Helgarpósturinn - 12.10.1979, Side 19
helgarpásturinn Föstudagur 12. október 1979
19
Nóg að heyra
ÞaB hellast yfir tónleikarnir
og sér ekki högg á vatni, þótt
Hermann Prey forfallist og
fresta verði tveim þeirra.
Gítarar.
Ifyrri viku lékuþeir Siegfried
Koblizi og Sfmon H. ivarsson
sigilda spænska gitartónlist i
Norræna húsinu. Einhverjir
munuhafabúist viö, að nú gæfi
aö heyra trylling og tæting, þvl
að á okkar öld hefur gitarinn
óspart verið nýttur i þágu þeirr-
ar ærustu, sem ætlað er að
brjála mannfólkið i sinnuleysi
daginn út og inn, svo það verði
meðfærilegra. t þessu skyni hef-
ur gitarinn m.a. verið rafur-
magnaður.
En meistari Segovia sagði i
sambandi við bitlana:
„Rafmagnsgi'tarar eru
viðbjóöur. Hver hefur nokkru
sinni heyrt um rafmagnsfiölu?
EBa rafmagnsselló? EBa ef útl
það er fariö, rafmagns-
söngvara?”
Hvað sem þessum ummælum
liður, munar litlu, að manni
bregði viö aö heyra svona hóg-
legaoghárfintspilaðá gitar. Og
spænska músikin var ekki
heldur sú, sem á okkar dögum
hefur verið blásið út aö túlkaði
sérspænskan blóöhita og
ástriður og væri einkar hentug
til að seiða og forfæra konur.
En þessi gitarmúslk á þó að
hafa verið fullboðleg til sama
brúks á sfnum tima, eftir þvi
sem 16. aldar skáld segja. Og
það þurfti ekki aö fara framhjá
neinum, sem hlustaði á þá
Simon og Siegfried, þóttaðrir og
djUptækarieiginleikar þessarar
þjóðlegu tónlistar létu meir á
sér bera.
Gitarinn mun hafa borist til
Spánar meö Márum á miðöld-
um, og elstu þekktar tónsmiðar
fyrir hann (4ra strengja) eru
prentaðar 1554. Og svo aftur sé
vikiö aö kvenþjóðinni, þá er til
spænskur málsháttur, sem
hljóðar nokkurnveginn á þessa
leið: Það gilda sömu notkunar-
reglur fyrir kvenmenn og
gitara, menn veröa að kunna að
stilla þá.
Fiðla og pianó
Það er ekki nema ailt fagurt
að segja um fiðluleikarann Hlif
Sigurjónsdóttur og tónleika
hennarog Ikk Sjú MUná laugar-
daginn var.
Fiðlusónötur Beethovens
(1770—1827) eru iheild naumast
af alveg sama gæöaflokki og
pi'anósónöturnar. Einhvern veg-
inn virðist áslátturinn honum
hugstæðari fyrir einleik, enda
standa leikar 32:10 fyrir
pfanósónötur og 5:1 fyrir pianó-
konserta móti fiölukonsert.
Engu að sfður eru þrjár af
fiðlusónötum hansauövitað með
þvi besta, sem samið hefur
veriðaf þessari tegund. Kreutz-
ersónatan op. 47 er þeirra
frægust, en auk hennar op. 30 og
svo op. 24, sem stundum er köll-
uö Vorsónatanog nú var einmitt
leikin. Mikið jafnrétti rikir hér
milli hljóðfæranna beggja, og
ekki þori ég að setja útá flutning
þeirra hjUa og langar heldur
ekkert til þess.
A eftir fiðlusóló i partítu
Bachs (1685—1750) i d-moll kom
svo sónata Césars Franck
(1822—1890). Þessi belgiski lár-
viðarorganisti af þýskum ætt-
um, sem starfaöi I Paris, reyndi
yfirleitt aö samræma hina
þýskuogfrönsku tónlistarstefnu
ásbl. 19. aldar. Þetta verkhans
er af hinu glaðværa rómantiska
taginu og er ásamt sónötum
Brahms (1833—97) ein af fáum
19. aldar fiðlusónötum eftir
daga Beethovens, sem enn
halda vel velli.
Maður og pianó
Siðan hefst norræn menn-
ingarvika og Jorma Hynninen
reynist harla hressilegur
baritón baktryggður af Ralf
Gothóni.
