Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 13.08.1982, Qupperneq 6

Helgarpósturinn - 13.08.1982, Qupperneq 6
Föstudagur 13. ágúst 1982 urinn. Þaö er tómlegt i Höllinni þessa dagána. En þann tuttugasta veröur komin upp sýning á annað hundraö fyrirtækja á öllu til heimilisins. „Þetta smeilur saman siöustu fjóra dagana”,segir Guömundur Ein- arsson framkvæmdastjóri Kaupstefnunnar i Reykjavik (myndin). Jóhann Hafstein skrifstofustjóri er til vinstri. (Mynd: Jim Smart) Guðmundur Einarsson fór frá kirkjunni á kaupstefnuna: Allt milli himins og jarðar á Hejmili og fjölskyldu ’82 Þegar menn taka sér árs orlof frá störfum reyna flestir að nota o § I o> 1 99 tímann til þess að gera eitthvað al- veg nýtt. Margir leggjast í ferðalög og láta rætast gamla drauma um að sjá sig um í heiminum. Guðmundur Einarsson sem hef- ur verið framkvæmdastjóri Hjálp- arstofnunar kirkjunnar í ellefu ár tók sér orlof um síðustu áramót. Og hann ákvað líka að taka sér eitthvað allt annað fyrir hendur en áður. Nema hvað ólíkt mörgum öðrum hætti hann að ferðast og settist í staðinn inn á skrifstofu Kaupstefnunnarí Keykjavík h.f. og hóf að undirbúa heimilis- tækjasýninguna sem verður opnuð í Laugardalshöll í næstu viku. — Þegar ég átti kost á orlofi eftir ellefu ára starf vildi ég gjarnan fara í eitthvað gjörólíkt því sem ég hafði gert áður. Og þegar mér bauðst þetta starf hjá Kaupstefnunni sló ég til, segir Guðmundur í samtali við Helgarpóstinn. Þegar ég vann hjá Hjálparstofn- un bjó ég bókstaflega í ferðatösk- um, var stöðugt á ferðalögum. Ferðir til þróunarlanda eru ekki neinir skreppitúrar, þetta voru oft þriggja vikna ferðir. Ég fór strax að hlakka til að sleppa ferðalögum og búa heima í eitt ár, segir Guð- ■ mundur. Nú er hann á fullu í undirbúningi sýningarinnar, á lokasprettinum í undirbúningi sem hefur tekið hálft annað ár. Og það var með naumindum að það tókst að króa þá Jóhann Hafstein skrifstofu- stjóra af í anddyri Hallarinnar til að fræðast um sýninguna Heimilið og fjölskylduna ‘82. Sýningunni verður skipt í þrennt. { aðalsal verða 80 fyrirtæki með heimilistæki, en auk þess munu bæði ferðafélög og flugfélög hafa þar bása. Fjöldamörg fyrir- tæki verða með allskonar matvæli, bæði innlend og erlend. í baksal verður orkusýning á vegum Bandaríkjastjórnar þar sem verða til sýnis ýmsar þær nýjungar varðandi orkumál, sem hafa komið fram á undanförnum árum. Sýningin er farandsýning og hefur farið víða um lönd. Á útisvæðinu verður sýning á sumarhúsum, bílum, bátum og ýmsu fleira, sem viðkemur útilífi. Raunar verður yfirleitt allt milli himins og jarðar á þessari sýningu, því það er fátt sem ekki viðkemur heimilum á einn eða annan hátt. — Fyrirtækin sem sýna eru á annað hundrað, og strax í febrúar fór að myndast biðlisti eftir plássi. Það er ljóst, að það er orðinn til- finnanlegur skortur á stærra sýn- ingarplássi en Laugardalshöllinni, segir Guðmundur Einarsson. Fyrir utan Höllina verður tívolí eins og í fyrra, stórt og myndarlegt að sögn Guðmundar. Auk þess verður komið