Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 13.08.1982, Qupperneq 20

Helgarpósturinn - 13.08.1982, Qupperneq 20
20 Föstudagur 13. ágúst 1982 * A.Vvr5-f \ Monty Python í bikini í Regents Park. Frá vinstri: John Cleese, Graham Chapman, Eric Idle, Michael Palin, Terry Gilliam og Terry Jones. Monty hvað? Sexmenningarnir sem nú eru hetstu merkisbera breskrar kimni af br játuðu sortinni eru aftur komnir saman til að f jatla um „Tilgang lífsins-m Margir Englendingar eru áhyggjufullir um þessar mundir. Frést hefur að þar i landi sé fifískan að taka völdin rétt eina ferð- ina enn: Monty Python er aftur kominn á kreik. Já, nafnið eitt fær mestu hrokagikki til að skjálfa. Og jafnvel hér á norðurhjara hljómar nafnið dálitið kunnuglega. Monty Pyt- hon er ekki nafn á ákveðnum manni heldur samheiti sex manna sem hafa gert kvikmyndir, sjónvarpsþætti, hljómplötur og samið bækur þar sem sérstök kimnigáfa þeirra situr i fyrirrúmi. Þar ægir öllu saman. Rjómatertur fljúga og þeim eru töm i munni nöfn eins og Hegel og Kant. Um nokkurt skeið hafa þeir ekkert starfað saman, ekki allir sex að minnsta kosti, en nú hefur sem sé heyrst að þeir haíiplataö nærri 100 millj.kr. út úr Universalkvikmyndaverinu og séu að byrja á nýrri mynd sem nefnist The Meaning of Life eða Tilgang- ur fifsins. Pessa dagana sitja þeirstilltirog prúöir á skrifstofu sinni rétt viö hinn virðuléga Regents Park i London og eru aö leggja sið- ustu hönd á kvikmyndahandritiö. Áöur en lengra er haldiö er e.t.v. ekki úr vegi aö kynnast hverjum þeirra um sig nokkrunánar. Sterkar mæöur Pótt þeir séu ólikir i lund eiga þeir margt sameiginlegt. Uppruni þeirra er svipaður. Þeir eru á aldrinum 39 til 42 ára og allir eiga þeir gott meö aö koma fyrir sig orði. beireru allir af miöstéttarl'ólki. Faðir eins var vátryggingasali, annar bankamaður, þriðji vélstjóri, fjóröi lögga o.s.frv. Allir viröast þeir breskir nema hvaö Terry Gilli- am fyllyrðir að hann sé fæddur og uppalinn i Bandarikjunum. Þeir búa hver meö konu sinni i húsi sinu i London og sumir eiga m.a.s. börn (meðalbarnafjöldi á hvern Python er 1.5 barn) nema Graham Chap- man sem hinir fullyröa aö sé hinsegin. En hann segist búa meö karlmanni til aö vera ekkieinsoghinír. John Cleese hefur ijóstrað upp mjög merkilegu leyndarmáli um hópinn: Allir eiga þeir mjög sterkar mæöur. „Flestir þeir sem eiga sterkari mæður en feður, lenda i útistöðum viö yfirvöld. Þeir verða yfirleittandsnúnir kerfinu.” Eiginlega þarf ekki að halda iengra. Þessi játning skýrir allt. En sannleikurinn er sagna bestur. Eins og svo oft áður var þaö æöri menntun sem fór endanlega með þessi veikgeðja ungmenni. Cleese, Chap- man og Eric Idle stunduðu nám i Cam- bridge en Terry Jones og Michael Palin námu i Oxford. Á námsárunum léku þeir allir i stúdenta- revium auk þess sem þeir sömdu efni i þær. Cleese las lög og Chapman læknisfræöi en hvorugur þeirra hefur nokkru sinni prakti- seraö. Jones vildi veröa skáld. Hann er ekki orðinn þaöenn. Nokkrum árum áður en þessir þokkapilt- ar tóku höndum saman haföi annað gengi, einnig menntað i Oxbridge, þeir Dudley Moore, Peter Cook, Jonathan Miller og Al- an Bennett, samiö skólapilta-ádeilu-reviu, Beyond the Fringe, sem náði svo langt aö verða vinsæl i Londonog siöar á Broadway. Afleiðingin var sú aö á hverju ári upp frá þvi lögöu hæfileikasnuöarar leiö sina i há- skóla landsins, vitanlega i leit aö hæfileika- mönnum. Flugsirkusinn keniur i bæinn Þegar námi lauk beið þeirra starf hjá BBC. Um skeið sömdu þeir aliir efni fyrir David Frost. Og brátt bættist sá sjötti i hóp- inn, Terry Gilliam. Faöir hans var trésmið- ur I Minneapolis. Hann haföi unnið hjá bandariskum skopritum og fengist við auglýsingar en var óánægöur. I London gerði hann teiknimyndir i barnaþætti sem Jones,Palin og Idle sömdu. Áriö 1969 vaknaöi hjá sexmenningunum hugmynd aö sjónvarpsþáttum sem væru frábrugðnir hinu heföbundna breska sjón- varpi. BBC féllst á hugmyndina og fyrr en varöi sat stööin uppi meö vitfirringslegan, vikulegan þátl. Þessir þættir byggöust á smáskritlum sinni úr hverri áttinni, sem tengdar voru saman meö teiknimyndum Gilliams. Nú