Helgarpósturinn - 13.08.1982, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 13.08.1982, Blaðsíða 5
örtölvubyltingin svokallaöa setur töluveröan svip á alla umræöu um nánustu framtiö mannkynsins og Val- garður er ekki sá eini af viömælendum okkar sem leiöir hugann aö tölvuvæð- ingunni. Hildur Einarsdóttir, blaöa- maður á Morgunblaöinu,álitur, aö á þessum áratug munum við standa á þröskuldi töluverðra þjóöfélags- breytinga, ,,sem koma i kjölfar örrar tækniþróunar, þar sem tölvutæknin mun koma inn á flest svið daglegs lifs og hafa áhrif á það. Heimsmyndin á eftir að halda áfram að breytast á þessum áratug er viö komumst i samband við gervihnetti sem flytja okkur efni frá ólikum menningarsvæðum. Raunverulega á þetta eftir aö gjörbreyta viðhorfum fólks, það fer að hugsa i stærri ein- ingum, þ.e. hið alþjóðlega sækir á, en þjóðernisviðhorf verða endurskoðuð.” A meðan sérfræðingar tala fjálglega um örtölvubyltinguna og allt hið góða, sem hún mun færa okkur — meiri fri- tima, meiri hagsæld, svo eitthvað sé tint til — gætir ákveöins ótta al- mennings andspænis þessum nýju og flóknu tækjum, ótta við að talvan kunni að ná yfirhöndinni eins og Stanley Kubrick sýndi svo eftirminni- lega i mynd sinni 2001. „Tölvur eru bara til göðs”, segir Haraldur Ólafsson lektor, þegar hann er spurður hvort ekki sé ákveöin hætta samfara tölvuvæðingunni, sem allir tala um. ,,Ég held, að tölvur séu fyrst og fremst hjálpartæki, og ef rétt er á málunum haldiö, þýðir öll sjálfvirkni aukna framleiðni, og við getum lifað betra lifi. Ég held, aö það sé nauðsyn- legt að eyöa öllu dularfullu i kringum tölvurnar. Þær eru mjög fullkomin tæki, sem gera okkur allt auðveldara en áður.” bioftleiðsla til tungslins Tuttugasta öldin er oft nefnd geim- öldogþarf engan að undra. Það fer þvi ekki hjá þvi, að geimferöir og annað, sem þeim tilheyrir, blandist inn i um- ræðuna, þósvo aö þaö eigi ekki eftir að verða islenskur veruleiki á þessum áratug. Guðbergur Bergsson rithöf- undur er þeirrar skoðunar, að geim- ferðir eigi eftir að setja mikinn svip á niunda áratuginn. ,,Ég held, að helstu einkenni áratug- arins verði þau, að maðurinn geti i fyrsta skipti flúið jörðina, og hann fer að leita til annarra hnatta”, segir Guð- bergur. Hann segir, að maðurinn sé sifellt að flýja heimili sitt og land, en nú muni hann geta flúið jörðina og hafið land- nám á öðrum hnöttum, þar sem ekkert loft er. Maðurinn fari þá að búa til loftslag, t.d. á tunglinu. „Þar sem maðurinn uppgötvar aldrei neitt, heldur leiðir eitt af öðru, mun gasleiðslan, sem nú er verið að leggja frá Siberiu til Evrópu, hafa þær afleiðingar i för með sér, að maðurinn mun byggja loftleiðslu til tungslins.” Þess vegna mun mannkynið,að áliti Guðbergs, leggja höfuð áherslu á ræktun, þar sem gróðurinn framleiðir það súrefni, sem við öndum að okkur. Og áfram með tæknina, þvi að hún lætur sannarlega ekki að sér hæða. Guðbergur telur, að annað afrek mannkynsins verði uppgötvun eilífð- arinnar: Það muni gerast á þann hátt, að þegar einstaklingur fæðist, verði gerð af honum tvö eintök, sem muni lifa hvort i framhaldi af öðru, og þegar það seinna deyi veröi gerð önnur tvö eintök o.s.frv. Þegar hafi verið gerð tvö eintök af sömu rottunni og rottan sé þvi hinn sanni frelsari mannkyns- ins. Hildur Einars- dóttir stæll seinni hluta niunda áratugarins verðianarkiskur. Hann bendir á að I pólitikinni höfum viö þrjár kynslóðir. Fyrst sé kreppukynslóðin.dugandi menn, sem séu miðstýringarmenn, siöan komi palesanderkynlóðin, sem hafi dugað lakar.og loks þriðja kynslóðin, sem sé anarkisk. „Ég held, að sú hugmyndafræöi sem er að ryðja sér raut, sé valddreifingin, og að menn fari að dusta rykið af gömlu anarkistunum. En hver meöal- greindur menntaskólapiltur heldur, að anarkistar hafi eingöngu verið menn, sem drápu rússneska keisarann. Vald spillir, og þvi minna vald, sem er á miöjunni, þeim mun betra.” Þá segist hann sannfærður um að hanseigið lagafrumvarp um niðurbrot miðstýringar i verkalýöshreyfingunni verði samþykkt. Haraldur ólafsson telur, að tals- veröar sviptingar geti orðið i stjórn- Dnmantikin á fullu hjá unga