Helgarpósturinn - 19.09.1980, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 19.09.1980, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 19. september 1980. —JielgarpósfurínrL. Blökkumaður á Bslandi: ff Viltu hjálpa mér um vinnu?” Flestir sýna kurteisi og hlýlegt viðmót En er frjálslyndi okkar í kynþáttamálum aðeins á yfirborðinu? eftir Guðmund Árna Stefánsson myndir: Valdís Óskarsdóttir Við tsiendingar höfum ætið litið á okkur sem frjálslynda og um- burðarlynda i samskiptum viö út- lenda, hverju nafni sem þeir nefnast, eða hvaða hörundslit þeir kunna að bera. En er djúpt á þessu frjálslyndi í kynþáttamál- um? Þarf rétt aðeins aö skafa ofan af yfirborðinu og Jiá kemur i ijós allt annað og herskárra við- mót gagnvart fólki af öðrum kynþáttum en i orði er látiö. ,,Svo iengi sem þeir káfa ekki upp á mig eða mina, þá mega þeir koma hingaö” sagöi einn viðmæl enda Helgai póstsins, þegar hann var spurður um afstöðu sina tii mögulegrar fjölgunar fólks af guium, svörtum og brúnum kynþáttum hér á landi. „Mér er alveg sama, meðan þeir láta mig i friði”, sagöi þessi sami maöur. Þessi skoðun er ekki ólik þeirri, sem kom fram hjá móður ungu stúikunnar, sem haföi ætið verið jafnréttismaður i kynþátta- málum og verið baráttumaöur fyi ir auknum réttindum negra og annarra minnihlutahópa. Heldur betur kom þó annaö hljóð i strokkinn, þegar dóttirin unga kynnti sinn væntanlega eigin- mann fyrir fjölskyldunni. Hann var þeidökkur á brún og brá. Frjálslyndi móðurinnar og bar- átta hennar fyrir jafnrétti allra kynþátta var þá fyrir bi. Hún lagðist alfarið gegn þvi aö dóttir sin mægðist þessum manni. Hann væri dökkur og þar af Ieiöandi með annan þankagang. Þennan ráðahag myndi hún aldrei sættast á. En í framhaldi af þessum vangaveltum, gerði Helgarpóst- urinn örlitla athugun 'á þvi, hvernig þeldökkum körfuknatt- leiksmönnum, sem hingaö hafa komið á siðustu fimm árum hefur vegnaö hér á landi. Hvort þeir hafi orðið fyrir aðkasti vegna hörundslitar sins, eða hvort islendingar hafi I raun lifaö eftir hugsjón sinni um bræðralag allra manna? Hlýtt viðmót Þeir eru orðnir ófáir Bandarikjamennirnir sem hafa komið hingað upp til að leika i körfubolta á siöustu árum. Um það bil helmingur þeirra — 10—15 talsins — hafa veriö svartir á hör- und. Kolbeinn Pálsson, sem um árabil lék körfuknattleik með KR og varð siðan formaður stjórnar körfuknattleiksdeildar félagsins, sagðist hafa kynnst allvel flestum þeim körfuboltamönnum sem KR-ingar hafa fengið til liösins. „Hjá okkur KR-ingum hafa verið fjórir blökkumenn á siöustu ár- um,” sagöi Kolbeinn, ,,en aðeins eitt ár i senn. Ég hef nú sjálfur unnið við hlið svertingja úti i Bandarikjunum og veit að þar ytra eiga þeir á stundum erfitt uppdráttar og þvi kom það mér þægilega á óvart hve viðmót ís- lendinga var hlýtt og kurteislegt i garð þeirra. Raunverulega voru viðbrögðin hjá landanum alveg furöulega góð, þegar til þess er litið að blökkumaður er ekki al- geng sjón hér á götum höfuö- borgarinnar og menn snúast stundum alveg ósjálfrátt mjög harkalega gagnvart öllu nýju og óþekktu.” Kolbeinn sagði siöan, að hann myndi vel eftir því þegar fyrsti blökkumaðurinn kom hér á veg- um körfuboltamanna. Það var árið 1975. Sá var nefndur „Trukk- urinn” vegna hæðar sinnar og þyngdar. „Ég var mikiö með „Trukknum” fyrstu dagana hans hér á meðan hann var aö venjast lifsmáta Islendinga. Fór t.d. með hann i laugina og við sátum sam- an i heitu pottunum. Þaö fór ekki hjá þvi að mikið væri rætt um manninn i pottunum, þar sem við sátum, en engar heyrði ég raddir i þá átt, að þarna væri eitthvað ógurlegt á ferðinni — eitthvaö sem Island