vantaöi bara nafniö og þaö þyrfti að vera svo algerlega út i hött, að fólk héldi áfram aö spyrja árum saman hvað það táknaði. Þættirnir voru kallaðir Flugsirkus Monty Pylhons. Það kvað hafa veriö meiri háttar lifs- reynsla aö sjá þessa þætti og vist er að i Bandarikjunum eru þeir meðal þess sjón- varpsefnis sem hvaö oftast hefur veriö end- ursýnt. Cleese gengur úr skaftinu Ein aðalástæða þess að sjónvarpsþætt- irnir lögðust al var sú aö John Cleese varð leiður á þessu. John er stór og mikill og einna likari tré en manni. Hann er afar virðulegur i sjón og m innir helst á þá heldri borgara sem hann skopast hvaö mest að. Hannleikur oft kirkjunnar menn, ráðherra eða dómara, sem þola öðrum engan þvætting en eru sjálfir uppl'ullir af þvætt- ingi. „John er meö valdamenn á heilanum, föðurimyndina,” segir Gilliam. „Hann dá- ist að þessum mönnum i laumi, held ég. Hann telur aö þau viöbrögö sem leikur hans kallar l'ram eigi hann skynsemi sinni að þakka. Þetta er ekki rétt heldur verður hannsvo fáránlegur þegar hann er kominn i gervi. Þaðskilur hann bara ekki.” „John er háskakjaítur,” segir Palin. „Ef efnt yröi til keppni i ljótum munnsöfnuði gæti hann náö langt.” Þegar John hættiað leika i „Sirkusnum” sýndu sumir lélaga hans aö þeir kunna ým- islegt fyrir sér i ljótum munnsöfnuöi. En Cleesesegir: „Þeir voru dónalegastir sem voru háöir okkur hinum. Þeir nefndu svik- semi en þaö finnst mér alger barna- skapur.” Eftir að Cleese var hættur aö vinna með hópnum i sjónvarpi reyndu hinir fimm að halda úti þættinum en gáfust upp eftir nokkrar vikur. En f ljótlega fór allur hópur- inn i hljómleikaferö um England og Kan- ada. Einnig sömdu þeir handritin aö kvik- myndinni Monty Python og kaleikurinn. Þegar hér var komiö sögu munaði minnstu aö Monty Python legöi upp laup- ana. Þótt hljómplötur þeirra og bækur seld- ust i stórum upplögum virtist enginn gera sér grein fyrir þvi hve vinsælir þeir voru og enginn þorði að fjármagna kvikmyndina. Loks áræddu rokkhljómsveitirnar Pink Floyd og Led Zeppelin aö leggja fé i fyrir- tækið. 1 Bandarlkjunum einum varö hagn- aðurinnum 150millj.kr. Næsta mynd þeirra félaga var Ævi Bri- ans sem synd var hér á landi lyrir ekki all- löngu. Upphaflega var ætlunin að Brian ætti aö vera þrettándi postulinn en Cleese og Chapman þótti enn sniðugra að gera úr honum eins konarfrelsara. Saman og sundur Cleese og Chapman vinna mikið tveir saman innan hópsins, sömuleiðis Jones og Palin. Gilliam vinnur mikið einn að teikni- myndum sinum og Idle finnst best að vinna einn. Núorðið er samstarf Pythonanna i ákveðnum skoröum. Þeir koma saman á nokkurra ára fresti og gera kvikmynd en þess a milli baukar hver i sinu horni. En allt er þetta laust i reipunum og ruglingslegt. Dæmi: Tveir eða þr*r þeirra íéiaga gera kvikmynd. Er þaö eiginlega Monty Python kvikmynd'? En hvað hal'a þeir verið að bardúsa að undanförnu? Idle hefur samið leikrit og leikstýrt i sjónvarpi. Jones skrifaöi bók um Chaucer (fyndinn náungi Chaucer) og samdi sjónvarpsþætti i samvinnu við Palin. Chapman skriíaði hálfsanna sögu, Sjálfs- ævisögu lygara, og sjóræningjasögu, Gulskegg, sem kvikmynd verður gerð eftir á næstunni. Cleese lék i myndaflokknum Hótel Tindastóll, sem sýndur var i islenska sjónvarpinu fyrir nokkrum árum en þar lék hann uppstökkan hótelstjóra. Þessum myndaflokki var spáö góöu gengi en aðeins voru gerðir tólf þættir. Astæðan? Enn var Cleese orðinn leiöur. Næst stofnaði hann arðvænlegt lyrirtæki sem framleiðir kennslumyndir fyrir einkalyrirtæki. Nýlokið er kvikmyndun á verki Palins, Trúboðanum, með Maggie Smith og Trevor Howard i aðalhlutverkum. Palin er talinn „normalastur” þeirra fé- laga. Þá er eftir aö segja l'rá Gilliam. liann hefur mörg járn i eldinum og samstarfið við Monty Python tefur hann eiginlega frá ýmsu öðru sem hann vildi heldur vera að fást við. Hann samdi handritið að Tímabóf- unum (Time Bandits) sem sýnd var hér fyrir skemmstu og Cleese og Palin léku i meðal annars. Þó að ymsar blikur séu á lofti er vonandi að Monty Python snúi ekki tánum upp i loft, ekki á næstu árum.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.