fólkinu Látum þetta duga um hugleiðingar manna um tækni komandi ára og snú- um okkur frekar að mannlifinu og þjóðlifinu. Vilmundur Gylfason alþingismaöur heldur þvi fram, að iA^narkí málunum á þessum áratug, og að þær muni verða vegna hagnýtingar auð- linda landsins. En sú tilhneiging verði rikjandi, að menn reyni aö ná skyn- samlegum árangri. Hollustan góöa En hvað með lifsstil okkar á þessum áratug, verður hann eitthvað svipaður þvi sem hann er I dag eða á hann eftir að breytast mikiö? Viðmælendur okk- ar eru á þvi, að hann verði svipaður og ef eitthvaö horfi allt til betri vegar. Vilmundur telur að menntun almenn- ings eigi eftir aö aukast enn meir en nú er, og að þaö sé af hinu góða. „Það aö vita er undirstaöa mannlegrar ham- ingju”, segir hann. Haraldur ólafsson er þeirrar skoö- unar, að i náinni fratið muni fólk lifa hollara lifi. en áður og merki hann það á þvi, að fólk sé farið að borða betri mat og að áhugi á iþróttum og útivist hafi aukist á siðustu árum. Vilmundur talar á svipuðum nótum og segir, að umhverfismál eigi eftir að skipta okkur miklu máli. Sem dæmi nefnir hann, aö fólk vilji nú vernda gömul hús, og tilhneigingin eigi eftir að verða enn frekar i þá átt. Hildur Einarsdóttir telur, að hagir fólks eigi eftir að breytast mikið, þeg- ar tölvuvæðingin hefur innreiö sina á heimilin með heimilistölvuna i farar- broddi. „Þvi tölvan á eftir að koma okkur i beint samband við helstu stofnanir þjoöfélagsins og upp lýsingabanka, þarsem viö fáum fyrir- greiöslu og svör við þeim vandamál- um, sem upp koma. Þetta á eftir að, gera fólki kleift aö leysa sjálft úr sin-‘ um málum án beinnar utanaðkomandi aðstoðar, og gera manninn óháðari hjálpsemi eða afskiptasemi annarra,, og um leið sjálfstæðari.” Hildur talar einnig um að bóksala muni dragast enn meira saman á þessum áratug en þegar er oröið, og aðsókn muni minnka að kvikmynda- húsum, þegar myndbönd eða mynd- skifur veröa orðin algeng heimiliseign um miðjpn áratuginn. „Fólk á eftir að eignast ferðamynd- segulbandstæki, þar sem þaö getur tekiö upp eigiö efni, og myndsegul- bandstækið á seinna eftir aö verða al- menningseign, eins og t.d. ljósmynda- vélin er orðin núna”, segir hún. Lfgl __________ ,rjnn Föstudagur 13. ágúst 1982 Allir menninguna Þetta tal leiðir kannski hug okkar að blessaðri menningunni, eins og hún er kölluð, og hvaö veröi um hana á þess- um timum tækninnar. Mun hún endan- lega deyja drottni sinum innan um alls konar viravirki og rafeindadósir? Al- deilis ekki. Hún verður blómlegri en nokkru sinni, ef aö likum lætur. „Mér sýnist við vera á leið inn i frjótt timabil hvað varðar listir og bókmenntir”,segir Haraldur Ólafsson. „Islensk kvikmyndagerð, sem er aö verða til, bendir I þá átt. Þetta eru ekki eftirapanir, heldur eitthvað ferskt og nýtt. t myndlistinni er lika ákflega mikil frjósemi.” Haraldur segir, að þetta minni sig á fyrstu árin eftir lýðveldisstofnunina, en á þeim áratug hafi verið mikið skapandi starf. Guðbergur Bergsson heldur, að fjöldamenningin svokallaða muni hverfa, og þar af leiðandi muni hver einstaklingur lifa eftir sinu höfði. „Hér verður það einkennandi að all- ir fara að þýða bækur og þar af leið- andi hverfur úr sögunni hinn sjálfs- ánægði menntagaur, sem var mikið i tisku hér. Alþýöulist verður studd, og með auknum fritima mun fólk snúa sér meira aö list, sem veröur til heimilisbrúks. Vegna þýðinga og tengsla við útlönd mun hámenning risa og fúskararnir hverfa, vegna þess að fólk fer að hafa vit á listum”,segir hann. Vilmundur Gylfason er svipaös sinn- is og Guðbergur, og segir, að menning- arlegum þátttakendum muni fjölda, og hann segist hafa miklu meiri trú á fólki en svo, að hann óttist, að fjölda- menningin muni gleypa allt. Við skulum þá bara slá botninn i þetta, og vona aö niundi áratugurinn verði jafn góöur og menn ætla, og að allt heimsendatal eigi ekki við nein rök aö styðjast. Það verður gaman að lifa á morgun. „Fólk verður bjartsýnna, þegar á liður. Svartsýnin veröur ekki eins á- berandi og hún er núna”, segir hann. fölvur til góðs Haraldur Ólafsson

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.