Helgarpósturinn - 19.09.1980, Blaðsíða 25

Helgarpósturinn - 19.09.1980, Blaðsíða 25
25 ungu „Stjórn” félagsins. Astæöan mun vera sú aö ekki náöist sam- staöa meöal þeirra fjögurra flug- freyja sem sátu fundinn meö Arn- mundi Bachmann um athuga- semd þessa. Tvær af þessum flugfreyjum eiga sæti i stjórn félagsins, hinar tvær eru utan stjórnar, og þaö munu vera al- þýöubandalagstengsl stjórnar- mannanna tveggja sem töfruöu fram fyrrgreind mótmæli viö frétt blaösins. Hins vegar var ekki haldinn formlegur stjórnar- fundur um þetta mál. Athuga- semdin mun hafa veriö soöin saman gegnum sima... 0 Prjónaöar peysur kváöu vera misdýrar eftir þvi hvað i þær erlagt. Hins vegar mun peysa ein sem prjónuö var i ný uppsettri prjónastofu i Höfnum vera ein sú dýrasta sem sögur fara af. Kost- aöi hún aðeins litlar 8 milljónir króna. Já, 8 milljónir. Til skýr- ingar er rétt að geta þess, að þessi prjónastofa haföi verið keypt eins og hún lagöi sig frá Reykjavík og kostaöi 8 milljónir. Akveönir aðilar innan hrepps- nefndarinnar i Höfnum hjálpuöu til viö aö koma þessari prjóna- stofu á fót meö peningafyrir- greiöslu en þaö var einkaaöili sem hugðist reka hana. Fyrsta peysan var siöan prjónuð og eins og lög gera ráö fyrir þótti ekki Föstudagur 19. september 1980. óeölilegt aö gefa oddvitanum i Höfnum fyrstu peysuna. Hann var klæddur i peysuna góöu meö pomp og pragt. Meira var ekki siöan prjónaö hjá fyrirtækinu. Einhverra hluta vegna þótti mönnum rekstrargrundvöllur fyrirtækisins ekki vera fyrir hendi og var starfseminni hætt, — raunar áður en hún fór af staö: Ein peysa kom út úr öllu saman! ^ Nýir ritstjórar eru um þessar mundir aö taka við tveimur af blöðum Frjáls framtaks, —en aö- eins til bráðabirgöa. óli Tynes, ritstjóri Fólks er i frii, og á þeim bæ ræður nú rikjum óskar Magnússon, Vikulokamaður og afleysingamaður á Visi i sumar. Þá hefur Markús örn Antonsson, ritstjóri Frjálsrar verslunar á- kveðið aö taka sér hvild næstu mánuðina, og viö stjórntaumun- um tekur Pétur J. Eiriksson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sem einnig hefur ritstýrt Iðnaðar- blaöinu.. # Forystustreitan innan Alþýöusambands tslands er sögð koma skýrt fram á yfirstandandi samningafundum nú eftir að Snorri lónsson hefur gefiö út formlegij yfirlýsingu um aö hann dragi sig i hljé. Þar sitji þeir allir og tali landsfööurlega, Benedikt Daviðsson, Asmundur Stefáns- son, Karl Steinar Guðnason og Karvel Pálmason. Einkum láti Benedikt mikiö á sér bera, en Ás- mundur erföaprins Snorra, hafi sig tiltölulega iitiö i frammi... # Veöur skipast skjótt i lofti I islensku viöskiptalifi. Fyrir u.þ.b. tveimur árum var Daihatsuum- boðið i hópi smæstu fyrirtækja i bifreiðainnflutningi hérlendis. Nú er það orðiö umsvifamesta bif- reiöaumboöiö. Helgarpósturinn hefur fregnaö aö Daihatsu hafi nú keypt réttinn til aö byggja tvær nýjar hæöir ofan á veitingahúsiö Sigtún viö Suöurlandsbraut fyrir skrifstofur. Mun Daihatsu hafa borgað Sigmari i Sigtúni 20 milljónir fyrir þennan rétt, og þykir ekki mikið... # Flestar stórmyndir, sem framleiddar eru i Bandarikjunum um þessar mundir, hafa þaö sem kallað er á útlensku „Dolby stereo sound”, en þetta Dolby-kerfi á vist aö gefa mun betri hljómgæði en áöur hefur þekkst. Segja menn að þetta sé framtiöin. Kvikmyndahús Reykjavíkur hafa enn ekki ráöist i aö fjárfesta i tækjum fyrir þetta kerfi, enda mun þaö kosta rúmar tiu milljónir. Nú hefur Laugarás- bióhins vegar fariö af staö og eru likur á þvi, aö kerfi þetta veröi jafnvel komiö upp fyrir jól. Fleiri kvikmyndahús munu vera á svipuöum buxum. Þess má geta hér, aö sú fræga Apocalypse Now er hljóðsett meö Dolby og mun það vera ein ástæðan fyrir þvi, aö Tónabió hefur ekki enn tekið hana til sýninga, þó svo myndin hafi komið fyrir mörgum mánuöum. Vonum að úr rætist.... # Nokkur hiti mun nú i ýmsum Visismönnum vegna greinar Magnúsar óskarssonar, formanns iþróttafélagsins Þrótt- ar i blaöinu ekki alls fyrir löngu. í grein þeirri tók Magnús þá VIsis- menn á beiniö og þá sérstaklega einn iþróttaskrifara blaösins og talaði um hann sem „Vandræöa- manninn á Visis”, sem hvorki