Helgarpósturinn - 25.06.1982, Blaðsíða 18
18
um útlendingaherdeildina okkar,
þ.e. um islenska knattspyrnu-
menn hjá erlendum atvinnu-
mannafélögum...
f jBryndls Schram.hinn vinsæli
^/Jumsjónarmaður Stundar-
ínnar okkar i sjónvarpinu, verður
i sumar leiðsögumaður i Lignano
á Italiu á vegum ferðaskrifstof-
unnar Útsýn. Fyrir útvarpsráði
liggur nú bréf frá Bryndisi þar
sem hún býðst til að sameina þetta
tvennt seinna I sumar. Leggur
hún til að sent verði upptökugengi
til itölsku sólarstrandarinnar i
ágúst og þar tekið upp efni um
þennan „sumarbústað” stórs
hluta islensku þjóðarinnar. Eftir
þvi sem við heyrum eru ferðir
sjónvarpinu að kostnaðarlausu.
Ingólfur býður....
/■ /Nú mun liggja fyrir að Guð-
mundur J Guömundsson missi
sæti sitt i hafnarstjórn Reykja-
vikur. Jakinn er sagður una
þessum málalokum mjög illa og
mun hafa boðið Morgunblaðinu
grein um málið, þar sem hann
hyggst setja ofan i við flokkssyst-
kini sin.
S Ekki voru allir Akureyringar
jafn hrifnir af þvi framtaki bæj-
arstjórnarinnar að efna til Vor-
vöku ’82.0g það fannst þeim vera
að bera i bakkafullan lækinn,
þegar Félag islenskra myndlist-
armanna trommaði norður með
sýningu 11 félagsmanna og setti
upp i iþróttaskemmunni stærstu
myndlistarsýningu sem um getur
norðan heiða — og jafnframt lik-
lega stærstu sýningu FíM til
þessa. 1 Islendingi,öðru af stærstu
blöðum bæjarins/var ekki minnst
á þetta menningarframtak að
sunnan, utan klausu þar sem
býsnast var yfir þvi að sýningar-
skráin hafi kostað einhver ósköp.
Þegar forseti bæjarstjórnar, Val-
gerður Bjarnadóttir, setti siðan
sýninguna með snjöllu ávarpi að
Leiörétting
i viðtali við starfsmenn
Svarts á hvitu h/f i siðasta
Listapósti IIP var ranghermt,
að samansetjendur væntan-
legrar slangurorðabókar ynnu
allir hjá Orðabók Háskólans.
Raunar hal'a allir þrir komið
við sögu þeirrar stofnunar, en
nú er aðeins einn okkar þar i
starfi.
Slangurorðabókin er með
öllu óháð Orðabók Háskólans,
þótt það starf hafi notiö þaðan
stuðnings og velvildar, enda
torvelt að vinna að islenskri
orðfræði án hjálpar frá söl'n-
um hennar og starlsmönnum.
Þetta er ef til vill ekki stór-
merk leiðrétting, en það heíur
löngum verið leiðarljósið að
hafa það heldur sem reynist
sannara.
Mörður Árnason
Grill
og grillvörur
Match light grillkolin vinsælu (sem enga
oliu þart á). Grill — margar gerðir og
stærðir, verð frá kr. 192, pottgrill, verð
619, grillmótorar, verð kr. 36, grilltanga-
sett og tl. og fl. Póstsendum.
Seglagerdin
ÆGIR
Eyjagötu 7 — Örfireysey
— Reykjavík. Símar:
14093 — 13320.
viðstöddum bæjarstjóra og
menntamálaráðherra, vakti það
ennfremur athygli, að ekki einn
einasti bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins var viðstaddur, þótt
allri bæjarstjórninni hafi verið
boðið. En i næsta Islendingi var
grein eftir Gunnar Berg ritstjóra
þar sem hann gerir þvi skóna, að
svo mikla menningu sem boðið
var upp á á Vorvöku ’82geti Ak-
ureyringar ekki melt svona á einu
bretti. Þeim mun verri fannst rit-
stjóranum þessi „sóun” i menn-
ingarmálin sem það hafði nýlega
gerst á bæjarstjórnarfundi, að
felld var tillaga um að veita 265
þúsund krónum til uppbyggingar
á skiðasvæðinu i Hliðarfjalli. Já,
það hefði liklega mátt koma upp
sæmilegustu skiðaaðstöðu fyrir
Reykvikinga til dæmis fyrir það
sem fór i byggingu Kjarvalshúss-
ins. Hvort sem það er af þessari
ástæðu eða annarri hafa Akur-
eyringar verið tregir til að sækja
sýninguna; nú rétt fyrir helgi
höfðu aðeins 400 látið sjá sig. En
eina nóttina nú i vikunni leit ein-
hver inn og skemmdi verk eftir
Örn Inga Gislason,eina Akureyr-
inginn sem er með á sýningunni
— og eina Akureyringinn sem er
félagi i FIM...