þyrfti að vera laust við.” Það eru orð að sönnu að Islend- ingar vegna landfræðilegrar ein- angrunar sinnar eru ekki vanir þvi að berja augum á hverjum degi, hvaö þá oft á dag, fólk með annan húðlit en hvitan. I gegnum árin hefur það venjulegast verið viðkvæðið; þegar sést hefur blökkumaður á götum borgar- innar, að þar hljóti að fara túristi eða varnarliösmaður af Keflavik- urflugvelli. Viöa úti i heimi og má nefna England þar sérstaklega, hefur það hinsvegar mjög færst i vöxt að verkafólk langt að, flytur búferlum til Englands og leitar þar vinnu og nýrra lifsskilyrða. Það er mjög sjaldgæft, ef ekki óþekkt fyrirbrigði, að hingað til lands flytji fólk af öörum kynþætti en þeim hvita og ætli sér að fá vinnu hér og setjast aö. Við Islendingar höfum þvi verið lausir við að taka afstöðu til þess, hvort erlen t vinnuafl er æskilegt eður ei. Fyrir skemmstu komu þó rúmlega 30 Vietnamar hingað til lands eins og flestir vita. Ekki þarf að rekja þá sögu, hún hefur verið nákvæmlega tiunduð, en ekki heyrðust þær raddir þegar þeir komu hingað, að við hefðum ekkertvið slikan „innflutning” aö gera. Þeldökkir körfuboltamenn 1 framtiðinni má þó gera ráð fyrir, að fólksflutningar hingað til lands færist ef til vill i aukana og þá er ekki unnt aö undanskilja þann möguleika, að það verði fólk með annan hörundslit en viö Is- lendingar. En litum nánar á hiö þrönga dæmi, sem kanna skal, þ.e. dökku körfuboltamennina. Helgarpóst- urinn fékk einn þeirra til liös við sig i vikunni — Mark Coleman 22 ára Bandarikjamann — sem leikur körfuknattleik meö liði stúdenta og kom hingað til lands fyrir tæpum mánuði og hyggst dvelja hér i vetur. Hann tók þátt i smátilraun með okkur Helgar- póstsmönnum. Tilgangurinn var sá, að kanna viðbrögð fólks ef svertingi væri i leit að vinnu á Is- landi. Mark Coleman dvelur nú á Nýja Garði Háskólans en ekki hef ur tekist aö fá ibúö fyrir hann ennþá. Að sögn Steins Sveinssonar forsvarsmanns íþróttafélags stúdenta hefur tals- vert veriö reynt til að fá ibúð fyrir Mark, en litt gengið. „Ég held að fyrst og fremst megi kenna um bágbornu ástandi á leigumark- aðnum um þessar mundir,” sagði Steinn. „Hins vegar förum við heldur ekkert i grafgötur meö þaö, aö ekki auðveldar það leitina aö við þurfum ibúð fyrir þeldökk- an körfuboltamann. „Mér hefur liðið vel á Islandi,” sagði Mark Coleman, „og verið vel tekiö. öðlaðist strax vini fyrstu dagana, sem hafa farið með mér hingað og þangað. Vet- urinn leggst vel i mig að öllu leyti, en ég hlakka til aö geta flutt i ibúö og farið að vinna eitthvað, með körfuboltaþjálfuninni.” Mark sagöist ekki hafa orðiö fyrir óþægindum vegna hörunds- litar sins hér á landi. „Ég hef að visu orðið þess var, aö menn eru aö hnýta örlitið i mig á dansstöð- um, en þeir aðilar eru yfirleitt drukknir svo ég læt sem ég heyri slikt ekki. Þá er þvi ekki að neita, aö fólk horfir mikið á mig þegar ég er á ferli, enda ekki vant aö sjá 2ja metra negra á ferli i borginni. En fyrir aðkasti hef ég ekki oröiö og á ekki von á þvi að veröa fyrir sliku. Finnst Islendingar vera blátt áfram og almennilegt fólk og laust við kynþáttafordóma.” Eins og áöur sagöi fór Mark Coleman á nokkra vinnustaði og falaöist eftir vinnu. I fyrstu lotu fór Mark á Togaraafgreiösluna h/f, en þar eru menn stundum ráðnir með litlum sem engum fyrirvara, ef eitthvaö er aö gera, en þá til skamms tima i senn. Mark fór einn inná skrifstofuna, en blaðamaöur og ljósmyndari voru ekki langt undan. A skrifstofunni var Mark tjáð, að ekkert væri að gera þessa dag- ana. Þaö hefði verið ráðið um morguninn, en óljóst væri hvenær næst yrði þörf á vinnuafli. //Mannlegi