upp skemmtipalli þar sem verða ýmsar uppákomur, meðal annars koma þar fram þrír rússneskir sirkusmenn, — tveir akrobatar og einn töframaður. Og úr stóru og miklu mastri mun breskur ofurhugi steypa sér log- andi ofan í vatnsker. Inngangseyri á sýninguna verður stillt í hóf. Verðið fyrir fullorðna verður 80 krónur, nema 50 krónur fyrir ellilífeyrisþega. Fyrir börn sex ára og eldri kostar 25 krónur. Þess- ir miðar gilda jafnframt á tívolíið. BÍTLAR í FANGI MARÍU MEYJAR A hverju ári leggja þúsundir feröamanna i Bretlandi lykkju á leið sina til að skoöa Mathew Strect í Livcrpool. Hvaö skyldi þaö vcra sem dregur allt þetta fólk inn i þ'etta öngstræti i miö- borg Livcrpool? Jú, þarna var þaö sem fjórir ungir menn, sem kölluöu sig The Beatles, stigu sin fyrstu spor á frægöarbrautinni. Það væri synd aö segja að ferðamennirnir fái mikið fyrir ó- makið. A einum vegg hangir ne- onljósaskilti með áletruninni „The Cavern” en það nafn bar klúbburinn sem Bitlarnir tróðu fyrst upp i. En það er alls ekki ör- uggt að skiltið hangi á réttu húsi, um það rikir nokkur óvissa. Einn- ig er aö finna i götunni minjasafn um fjórmenningana, en þaö þykir heldur klént, aö mestu einskorðað við plaköt, myndir og minja- gripasölu. A sama vegg og ljósaskiltiö hangir hefur verið komiö fyrir likneskju af Mariu mey með fjóra strákhnokka á arminum. Yfir höföi hennar stendur „Beatles Street” og fyrir neðan „Fjórir drengir sem skóku heiminn”. Aö öðru leyti er ekkert sem minnir á tilveru þessara frægu fjórmenn- inga. Hins vegar hafa pönkararnir hreiðraðum sig I öðrum enda göt- unnar. Þar reka þeir verslun með varning sem nýtur vinsælda með- al pönkara; sikkrisnælur, hárlit, rifna leðurjakka og barmmerki. Ekki langt frá Mathew Street er sú fræga gata Penny Lane. Ó- kunnugir eiga þó erfitt með að finna hana þvi hún er ómerkt. A- stæðan er sú að borgaryfirvöld hafa gefist upp á að hengja upp skilti með götuheitinu — þeim var alltaf stoiiö jafnharðan og þau voru fest upp. Island að verða eitt allsherjar rallland? z z ttalskir rallökumenn virðast vera gripnir miklu islandsrallæöi. Hér er einn hinna fjögurra rallbila ttalanna, sem veröa meö I Ljóma - ralli ’82. Myndin var tekin á athafnasvæði SÍS f Sundahöfn (Mynd: Jim Smart). ítalir með „íslandsrallæði” \ mimzi ■E ísland virðist á góðri leið með að verða þekkt um alla Evrópu sem rallland. Falleg og hrjóstrug náttúra, slæmir vegir, síbreyti- legar aðstæður. Þetta er það sem fellur í kramið hjá útlendum rall- köppum. Það er að minnstakosti ekki annað að sjá en ítalirnir Mario, Toni, Cesare og Edno hafi fallið í stafi yfir landinu. Þótt þeir hafi tvisvar orðið að lúta í lægra haldi fyrir vegunum okkar og ánum í Ljómaröllunum í fyrra og hitteð- fyrra. Samt eru þeir enn komnir galvaskir og ætla að reyna sig í þriðja sinn. Já, og vel á minnst Ljóma. Það er líklega að verða með þekktari smjörlíkistegundum í Evrópu. Það er hafi menn áttað sig á þvi að þetta er heiti á smjörlíki. Þriðja alþjóðlega Ljóma-rallið fer fram dagana 20.