Hann byrjaði á Feröasöngv-
um eftir enska þjóöernissinnan
Ralph Vaughan Williams
(1872—1958) við texta eftir
Robert L. Stevenson. Ensk
hljómsalamúsik hafði i hálfa
aðraöld eða frá dögum Purcells
(1659—95) mestmegnis veriö
endurómur af þýskri og Italskri
tónlist. Vaughan Williams vildi
klippa á þessi tengsl og skapa
meiriháttar þjóðlega enska
músik. Hann fór straxum alda-
mótin að safna enskum þjóðlög-
um og vinna Ur þeim. Hann gat
gengiö svo langt i þjóðrembunni
að kalla tónlist Verdis „gamalt
Italskt gaul” og segja um
Gustav Mahler, að hann væri
svo sem „viðunandi eftirliking
af tónskáldi”.
En hann sagði lika um
mannsröddina, að hún væri elst
allra hljóðfæra og hefði ekki
breyst um aldir. HUn væri I senn
hið frumstæðasta og nútimaleg-
asta, enda nærfærnasta
tjáningarform mannsins.
Jorma fór rétt þokkalega með
þessa Songs of Travel, en
færðist allur i aukana, þegar
kom að landa hans Yrjö
Kilpinen (1892-1959). Þessi tón-
smiður er vist ekki ýkja kunnur
hérlendis, en hann hefur verið
ljóðsöngvakóngur Finna á
þessari öld. Og I þessum
söngvum skildi maður, hvað
Jorma var að fara, þótt ekki
skildist eitt einasta orð nema
kannski Millh maksan
maammon maion. Enda söng
hann af talsverðum hita.
Breyting andrúmsloftsins frá
ensku lögunum yfir I þau
finnsku minnti raunar
duggunarlitið á það, þegar
Islendingar og Finnar á sam-
norrænum fundum rotta sig
saman i móttökum, af þvi þeim
liður illa innanum allt þetta
skanódaniska mállýskubabl.
Þar úti hornum geta þeir gert
sig skiljanlega hvor öðrum á
hinni taktföstu finnsk-sænsku
ellegar notast bara við ,,skál„
og „kippis”.
Ég held við geymum gamla
Sibelius til betra næðis, en
nokkrum orðum verður aö fara
um sföasta ljóðameistarann á
efnisskránni, austurrikis-
manninn Hugo Wolf (1860-1903).
Hann hlýtur að teljast mestur
þeirra af þýsku bergi — á eftir
Schubert (1797-1828) og
Schumann (1810-1856).
Hugo var harla óstýrilátur
eldhugi á ýmsa vegu, tolldi illa I
tónlistarskóla og var ofstækis-
fullur dýrkandi Wagners, en
fjandmaður Brahms. Kom þetta
ekki sist fram i eitruðum, en litt
yfirveguðum skrifum hans sem
tónlistargagnrýnanda á yngri
árum, sem auðvitaö uröu eftir-
sótt lestrarefni.
Hann vann yfirleitt 1 skorpum
og lauk löngum söngvaflokkum
við ljóö stórskálda á nokkrum
vikum eða mánuöum. Þess á
milli lá hann i þvi með eftir-
fylgjandi þunglyndis- og sjálfs-
fyrirlitningarköstum, sem við
túristar þekkjum. Siðan reis
hann upp á ný svo fullur af
sjálfstrausti, að hann veigraði
sér ekki við að semja lög við
sömu ljóð og þeir Schubert eða
Schumann höfðu gert áður.
Hugo varð ekki langlifur
fremur en þessir fyrirrennarar
hans og dvaldi reyndar 6 siðustu
æviárin á spitala með sambland
af sjúkdómum þeirra beggja.
En á sinum bestu stundum var
sem honum tækistað lifa sig svo
inn i sál ljóðskálda, að fullkom-
inni einingu ljóðs og lags virðist
náð. Mörg kvæði, sem áður
þóttu fullgóö af eiginverðleik-
um, verða vart lesin án innra
söngs, a.m.k. siðan Hugo Wolf
tónskreytti þau.
Jorma söng 5 stykki af 51 úr
von Eichendorff-ljóöaflokknum
og fór oft á kostum. Einkum
skal tiltekiB lagið Heimþrá, sem
að visu hefur óvenju mikinn
farnað af sjálfu sér.
Skuggsjá sendir frá sér
20 bókatitla í bókaflóðið
Pælingar og léttrokk
Bókaútgáfan Skuggsjá sendir
frá sér i haust hvorki meira né
minna en 20 bækur. Af þcim eru
reyndar fjórar bækur heildarUt-
gáfa á verkum Einars Benedikts-
sonar.
,,L jóðasafn I-IV” er i handhægu
broti, ekki ósvipuðu frumUt-
gáfunni. Kristján Karlss. sem
annaöist Utgáfuna, ritar formála
að fyrsta bindi. I þvi er einnig
m.a. Kvæði, Ur Kvæðum og
sögum. I öðru bindi er m.a. aö
finna Hrannir og Voga, i þriðja
bindi ritgerðSigurðar Nordal um
Einar og ritgerð Guðmundar
Finnbogasonar um skáldskap
hans, og i' fjóöa bindinu er Pétur
Gautur, auk ýmissa kvæða og at-
hugasemda, sem ekki voru i
frumUtgáfunum.
