Helgarpósturinn - 13.08.1982, Side 4

Helgarpósturinn - 13.08.1982, Side 4
eftir Guðlaug Bergmundsson mótmæ'anna Hvaða St»i' • Föstudááuf i 3. ádjúst 1'982 'sla%mk, Alltaf þurfum við að skilgreina og dilkdraga alla skapaða hluti, hvort sem það eru menn eða málef ni. Árið er varla liðið, þegar spekingar af öllum stærðum og gerðum fara að spá í hvað helst haf i einkennt það. Var það eldgosaár? Var það sviptivindasamt í pólitíkinni? Eða einkenndist það bara af góðæri til sjávar og sveita? Næsta stærðareining fyrir ofan árið er kannski áratugurinn. Þegar við höfum afgreitt árin hvert fyrir sig, förumviðað spá í áratug- inn. Sjöundi áratugurinn var um margt merki- legur í vesturálfu. Ungdómurinn reis upp gegn stríðsrekstri og að hans mati úreltum þjóðfé- lagsháttum. Hámarki náði þessi ungmennaupp- reisn á árinu 1968, þegar stúdentar um allan heim slógust við her og lögreglu í baráttu sinni f yrir breyttu og betra þjóðf élagi. Þess vegna er sjöundi áratugurinn með réttu nefndur áratug- ur uppreisna og mótmæla. • Helgarpósturinn kannar hug manna til náinnar framtíðar Tveir eins Eilitðin höndiuö. Guöbergur Bergs- son myndir: iim Smart • Almenn bjartsýni um blómlegt mann- og menningarlíf Vilmundur Gylfa- son Attundi áratugurinn rann upp, og rann siðan sitt skeið á enda, án þess aö ungdómurinn heföi sig svo mjög i frammi. Menn sieiktu sár sin,reyndu að sætta sig viö brostnar vonir, og ein- beittu sér aö sjálfum sér. Naflaskoöun getur þvi talist eitt af höfuðeinkennum áttunda áratugarins. Niundi áratugurinn er genginn i garð, og ekkert er eðlilegra en menn velti fyrir sér hvað helst muni einkenna hann. Bandarikjamenn eru þegar farnir aö spá og spekúlera, og þeim viröist allt benda til þess, að helstu einkenni þessa áratugar verði það sem við gætum kallað „stæl” á móðurmálinu. É^ómantíkin á uppleiö Hinn nýi „stæll” felst meðal annars i þvi, að unglingarnir þræða verslanir, sem selja notuð föt, og i helstu klúbb- um New York má sjá ungmenni iklædd fötum frá timabili, sem þau kynntust aldrei. Svipað hefur verið uppi á ten- ingnum hér á landi undanfarin tvö ár, eða svo, þegar unga fólkið hefur sótt æ meira i föt frá timum pabba og mömmu, og jafnvel afa og ömmu. En verður þetta tiska níunda áratugarins, ,mun hún byggjast á þvi, að leitað verður til fortiöarinnar að fyrirmynd- um? Þeirri spurningu svarar Colin Porter, fatahönnuðurhjá Karnabæ: „Það verður ekki leitað langt aftur, heldur til áranna 1950—60, álit ég”, segir hann. „Þegar pönkið er búið, kemur rómantikin aftur.” Hann segist ekki sjá fram á miklar breytingar á tiskunni á þessum ára- tug. Fólk muni skapa sér sina eigin tisku, en ekki tiskukóngarnir. Colin álitur einnig, að sennilega verði minna bil á milli karl- og kventiskunnar en nú er. Annars telur hann ungt fólk vera ringlað, allir séu að leita að ein- hverju, og þá ekki bara i tiskunni held- ur i öllu. Níöur með bölsýnina Framtiðin er jú alltaf framtiðin, og þar af leiðandi skiptir hún unga fólkið kannski meira máli en þá, sem eldri eru. Valgarður Guðjónsson, söngvari Fræbbblanna, er liðlega tvitugur og verður hann þvi á besta aldri, þegar þessi áratugur.er úti. Hver verða að hans áliti helstu einkenni níunda ára- tugarins? „Ég er nú enginn spámaður”, segir hann, „en menn eru frekar svartsýnir nú. Ég held að fólk i dag sé vonlaust og lifi mest fyrir liðandi stund, en það er þó misjafnt. Ungt fólk litur ekki á það sem gefinn hlut, að það geti skipulagt framtið sina næstu tiu til tuttugu árin. Þetta ræðst meira á hverjum degi. Menn eru skithræddir við heimsendi og verða það eitthvað áfram. Hann kemur ef hann kemur, annars ekki.” Valgarður er þó þeirrar skoðunar, að framtiðin sé ekki eingöngu kolsvört heldur muni ástandið skána, þegar á liður áratuginn, þegar menn verða farnir aö nota tölvur og aðra tækni meira.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.