Helgarpósturinn - 13.08.1982, Side 2
_Helga/---
—pösturinn.
Föstudagur 13. ágúst 1982
Helgarpóstinum um kaup
Bæjarútgerðarinnar á vél i togar-
ann Jón Baldvinsson, en vélin
reyndist biluð og gerði Ragnar
Júliusson, fulltrúi Sjálfstæðis-
manna,m.a. talsvert mál úr þvi.
Nú mun hafa komið i ljós að
kaupin á vélinni hafi sem slik ekki
verið slæm, heldur hafi vélin ein-
faldlega bilað i meðförum hér
fyrir mannleg mistök. Hefur
heyrst að notaðar hafi verið
rangar oliusiur sem orsökuðu
bilunina...
J Meðal væntanlegra jólabóka
frá nýja útgáfufélaginu Fjölni
verður sannsöguleg frásögn i
skáldsöguformi eftir hinn kunna
n a z i s t a v e i ð a r a Simon
Wiesenthal. Bókin heitir Max og
Helena og fjallar um ungt pólskt
par sem lendir i fangabúðum
nazista og á siðan sérkennileg
samskipti við andskota sinn
þaðan að loknu striðinu. Sveinn
Ásgeirsson hagfræðingur þýðir
bókina...
/• lAlþýðuflokksmenn hafa breytt
.Xlögum sinum sem kunnugt er
á þann veg aö leyfilegt er að
stofna fleiri en eitt Alþýðuflokks-
félag i hverju byggðarlagi. t vor
var talsvert fundað meðal ungra
krata um stofnun róttæks
jafnaðarmannafélags i Reykja-
vik og nú i vikunni var ákveöið að
hefja undirbúning að formlegri
stofnun-sliks félags, vinna að gerð
rammasamþykkta fyrir það o.fl.
Meðal forgöngumanna um þetta
félag eru Vilmundur Gylfason,
Bjarni P. Magnússon og Snorri
Guðmundsson, auk fleira ungs
Alþýðuflokksfólks. Ekki mun enn
ljóst hvað félagiö á að heita...
/ ÍUmsjónarmenn Helgarblaös
-/l Timans, þeir lllugi Jökulsson
og Egill Helgason eru nú að.
hverfa frá blaðinu. Egill reyndar
hættur, og Illugi gengur út um
næstu mánaðamót. Hefur heyrst,
að þeir félagar ætli aö setjast
aftur á skólabekk eftir nokkurt
hlé. Eftirmaður Illuga og Egils
verður Atli Magnússon blaða-
maður á Timanum, en ekki hefur
enn verið frá þvi gengið hvort ein-
hverjir utanaðkomandi verða
honum til aðstoðar, eða hvort það
verða fastir biaðamenn Timans...
y-JEn trúlega er aðal leyndar-
y málið i fjölmiðlaheiminum
núna hver verður fréttastjóri DV.
Með þennan timamótaatburð er
farið einsog mannsmorð á blað-
inu. Búið er að ganga frá ráðning-
unni, en einhverra hluta vegna er
henni haldið leyndri. Ýmis nöfn
hafa verið nefnd. Eftir þvi sem
næst verður komist er þó ekki um
reyndan fjölmiðlamann að ræða,
og er það mál ýmissa á DV aö trú-
lega verði þetta ungur, þekki-
legur og þægur lögfræðingur meö
traustan Vöku-bakgrunn. Um
þetta agalega leyndarmál veröur
þó ekki fjölyrt, enda er svo
gaman að hafa einhverja spennu 1
lifinu...
GOTTBILMILLI BÍLA— S
„Hafo svona vandaóir raöskápar
nokkum tíma venó seldir á jafn
hagstæóu verói ?“
Okkur hefur tekist að halda verðinu því sem næst óbreyttu
í heilt ár. 8% staðgreiðsluafsláttur eða 25% útborgun.
flk Brúnleit eða wengelituð eik,
II »L_ I p WHjk 9 fléttaður tágavefur í rammahurðum.
jf IBT1™ 9 M9 [ téH H“™g| Lj°s 1 neðri ljósakappa. íslensk
9 W ■ I ■ H I hönnun - íslensk framleiðsla.
KRISTJfin
SIGGGIRSSOn Hfi
LAUGAVEG113.
SMIÐJUSTÍG 6. SÍMI 25870
fig
óska eftir aö fá sent MEDINA litmyndablaðið
| Nafn:
Heimili:_________________________________________________________
Staður:__________________________________________________________
Sendist til: Kristján Siggeirsson h.f. Laugavegt 13.101 Reykjavík
Lánakjör og verð sem vert er að kynna sér
H Ingvar Helgason
S ýriingarsalurinn
v/Vonar/and
Sími 33560