-22. ágúst, og það verða fleiri ítalir en Mario, Cesare og félagar.Fjórir Iandar þeirra á tveimur bílum ætla að spreyta sig á íslandsralli að þessu sinni auk þeirra. Fjórir bílar frá ftalíu — og auk þess ítalskt sjón- varpslið. ftalir hljóta að vera gripnir einhverju „ís- landsrallæði". Bílarnir verða ræstir við Hótel Loftleiðir klukkan sex að morgni föstudagsins 20. ágúst og laugardaginn 21., en þriðja dag- inn verða þeir ræstir frá Laugardalshöllinni klukkan níu. Þá verður hafin sýningin Heimili og fjölskylda ’82, og milli klukk- an hálf sex og sex á sunnudag á rallinu að ljúka þar, og sigurvcgurunum er síðan ætlað að ræsa börn í „Tropicanaleik” á vegum Sólar h/f sem er systurfyr- irtæki Ljóma, aðal styrktarfyrir- tækis rallsins. Eknir verða 1504 kílómetrar á þessum þremur dögum, og meira en helmingurinn af því eru sérleiðir. Leiðin sem ekin erverð ur ekki gerð opinber fyrr en í kvöld, föstudag, svo hér er ekki hægt að gera grein fyrir henni. Þó höfum við frétt að hún verði í að- alatriðum sú sama og í fyrra, en þó verði ekki ekið um Kaldadal, sem reyndist keppendum mjög erfiður í fyrra. Það voru Norðmennirnir Finn Rhyl Anderson og Jan Johan- son sem sigruðu í fyrsta al- þjóðlega rallinu, en í fyrra var sigurinn íslenskur og sætur. Þá sigruðu bræðurnir Ómar og Jón Ragnarssynir. Sé reynt að spá í úrslitin að þessu sinni lenda þeir bræður lík- lega mjög ofarlega á blaði, þótt þeim gengi illa íHúsavíkurrallinu um daginn. Bragi Guðmundsson og Bjarni Haraldsson eru líka sigurstranglegir, en þeir verða á nýjum sérsmíðuðum rallbíl af gerðinni Mitsubishi Lancer 1600 GSL. Hafsteinn Hauksson og Birgir Viðar Halldórsson á Esc- ort 2000 eru líka til alls líklegir og sama er að segja um Birgi Þór Bragason og Óskar Gunnlaugs- son á Skoda 130 RS. Loks má nefna Óskar Ólafsson og Árna Óla Friðriksson á Escort 2000, sem núna eru efstir að stigatölu í íslandsmeistarmótinu. Erfitt er að segja hvernig ít- ölunum gengur að þessu sinni. Þó er óhætt að fullyrða, að þeir verði strákunum okkar ansi skeinuhættir komist þeir alla leið á annað borð, enda eru þetta þrautþjálfaðir atvinnumenn og vísir til alls. Þátttakendur (ekki í rásröð); Ómar og Jón Ragnarssynir — Renault Alpine 5 Jóhann Hlöðversson og Jóhann S. Helgason — Escort 2000 Aldo Pereno og Franco D’Ang- elo — Opel Kadett Mario C og Toni Cavaleri — Opel Kadett Cesare Girardo og Edno Magnar Opel Kadett Bruno Renna og Gianofranco Brizio — Opel Ascona Bragi Guðmundsson og Bjarni Haraldsson -Mitsubishi 1600 GSL Eiríkur Friðriksson og Halldór Sigurðsson —Ford Escort 1600 Hafsteinn Hauksson og Birgir Viðar Halldórsson — Escort 2000 Auðunn Þorsteinsson og Pálmi Þorsteinsson — Escort 1300 Birgir Þór Bragason og Óskar Gunnlaugsson — Skoda RS 130 Birgir og Gunnar Vagnssynir — Cortina 2000 Óskar Ólafsson og Árni Óli Friðriksson -— Escor t 2000 Þorsteinn Ingason og Sighvatur Sigurðsson — BMW Turbo Eggert Sveinbjörnsson og Magn- ús Jónsson — Escort 1600 Ævar Hjartarson og Bergsveinn Ólafsson — Lada 1600.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.