Helgarpósturinn - 21.11.1980, Síða 24

Helgarpósturinn - 21.11.1980, Síða 24
24 Föstudagur 21. nóvember 1980 h&/cjarpá^fl irinn STIKLAÐ í JÓLABÓKAFLÓÐINU ,,Ekki algjör hugarburður heldur miklu fremur stílfærð heimildarskáldsaga” — segir Asgeir Jakobsson -„Bókin er um sjómann, háseta á striðsárunum”, segir Ásgeir Jakobsson þegar hann er spurður um siðustu bók hans — Grims sögu Trollaraskálds. ,,Það má e.t.v. segja að það sem hafi ýtt henni úr vör hafi veriö það að ég var i tveim síöustu bókum minum búinn aö halda mér við tvo afreksmcnn sjávarútvegsins — þá Tryggva ófeigsson og Einar Guðfinnsson og fannst nóg komið af slikum I bili, svo að ég tók migtii og bjó til brokkgengari mann en þeir félagar eru. Þetta er þó ekki algjör hugarburður heldur miklu fremur stilfærð heimildasaga. Fyrirmyndin að söguhetjunni er raunveruieg, þótt enginn heimildar- manna minna myndi sennilega vilja meðganga allt kvennafariö I bók- inni. En mér fannst þetta timabært söguefni, þvi að hér hefur aidrei verib sagt almennilega frá sókn okkar á ryðkláfunum á striðsárunum, oftast ofhlöðnum og ofboðið á flestum sviðum. Ailt sem að þessari sókn lýtur á að vera algjörlega sagnfræðilega kórrétt en hins vegar er hæpn- ara að flokka uppákomur og uppáferðir ýmsar, sem fyrir koma I bók- inni, upp á sagnfræðina”, sagði Asgeir. Grims saga Trollaraskálds er 12-bók Asgeirs Jakobssonar og allar hafa þær fjallað um sjómenn og sjómennsku en þetta er fyrsta skáld- saga hans. Asgeir Jakobsson Gríms saga trollaraskálds Helgarpósturinn birtir kafla úr nýrri heimildarskáldsögu Ásgeirs Jakobssonar Þess er nú fyrst að geta i sambandi við þetta barnsfaöernismál, aö Grimur var silesandi og alæta á bækur og voru þær grautur i höfðinu á honum, einsog jafnan hjá alætum. Sérlega voru honum hugstæð ýmis rit um sálarlifið, sem skiljanlegt er af því, sem sagthefur verið um það. Hann átti stafla af timaritinu ,,Your Life” og fjölda bóka um sllkt efni, en haföi enn enga bók fundiö um sálarlif troll- araskálds. Þess er og ekki siður aö geta að sjómenn eru allra manna greiövikn - astir. Þaö heföi oröiö leitun á landmanni, sem heföi leyst flókiö barnsfaöemismáliö jafn fljótt og greiölega og Grimur geröi. Þetta barnfaðernismál bar þannig að Grimi, aö hann lá uppi divan, timbraöur en skip hans I siglingu. A gólfinu fyrir framan divaninn lá „How to be Popular and win Influence” og þar á ofan Sæmundar-Edda og andaði köldu á milii. Grimur var aö lesa danskan bækling Selv- beherskelse hét hann og þar hljóöaði 18da og siöasta boöorðiö svo: — Gaa altid den lige Vej. Krogede Veje giver krogede Resultater i det lange Löb. Grímur var mikið samþykkur þessari niöurstööu. Enda haföi hann engin kynni af þvf hversu erfiöar hinar beinu braut- irnar geta orðiö fólki, sem er ekki fætt til þeirrar göngu. Þegar hann nú lá þarna og var sem haröast aö hugsa hvernig selvbe herskelsi myndi klæða hann, þá var barið aödyrum. Inn kom stúlkukind, sem hann gat kallaö vinstúlku