hefði „þekkingu, getu né innræti” til að skrifa um iþróttir. Var þessi grein Magnúsar skrifuð vegna fréttaflutnings Visis af málefnum GAT í GÓLFI Þú sérð gat í gólfi, og efst er vonandi smekkleg gólfrist. Veist þú hvað er neðan ristarinnar? Hvort svo er eða ekki bendum við í Vatnsvirkjanum hf. á að við höfum sérhæft okkur í sölu á gólfniðurföllum, sem lyktar ekki úr, og einnig frárennslislögnum sem ekki er stíflugjamt. Við vitum líka að gamlar pípur, (eldri en plast- pípumar frá okkur) stíflast oft. Þess vegna eigum við á lager efni sem leysir upp stíflur sem myndast af lífrænum efnum svo sem fitu eða hárum. Vatnsvirkinn hf. Ármúla 21 - Sérverzlun með efnivörur til pípulagna Sími 86455/85966 knattspyrnumanna I Þrótti. Herma fregnir aö ýmsir Visismenn vilji I meiöyröamál vegna greinar Magnúsar og Sandkornshöfundur Visis baöst einnig undan ritskoöun af hendi Magnúsar. Þaö má kannski láta þaö fljóta meö, aö hingaö til hefur aö visu ekki veriö litiö á þaö sem ritskoöunartilhneigingar hjá mönnum aö gera athugasemdir viö áöur birtar fréttir i blööum. Þaö má aö lokum geta þess, aö nefndur Magnús Óskarsson er lögfræöingur aö mennt, og mun hann nú brosa i kampinn vegna vangaveltna Vlsismanna um máisókn á hendur honum á grundvelli meiöyrðalög- gjafarinnar.. KJÖRDÆMAÞING Á VESTFJÖRÐUM Alþýöuflokksfólk á Vestfjöröum er minnt á aðalfund kiördæmis- ráösins sem haldinn veröur I Flókalundi laugardaginn 27. septem- ber n.k. og hefst kl. 2 e.h.. Gestir fúndarins veröa Benedikt Gröndal, formaöur Alþýðuflokksins og alþingismennirnir Sighvatur Björg- vinsson og Karvel Pálmason. Samkvæmt samþykkt um starfsemi kjördæmaráösins frá júni 1977 eiga eftirtaldir rétt til setu á fundum ráösins: „A fundum I kjördæmisráöi Alþýöuflokksins á Vestfjöröum eiga sæti meö málfrelsi, tillögu- og atkvæöisrétti þeir, sem nú veröa taldir: 1. Stjórnarmenn i kjördæmisráöinu. 2. Stjórnarmenn i félögum Alþýöuflokksins á Vestfjöröum. 3. Ritstjóri aöalmálgagns Alþýöuflokksins i kjördæminu. 4. Fulltrúar af framboöslista, sem Alþýöuflokkurinn i kjördæminu stóö aö viö siöustu alþingiskosningar, er náöu kjöri til Alþingis og eru Alþýöuflokksmenn. 5. Alþýöufiokksfólk á Vestfjöröum, sem sæti á i sveitarstjórnum i kjördæminu eöa I stjórn Fjóröungssambands Vestfiröinga. 6. Alþýöuflokksfólk úr kjördæminu, sem sæti átti á siöasta þingi Alþýöusambands Vestfjaröa, Alþýöusambands tslands, Banda- lags starfsmanna rikis og bæja og BHM eöa aöildarsambanda ASÍ eöa BSRB. 7. Fulltrúar, sem kjörnireruaf Alþýöuflokksfélögum i kjördæminu, sem her segir. Fimm fulltrúar fyrir hvert félag og aö auki einn fulltrúi fyrir hverja 10 félagsmenn. Þar sem flokksfélög eru ekki starfandi skal heimilt aö stofna héraösnefndir og hafi þær rétt til aö kjósa 3 menn. Kjör þessara fulltrúa skal fara fram fyrir regluiegan aöal- fund kjördæmisráösins hverju sinni. Enginn kjördæmisráösmaöur getur fariö nema meö eitt atkvæöi á fundum ráösins. Stjórn kjördæmisráösins er heimilt aö auglýsa fundi þess opna fyrir öllu Alþýöuflokksfólki á Vestfjöröum meö málfrelsi og tillögu- rétti, en atkvæöisrétt hafa aldrei aörir en þeir, sem aö framan voru taldir.” Patreksfirði 14. sept. 1980 ÁgústH. Pétursson (formaöur) Karvel Sighvatur Leiðarþing á Vestfjörðum Leiöarþing Alþýöuflokksins á Vestfjöröum veröa haldin, sem hér segir: Patreksf iröi: Sunnudaginn 21. september n.k. kl. 16.00 i Félagsheimilinu. Tálknafirði: Mánudaginn 22. september n.k. kl. 20.30 í Barnaskólanum. Bíldudal: Þriöjudaginn 23. september n.k. kl. 20.30 i Félagsheimilinu. Þingeyri: Fimmtudag 25. september n.k. kl. 20.30 I Félagsheimilinu. Aörir fundir eru áformaöir sem hér segir: Súðavík: Föstudag 3. október um kvöldiö. Flateyri: Laugardag 4. október miödegis. Súgangadirði: Sunnudag 5. október miödegis. Bolungarvík: Laugardag 11. október miödegis. ísaf irði: Sunnudag 12. október miödegis. Alþingismennirnir Sighvatur Björgvinsson og Karvel Pálmason mæta á fundunum öilum og hafa framsögu um stjórnmálaviöhorfiö, kjördæmismál og verkalýösmál. ÖLLUM ER HEIMILL ADGANGUR. Alþýöuflokkurinn.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.