þátturinn" Blaðamaður kom síðan að máli vib viömælanda Mark Coleman — Þorstein Sivertsson skrifstofu- stjóra — og spurði hvort nokkuð væri þvi til fyrirstöðu að Mark fengi vinnu þegar næst væri auglýst eftir mönnum. „Þetta er sterk spurning,” svaraöi Þor- steinn. „Ég skal játa, að þegar mjög mikið er að gera, þá vantar nánastalltaf menn. Hins vegar er það á sviði verkstjóra að ráða fólk og ég skal þvi ekkert segja til um þaö hvort þessi ungi maöur fengi þá vinnu.” — En er nokkuð sem mælir gegn þvi að Mark Coleman fengi vinnu hér ef vantaði menn? „Ég sé greinilega eftir hverju þú ert að fiska. Þú átt við, hvort honum yrði úthýst vegna hör- undslitar sins. Ég sé sjálfur ekkert sem mælir gegn ráðningu hans, ef hann hefur hér atvinnu- leyfi, þótt hins vegar veröi alltaf að lita til mannlegra þátta i þessu, þ.á m. til væntanlegra vinnufélaga hans.” — Hvað áttu við með þvi? „Ekkert nema þaö, að það verður aö líta á mannlega þáttinn lika.” — Það gerum við einmitt og þess vegna teldum við eðlilegt að hann yrði ráðinn ef menn vantaði á annaö borð. „Þá erum við sammála um að lita beri á mannlega þáttinn, þótt við séum eftilvill aö tala um tvo ólika þætti þess máls,” sagði Þor- steinn Sivertsson. Voru togaraafgreiöslumenn siöan kvaddir, en stefnan tekin á verkstjóra hjá Eimskip á miö- bakka Reykjavikurhafnar. Hanri svaraði Mark Coleman þvi til að enga vinnu væri að fá á næstunni. Við blaða- mann sagöi hann stuttu siöar að fyrir dyrum stæöi fækkun á starfsfólki og þvi væru ráðn- ingar varla á dagskrá. „Hins vegar er ekkert i veginum hjá mér, sem mælir gegn ráðningu blökkumanns,” sagði verk- stjórinn. „Alls ekki.” Glápt í forundran Þessu næst gekk Mark Coleman niður i miðborgina og Helgar- póstsmenn i humátt á eftir. Það fór ekki á milli mála, aö vegfar- endur tóku eftir þessum hávaxna blökkumanni. Sumir þeirra sneru sér i hálfhring og horfðu I for- undran á eftir Mark. Einhvern tima hefði það eflaust þótt dóna- skapur að stara á fólk og glápa á eftir þvi, en greinilegt var að menn gleymdu almennt þeirri kurteisisreglu i þessu tilviki. Næst báöum við Mark að stöðva nokkra vegfarendur og spyrja þá si svona hvort þeir gætu mögu- lega bent honum á leiöir til að ná i einhverja vinnu. A horni Pósthússtrætis og Hafnarstrætis stöðvaði Mark mann á fertugs- aldrinum. Attu þeir nokkurra minútna tal saman, en gengu siðan samsiðainn i Lands- bankann. Þar skrifaöi þessi maður niður heimilisfangið á ráðningaskrifstofu Reykjavikur- borgar og sagöi Mark Coleman siðan, að hann hefði verið mjög almennilegur og viljað allt fyrir sig gera. Þessi maður, sem siðar kom i ljós að heitir Stefán Sæmundsson, sagði í rabbi við blaöamann Helgarpóstsins hafa talið það eðlilegt aö aöstoða manninn eftir föngum — hörundslitur skipti þar ekki máli. „Við myndum ætlast til þess að okkur yrði liðsinnt ef við værum að ferðast erlendis og er ekki eðlilegt að gjöra náungan- um þaö sem þú vilt að hann gjöri þér?,” sagöi Stefán, og sagöi aö hann væri þeirrar skoðunar að kynþáttafordómar væru ekki rikjandi á Islandi. Kristið siðgæði Næstu þrir aöilar sem Mark Coleman kom að máli viö hitti hann I Austurstræti. Allir voru þeir boönir og búnir til aö hjálpa honum. Sá fyrsti spuröi hvaöa menntun hann hefði og þegar Mark sagði honum að hann hefði gráðu varðandi likams- og heilsu- fræði, benti hann honum á að lita viö á spítölunum og athuga málin þar. Sá næsti talaði lengi við Mark og velti vöngúm yfir mögu- leikunum. Bar blaöamann að i Mark Coleman kemur út úr skrifstofuhúsnæði Togaraafgreiöslunnar. Engin vinna þar, þann daginn a.m.k.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.