Asgeir Jakobsson hefur skráð
„Tryggva sögu Ófeigssonar”,
sem er mikil bók aö vöstum og
rikulega myndskreytt. „Syrpa Ur
handritum Gisla Konráðssonar”
hefur að geyma safn þjöðsagna
hvaöanæva að af landinu, en l
bókinni „Undir merki llfsins” eft-
ir dr. Vilhjálm Skúlason, er
fjallaö um störf heimskunnra vis-
indamanna. I bókinni eru 20
mannamyndir eftir Eirik Smith
listmálara.
„Frá Hllðarhúsum til Bjarma-
lands” er endurprentun
minningarbókar Hendriks Ottós-
sonar, en hún hefur verið ófáan-
leg i áratugi. 1 bókinni segir
Hendrik frá æskuárum sinum i
Vesturbænum i upphafi þessarar
aldar.
Þá sendir Skuggsjá frá sér
þriöja og siðasta bindið i bóka-
flokknum „Móðir min — hús-
freyjan”,sem GIsli Kristjánsson
ritstjóri hefur séð um. I þessari
bók rita sextán Islendingar um
mæður sinar.
„Umleikinn ölduföldum” eftir
Játvarö J. Júliusson er hinsvegar
sagalönguliðinna tima og spann-
ar yfir tvær aldir, eða sex kyn-
slóðir. Fyrirferöamesti þáttur
þessarar bókar fjallar um Eggert
Ölafsson I Hergilsey og þrjár kon-
ur hans, heitkonu og tvær barns-
mæður.
„Sýnir á dánarbeði” eftir
Erlend Haraldsson og Karlis Osis
fjallar um dauöann og það aö
deyja, og er byggð á rannsóknum
og viðtölum viö hundruð lækna og
hjúkrunarfólks. „Að sigra óttann
og finna lykil lifshamingjunnar”
eftir Harold Sherman fjallar
hinsvegar um hugrænar aðferöir
til aö opna fyrir aukabirgðir af
skapandi lifsorku, sem kvað búa
með hverjum manni. Takist
manni að nýta þessa orku er lifs-
hamingja, sigur á óttanum, innri
friður, jafnvægi og hamingja
tryggð að sögn höfundarins.
Gunnar M. MagnUs hefur skráð
samtalsþætti við Unu Guðmunds-
dóttur i' Sjólyst I Garöi, „Völvu
Suðumesja”, þar sem hUn segir
frá dulrænni reynslu sinni, m.a. i
gegnum si'ma.
Þá hefur Skuggsjá Ut tvær svo-
nefndar „háspennusögur”. Báðar
eru þær norskar og fjalla um
baráttu Norömanna gegn nasist-
um i seinni heimsstyrjöldinni.
Onnur heitir „Barátta Milorg D
13” og er eftir Kjell Sörhus og
Rolf Ottesen, hin „Teflt á tvær
hættur”, eftir Per Hanson.
Þá skulu taldar til þrjár nýjar
bækur i bókaflokknum „Rauðu
ástarsögurnar”. Þaö eru
„Hamingjan handan hafsins” eft-
ir Else-Marie Nohr, „Ekkjan
unga” eftir Margit Söderholm og
„Grýtt er gæfuleiöin” eftir Sigge
Stark. Loks má nefna tvær
skemmtisögur, sem eftir
nöfnunum að dæma eru þó ekki
siður ástarsögur en hinar fyrr-
töldu: „Leyniþræöir ástarinnar”
eftir Theresu Charles og „Tvifari j
drottningarinnar” eftir Barböru
Cartland.
Wajda í Fjalaketti
NU stendur yfir á fullu sala
Fjalakattarins á vetrarkortum.
Tvær myndir hafa þegar veriö
sýndar á þessu starfsári á vegum
klúbbsins og sú þriðja, Aiit er f alt,
verður núna um helgina.
