk i friði fyrir leikhUsun- um. Það segir okkur svo mikiö um þessa skemmtilegu Reykja- vik, sem hefur vissulega haft sjarma á þessum árum, sem Of- vitinn fjallar um —en svelti lika marga si'na bestu syni, segir Jón. — HvernigÞórbergfáum við að sjá á fjölum Iðnó? — Þetta verður ekki Þórbergur endurborinn. Það er heldur ekki til þess stofnaö. Ég verö aldrei annað en leikari að leika þessa persónu, en geri ekkert i þvi að herma eftir honum. Enda veit ég Jón Hjartarson (til vinstri) og Emil Gunnarsson f hlutverkum „Þórberganna” hinn fullþroskaöi rithöfundur Þórbergur og „ofvitinn” Þórbergur á unglingsárum sfnum. ekki hvernig fas hans var, þótt ég reyni að gera mér grein fyrir þvi eftir segulböndum með rödd hans, filmubútum með honum, fólki sem man hann og þeim texta sem ég hef. En það er gefið mál, aðviðerum að einhverju leyti in- spíreraðir af tilveru hans og verkum — og sjálfur var hann mikið fyrir það að leika. — Hvernig finnst þér að leika Þórberg? — Mér finnst það mjög gaman að vinna að þessu. Það er oft þannig þegar maöur er að fást við verk sem gerast I islensku umhverfi, og svo er textinn náttúrlega afar skemmtilegur. Það tekur líka margt fólk þátt i sýningunni og æfingarnar eru þessvegna lifleg- ar. — Þaðermikill kjarni i þessum texta, og hann einn ætti að geta bjargað okkur frá „slepju og aumingjaskap”,eins og Þórberg- ur kemst sjálfur aö oröi. Þetta verður aldrei það „sentimen- tal;l”, að hann rifi sig ekki upp úr þvi með svolitilli hæðnislegri skvettu. Hann getur reyndar orð- ið býsna rómantiskur, en tekst einhvernveginn að læða með hressilegri kimni. Það mætti kannski kalla hann „andróman- tiskan rómantiker”. — Hvernig finnst þér Kjartani hafa tekist að koma Ofvitanum á svið? — Ég heid að hann hafi ratað á þá einu réftu leið sem hægt var aö hugsasér i grundvallarbyggingu verksins; að hafa Þórberg i tveimur persónum. Annarsvegar er fullmótaður rithöfundur aö segja frá æsku sinni, hinsvegar hinn ungi Þórbergur. Þeir hafa stöðugt samband sin á milli, og strákurinn upplifir þá atburði, sem meistarinn segir frá — leiðir fram á sviðið. Meistarinn er fyrst og fremst sögumaður, en blandar sér jafnframti atburðina oftátið- um — lifir og hrærist innanum verkið. Það er Emil Gunnarsson, ný- lega Utskrifaður úr leiklistar- skóla, sem fer með hlutverk hins unga Þórbergs. Jón túlkar meistarann eins og við þekkjum hann flest — bókina skrifaði hann á fjórða áratugnum. — Hannhefur verið um fertugt, eða ivið eldri en ég er nú, segir Jón Hjartarson. — En mér finnst hann hafa ver- ið aldurslaus. Hann varö snemma kallalegur og breyttist fjandann ekkert i fasi og framkomu eftir það. Aldurinn ætti þvi ekki að valda mér neinum erfiöleikum. Þetta segir Jón Hjartarson leikari, sem fær tækifæri til þess, ásamt Emil Gunnarssyni, að sýna hversu mikill Þórbergur býr i honum. Sú eldraun hefst undir lok mánaðarins, þegar „Ofvit- ,nn” verður frumsýndur i Iönó. — ÞG Norræn menningarvika 1979 ■ ■ <■ kÉÉUl Laastiiss., - Tónleikar laugard. 13. okt. kl. 20:30. ELSE PAASKE (alt) ERLAND HAGEGAARD (tenór) FRIEDRICH GURTLER (pianó) Á efnisskránni eru verk eftir Schumann (Frauenliebe und -leben) Sibelius, Mahler og Purchell. Tónleikar með verkum eftir JÓN LEIFS sunnud. 14. okt. kl. 20. Flytjendur: Guðný Guðmundsdóttir, Halldór Haraldsson, Félagar úr Fóstbræðrum (stj. Ragnar Björnsson), Kammersveit Reykjavikur (stj. Páll P. Pálsson) og Hamrahliðarkórinn (stj. Þorgerður Ingólfsdóttir). Veríð velkomin NORRÆNA HÚSIÐ

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.