sina og haföi þó rika óbeit á þeirri nafngift, fannst eitthvert náttúruleysisbragð af henni. Hann haföi aldrei nema rétt tekiö i hendina á stúik- unni, eftir hún komst af bamsaldri. Hann þekkti hana smali I sveitinni og þá var gott meö þeim. Þetta var sóma stúlka og komin vei til manns. Hún var i vist þetta sumar hjá skyldfólki sinu og hann hafði hitt hana nýlega, aö hann minnti. Stúlkan kom inná stokk til hans og sett- ist fyrir framan hann. Hann kastaöi frá sér bókinni Selvbeherskelse og vildi leggja stúlkuna hjásér.En þaö vildi hún ekki, heldur geröi sér litiö fyrir og fór aö gráta. Allur grátur heyröi undir Ljósvik- inginn og Grimur reis upp og settist hjá stúlkunni og lagðihandlegginn yfir heröar henni. Þaö var góð vigstaða ef eitthvaö skyldi rætast úr um geöslagiö. — Hvaö er aöþér góöa min, spuröi Ljós- vikingurinn bliöur. — Viltu meðganga fyrir mig barn? — Ha, ég? Eg hef ekki komið nálægt þér siöan viö vorum krakkar. — Já, ég veit þaö. Skýr stúlka þetta og svo kom sagan. Hún var sú heföbundna. Þaö getur meira en verið aö útlendir hermenn hafi valdið sérstöku „ástandi” hjá islenzku kvenfólki á striösárunum en margar héldu sér við þá þjóölegu hefö islenzkra kvenn, aö eiga börn meö sinum löndum án þess aö velta vöngum yfir afleiöingunum, fyrr en um seinan Saga stúlkunnar var i sinn rammþjóö- leg og alþjóöleg: húsbóndinn barnar vinnukonuna og svo hefjast vandræöin. Þaö var óvenjulegt viö þessa sögu að barnsfaöirinn var ömmubróöir barns- móöur sinnar, og þá langömmubróðir sins eiginbarns. Lángafinn hafðiátt börn með fjórum konum allt fram að niræöu og voru þvi tvær kynslóðir á milli systkin-- anna. Húsmóöirin var aftur á móti fööursystir vinnukonunnar og uppeldis- systir. Grimur skildi þaö svo sem þetta gæti oröiö vandræðamál I fjölskyldunni allt hyskiö sameinaö i einu barni ólöglegu. Ef hann vissi einver skammarstrik, sem hann haföi aldrei gert, fylltist hann vandlætningu og var manna dómharöast- ur. Hann fór aö ganga um gólf reiöur mjög. — Þetta er sifjaspell skárri er það and- skotans glæpahundurinn, að leggjast á svo gott sem barnabarn sitt. Þaö sem á aö gera viö þig er aö binda stein um hálsinn á þérog fara meö þig austur á Þingvöll og drekkja þér i Drekkingarhyl og hann sub ur I Gálgahraun og festa hann þar upp. meiri andskotans skepnan sem maöurinn getur veriö. Stúlkan haföi nú oltið útaf hágrátandi: — Viltu þá ekki gera þetta fyrir mig, kjökraöi hún i gráthviðunum, hjónaband hans fer I hundana og pabbi og mamma deyja... — Hann er stundum dýr drátturinn, sagöi Grimur þvi hann var vitur maöur — Kastaöu stelpunni út, heyröist i Þor- geiri, en Grimur rak hann burt, og sagöi honum aö hann væri beztur um borö i tog- ara aö hausa fisk, og heföi ekkert vit á svona málum. Ljósvikingurinn hélt nú langa ræbu um stúlkur, sem á öllum tim- um islandssögunnar höfðu rataö i þessa ógæfu, og þyrfti engan skepnuskap til, og nefndi nöfn sem Grimi var alls ekki sama um. Móri var fljótur aö átta sig