/ JSvo er aö sjá að reynslan af
^ Listahátiðahaldi i Reykjavik
hafi farið eitthvað fyrir ofan garð
og neðan. Ekki einasta hefur val á
listamönnum á hátiðina i ár verið
harla umdeilt heldur hefur einnig
komið til verulegra árekstra milli
framkvæmdanefndar Listahátið-
ar og Rikisútvarpsins. Listahátið
hefurekki i öllum tilvikum staðið
við gerða samninga um upptökur
Föstudagur 25. júní 1982 /r/r,^
og leyfi til flutnings á efni hátið-
arinnar i útvarpi og sjónvarpi.
Þannig varð skyndilega að fella .
út af dagskrá flutning á hljóm-
leikum nýju kammersveitarinnar
undir stjórn Guðmundar Emils-
sonar, en það var eitt þeirra at-
riða, sem um var samið i heildar-
samningi Rikisútvarpsins og
Listahátiðar. Ástæðan var sú, að
hljómlistarmennirnir gerðu á sið-
ustu stundu verulegar fjárkröfur
til viðbótar þvi, sem áður hafði
verið samið um. Hljómleikarnir
voru engu að siður teknir upp á
myndband og stereo-upptökutæki
útvarpsins og verða geymdir þar
til lausn hefur verið fundin.
/ JAnnað tilvik varðar bresku
rafeindapoppsveitina Human
League, en hætta varð við upp-
töku sjónvarpsins á hljómleikum
sveitarinnar i Laugardalshöllinni
á siðustu stundu. Listahátið hafði
samið við Þorstein Viggósson,
umboðsmann Human League
hérlendis, um upptökuna en þeg-
ar til kom vildi yfirrótari poppar-
anna ekki gefa samþykki sitt fyr-
ir upptökunni fyrr en það var orð-
ið of seint fyrir sjónvarpsmenn.
Rikisútvarpið mun ákveðið i að
standa fast á samningsbundnum
rétti sinum — og væntanlega mun
Listahátið standa fast á sinu
gagnvart Þorsteini Viggóssyni.
Þó gera menn sér vonir um að
hægt verði að leysa þessi mál
friðsamlega. Fleirihliðstæð dæmi
hafa komið upp — og þykir að
vonum merkilegt, að reynslan
hafi ekki kennt framkvæmda-
mönnum Listahátiðar i Reykja-
vik að geirnegla alla samninga
áður en duttlungar og tilviljanir
fara að bitna á óbreyttum tækni-
mönnum útvarps og sjónvarps...
Tölvum
eru takmörk
sett
Skáktölvur hafa rutt sér til rúms
á undanförnum árum og tekið
framförum eins og aðrar tölvur.
Samt hefur enn ekki tekist að
framleiða ósigranlega skáktölvu.
Margir hafa undrast þetta og
spurt hvort tölvan geti ekki ein-
faldlega farið yfir alla huganlega
möguleika og valið þann rétta.
Það verður seint búin til tölva
sem getur beitt þeirri aðferð. Til
þess eru möguleikarnir einfald-
lega allt of margir. Talið er að
möguleikarnir i skákum séu 10
i 120. veldi og hver skák telur
marga leiki. Þessi tala er svo há
að þótt hægt væri aö búa til tölvu
sem gæti íariö yfir 1 milljón
möguleika á sekúndu tæki það
hana ármilljarða að skoða þá
alla. Fullkomasla skáktölva sem
nú er til getur séð 3—8 leiki i'ram i
timann og skoðaö 6—8 milljónir
möguleika á minúlu.
Skákmeistarar geta náttúr-
lega heldur ekki yfirfarið alla
þessa möguleika. En þeir hugsa i
mynstrum, meta styrk einstakra
taflmanna eða nokkurra samar^
útiloka fáránlega möguleika og
geta séð 2—4 leiki fram i timann
og hugsaö sér ákveðnar brautir i
framhaldi af þeim. Nú er unnið að
þvi að búa til tölvur sem hugsa
svipað og góðir skákmeistarar en
þær eru skammt á veg koranar,
hafa t.d. ekkert að segja á góð-
ar tölvur af venjulegri gerð. En
þeirra timi kemur kannski
seinna. Og þá mega Karpov og fé-
lagar fara að vara sig!
#Í>TÆKKUM
VIÐ LEÐURDEILDIIMA
Hin vinsœla ledurdeild okkar verdur framvegis á 3ju hœð
JL-hússins í stœrra og rúmhetra húsnœði
Nýkomin úrvals hollensk leðursófasett
Landsins mesta
úrval af
leöurhúsgögnum
9
re
ii>8’
Jón
Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
HÚSGAGIMADEILD SÍMI 28601