Þetta er mynd pólska leikstjór-
ans Andrzej Wajda, þess sem
væntanlegur er á kvikmynda-
hátiðina á næsta ári. Wajda er
vafalitið þekktasti og virtasti
leikstjóri Pólverja, og sérstak-
lega er hann þekktur fyrir sam-
starf sitt með leikaranum Cy-
bulski, sem lést af slysförum I
blóma lifsins. — GA
Ciiff Richard
& Shadows
SU var tiðin er Cliff Richard &
Shadows trylltu flestar piur undir
og yfir tvitugu uppúr skónum. Nú
eru þessar plur orðnar mömmur
(og sumar ábyggilega ömmur) og
sjálfsagt litið I djamminu lengur
(Ó, hve glöð varvor æska!). En
Cliff Richard & Shadows láta
engan bilbug á sér finna og eru
enn sömu „rokkuðu unglingarn-
ir” og þeir voru fyrir rúmlega 20
árum, þegar Cliff kom fram sem
svar breta við Presley Bandarikj-
anna. Og enn eruþeir nokkuð tlðir
gestir I efstu sætum vinsældar-
listahna. NU slðast Cliff með plöt-
una Roch’n Roll Juvenile, sem
geymir lagið We Don’t Talk
Anymore, og Shadows meö String
Of Hits, sem selt aðallega útá Ut-
gáfu þeirra af Theme From Deer
Hunter.
Rock’n’Roll Juvenile
inniheldur tólf lög, flest samin af
Terry Britten, en Cliff samdi
sjálfur titillagið.
String Og Hits, inniheldur,
svosem titillinn ber með sér, 12
vinsæl lög undanfarinna ára ss.
Riders In The Sky, Bridge Oven
Troubled Water, You’re The One
That I Want, Don’t Cry For Me
Argentina og Theme From The
Deer Hunter, svo einhver séu
nefnd.
Santana — Marathon
Allt frá þvi Carlos Santana kom
fram meö hljómsveit sina á
Woodstockhátiöinni fyrir 10 árum
siöan hefur hann verið eitt
stærsta nafnið i heimi
rokktónlistarinnar. NU er ný
plata frá honum ab koma á mark-
aðinn og heitir Marathon.
Marathon er beint framhald
plötunnar Inner Secrets sem kom
út I fyrra, og boðaði nýja og meira
„commercial” stefnu Santana.
Og þarsem sú plata náði miklum
vinsældum, má búast viö þvi að
sama veröi uppá teningnum með
Marathon.
Þær breytingar hafa orðið á
skipan Santana að Greg Walker
söngvari er hættur, en I stað hans
kominn Alexander J. Ligertwood,
sem einnig leikur á gitar. Að öðru
leyti eru sömu menn i hljómsveit-
inni og á Inner Secrets.
Sem fyrr segir er Marathon á
sömu linu og Inner Secrets, nema
aö minna er um utanaökomandi
lög, reyndar engin. öll lögin á
Marathon eru eftir Santana og
félaga.
MIKE Batt — Tarot Suite
Mike Batt — sem er einn
merkasti rokktónlistarmaður
breta seinni ára — var að senda
frá sér aðra sólóplötu sina, og
kallar hana Tarot Suite.
Nú hafa sjálfsagt margir aldrei
heyrt Mike Batts getið, hvað þá
að hann sé merkilegur músikant.
En það kemur til af þvi aö hann
hefur starfaö mest af ferli sinum
„aö tjaldabaki” ef svo má segja,
aöstoöaB fólk, en litið veriö
sjálfur i sviðsljósinu. Meðal
þeirra sem hann hefur samiö lög,
útsett, stjórnað upptökum, og
spilar fyrir má nefna Family,
Steeley Span, Elkie Brooks,
Lindu Lewis, Troggs, David
Essex og Art Garfunkel. Einnig
hefur hann samið tónlist fyrir
sjónvarpsþætti og sfeð um útgáfu
popptónlistar i sinfóniubúningi.
Fyrsta sólóplata Mike Batts,
Schizophonia, kom út fyrir tveim-
ur árum og hlaut mikið lof hjá
hljómplötugagnrýnendum.
Tarot Suite er samfellt verk
sem speglar i tónlist hugmyndir
Mike Bratts um tarotspilin. En i
staö þess aö túlka tónlistarlega
sérhvert af hinum 21 aðalspilum
útaffyrir sig, spinnur Mike Batt
sögu sem sameinar þau. Tarot-
svitan fylgir örlögum manns, sem
stendur fyrir Bjálfaspiliö (The
Fool), á ferðalagi hans gegnum
lifið.
Margir kunnir hljóðfæraleikar-:
ar aöstoða Mike Batt við flutning
Tarotsvitunnar ss. söngvararnir
Colin Blunstone og Roger Chap-
man, gitarjeikararnir Chris
Spedding og Rory Callagher, stál-
gitarleikarinnB. J. Cole, og fleiri,
að ógleymdri Sinfóniuhljómsveit
Lundúna. Sjálfur leikur Mike
Batt á öll hljómborðin og syngur.
Þó Tarotsvitan sé samfellt
verk, þá eru nokkur lög á þessari
plötu sem geta staðið ein og sér og
fariö inná vinsældarlistana, og
ber þar hæst lagiö Run like The
Wind, en Losing Your Way In The
Rain og Lady Of The Dawn fylgja
fast á eftir.