eins og fyrri daginn og hvislaði: — Geröu þetta fyrir stelpuna, þaö skað- ar ekkert, farðu svo uppá hana. Eins og svo oft hlustaði Grimur bezt á Móra sinn, en einnig sat i honum áminn- ing Ljósvikingsins. Hann settist nú hjá stúlkunni, reisti hana upp i sætinu og lagði yfirhanahandlegginn. Hann vildi vita allt um ástafariö, hvort henni þætti vænt um manninn, hvenær þetta heföi byrjað og yfirleitt hvernig þetta heföi allt gengiö til. Auðvitað var forvitnilegt aö vita ástafar stúlku meö ömmubróðursinum. Um ásta- farið var ekkert spennandi. Þaö var eftir ævagamalli forskrift. Grimi skildist þaö heföi hafizt á aðfangadagskvöld, þegar frúin var við aftansöng með börnin og skötuhjúin ein heima . — Þaö eru ekki ófá ástarævintýrin sem hefjast, þegar frúin fer á aftansöng, sagöi Grimur, þvi hann vissi þess dæmi aö helgistundin hafði veriö notuö til aö laum- ast til vinnukonu. Það er svo mikið öryggi sem fylgir aftansöng. Þá vildi Grimur vita aldur fóstursins. Stúlkan sagöi það liklega nær tveggja mánaða, eða svo segöi sér læknir. — Þaö er nú ekkert aö marka þá, sagöi Grimur, þaö getur verið á niunda mánuöi þess vegna : lof mér að vita hvort ég finn fyrir þvi. Og meö þessum orðum hallaöi hann henni útaf á divaninn. Hvort sem hún hefur nú trúað þvi aö Grfmur kæmist nær sannleikanum en læknirinn eöa ekki, þá lét hún afskiptalaust aö hann þuklaði um kviðinn á henni undir kjólnum. — Ætlarðu að meðganga? spuröi hún — Það fer nú eftir þvi hvernig kaupin gerast á eyrinni, sagöi hann og strauk henni mjúklega, en þegar hann var kom- inn niður að lifbeininu, rankaði hún við sér og sagði: — Þaö er ofar... — Þau liggja nú misjafnlega, sagði hann enda átti hann bókina Ideal Marriage eftir ekki minni karl en Van de Velde. — Ætlarðu að meöganga, elsku Grímur, þúsagöir um daginnaö þér þætti vænt um mig? — Ha! — Já manstu það ekki. Viö sátum sam- an uppi I Hljómskálagarði og þú sagðir, að þér heföi alltaf þótt vænt um mig. — Grimur stóð ævinlega illa aö vígi, þegar eitthvaö var haft eftir honum útúr- fulium, en þetta fannst honum með ólik- indum, þvi þaö rétt iaföi i þvi, að honum væri hlýtt til stúlkunnar. Hann tók samt ekki upp þrætur, hún átti nú nógu bágt greyið þó hann bætti þvi ekki ofan á aö þvi færi viðsfjarri aö hann fyndi fyrir væntumþykju til hennar. Hann sagöi: — Fyrr má nú vera væntumþykjan en svo sé, aö maður meðgangi annarra manna börn. Nú var höndin á honum búin að finna sér stað þar sem börn eru ekki á ferö á öörum mánuði heldur siðar og stúlkan sagði: — Ekki þetta, ég vil ekki þetta. Grimur anzaöi þessu auðvitað ekki, þaö er aldrei gert i svona rannsóknum. Allt i einusperrti stúlkan uppá hann augun með spurn og eftirvæntingu: — Ætlaröu þá aö meöganga? Bæklingurinn Selvbeherskelse var viö tána á Grimi. Hann ýtti honum með tánni undir divaninn, þvi hann fann nú að þaö var rétt skoöun, aö honum væri ráölegra aö láta þaö biöa ellinnar aö taka hann bókstaflega. Nú var það einn sem réöi. Hann sagöi um leið og hann lagðist ofan á stúlkuna: — Ég meögeng. — LÍKIÐ I FJÖRUNNI Gunnar Gunnarsson: Margeir og spaugarinn Lögreglusaga (141 bls.) Iöunn 1980. Ég verö aö játa aö ég er litill sérfræöingur um lögreglusögur og glæpamál. Hef litiö lesið af sliku siðan ég hætti sem unglingur aö lesa allt sem hönd á festi. Sömuleiöis foröast ég eins og heitan eldinn aö veröa fyrir þvi óláni aö horfa á saka- málaþætti I sjónvarpi. Þrátt fyrir þennan menntunarskort viröist mér ljóst aö Gunnar Gunnarsson skrifi I anda „hinnar raunsæju lögreglusögu” sem hlotiö hefur miklar vinsældir i seinni tiö, einkanlega fyrir tilverknaö Svi- anna Sjöwall og Wahlöö. Þessar „raunsæisglæpasög- ur” eru reyndareins og hverjar aörar skáldsögur sem leitast viö aö lýsa fólki og samfélagsfyrir- bærum, en f þeim er notað form lögreglusögunnar með glæp og ákveönu spennandi plotti sem veröur aö ganga upp i lokin. Margeir rannsóknarlögreglu- maður er enginn súperman. Hann er uppgjafa barnakennari sem fékk þetta starf fyrir til- verknaö frænda konu sinnar, dómsmálaráöherrans. Hann vinnur sitt starf eins og hver annar kontóristi og er þaö yfir- leitt litt spennandi. Þó rekur stöku morö eöa lik á fjörurnar eins og i þessari sögu en annars bað hann aö láta flytja sig i þessa deild vegna þess hvað þeir sem þar unnu voru góöir i briddsi. An þess aö ég þekki til innanbúöar hjá rannsóknarlög- reglunni viröist mér lýsing vinnustaöarins raunsæ, þetta gæti verið hvaða litiö fyrirtæki sem er þó verksviðiö sé dálitiö sérstætt. En Margeir er engu að slöur glúrinn og leysir mál fyrst og fremst á tortryggni og þrjósku. Það finnst lik og viö eftir- grennslan á þvi hver hafi veriö staöa þess f lifandi lifi kemur margt undarlegt upp úr dúrn- um. Spennan eykst hægt og sig- andi eins og vera ber, uns viö sitjum uppi hálf vonsvikin meö óvæntan endi. Bygging sögunn- ar er býsna góð, þó höfundur eigi um miðbikiö i vandræöum meö nokkra enda sem eru tengdir á hálf vándræðalegan hátt. Gunnar Gunnarsson notar þennan ramma til aö skyggnast um i samfélaginu og skoða ýmis fyrirbæri þess svo sem tiltölu- lega ung yfirstéttarhjón og þeirra gerviveröld, stööu konu úr tiltölulega f jarlægu landi sem hefur gifst hingað og siöast en ekki sist hinn eilifa islenska braskara og draumóramann. Allarþessarlýsingareru gerðar af tölveröu innsæi og aukaper- sónur eru dregnar einföldum en skýrum dráttum og veröa bráö- lifandi i sögunni. Mér finnst þessi saga notaleg- asta lesning, sem skilur kannski ekki mjög mikið eftiren er engu aö siöur forvitnileg. Ég held aö Gunnari Gunnars- Gunnar Gunnarsson — ..bygg- ing sögunnar er býsna góö, þó höfundur eigi um miðbikið i vandræöum meö nokkra enda sem eru tengdir á hálf vand- ræöalegan hátt”, segir Gunn- laugur m.a. I umsögn sinni. syni hafi tekist bærilega aö skrifa Islenska lögreglusögu. G.Ast. P.S. Þaö er að sjálfsögöu vilj- andiaösleppter aö rekja frekar efni sögunnar. G.Ast.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.