Helgarpósturinn - 13.08.1982, Page 24
24 _______________________________________
Þröngt spil á
íþróttasídunum
Ef við skoðum íþróttasíður dagblaðanna sjáum við tljótlega að
þær eru að langmestum hluta fylltar frásögnum af kappleikjum og
mótum. Dæmigerð frásögn af knattspyrnuleik hefst á inngangi þar
sem sagt er frá æskilegasta atviki leiksins, síðan er gangur hans
rakinn, hverjir áttu hættulegustu tækifærin, hverjir skoruðu og
hverjir brenndu af, hvernig baráttan um miðjuna hafi artað sig og í
lokin eru liðunum og einstökum ieikmönnum gefnar einkunnir.
Aðrir fastir liðir á íþróttasíðunum eru úrslit frá öðrum löndum og
smáfréttir af dómum aganefndar, meiðslum leikmanna, félag-
skiptum oþh. Og svo er mikið fjaliað um hvernig íslensku at-
vinnumönnunum erlendis reiðir af.
Þannig er þetta dag eftir dag, árið um kring. Það heyrir til algerra
undantekninga ef reynt er að bregða út af vananum, víkka sjónar-
homið eða fara í saumana á einhverju sem gerist baksviðs. Það
gerist nefnilega mikið baksviðs í íþróttaheiminum. Enginn verð-
ur afreksmaður í íþróttum án þess að stunda þrotlausar æfingar
árum saman. Þær kosta peninga, þjálfarar þurfa sitt lifibrauð og
ekkieru tækíogaðstaðaókeypis.Hverniger þessara peningaaflað?
Þeir koma úr ýmsum áttum. Getraunirnar skila sínu, tjáröflun
félaganna meiru og svo eru gerðir samningar við auglýsendur.
Hvernig fer þetta fram? Hvað felst td. í samningum íþróttafélaga
og auglýsenda? Hvað láta félögin af hendi og hvað fá augiýsendur
út úr samningnum? Og af hverju gera fyrirtæki samninga við félög-
in? Er það einskær íþróttaáhugi?
íþróttaafrek kosta ekki bara peninga, þau kosta svita og tár.
Hvaða áhrif hefur það á ungan pilt eða stúlku að standa allt í einu á
Skofi&
eflir Þröst HaraMsson
verðlaunapallinum? Hvaða þrýsting hefur það í för með sér á
afreksmanninn, frá félögunum, frá fjölskyldunni, frá fjölmiðlun-
um, frá forráðamönnum íþróttahreyfingarinnar, frá njósnurum
erlendra félaga osfrv. Og hvermg líður þeim sem tinna að þeir eru
farnir að dala, að blómaskeiðið er búið? Aldrei sér maður stafkrók
um þessa hluti í blöðunum.
Það er hins vegar eytt mikilli prentsvertu í þá kanttspyrnumenn
sem hafa farið út í atvinnumennsku erlendis. En mikið eru þær
fréttir og frásagnir einhæfar. Stundum eru þó birt viðtöi við at-
vinnumennina, en þar er aldrei reynt að kryfja hlutina, spyrja
óþægilegra spurninga. Framhliðin er máluð fögrum iitum,viðta!ið
myndskreytt með BMV-bíl og fiottu einbýlishúsi. Svo er gjarnan
drepið á það að líf atvinnumannsins sé enginn dans á rósum,
samkeppnin sé hörð. Hvernig hörð? Af hverju er ckkert reynt að
grafast fyrir um það? Ég man eftir einni undantekningu. Það var
þegar Atli Eðvaldsson og Pétur Ormslev kvörtuðu yfir því að
þýskir félagar þeirra „sveltu“ þá, þe. gáfu boltann ekki til þeirra svo
þeir fengju ekki tækifæri til að sýna getu sína.
Og hvernig ganga kaup og sölur fyrir sig hjá þessari „út-
lendingaherdeild"? Um það er harla lítið fjallað á íþróttasíðum
blaðanna. „Útlendingarnir“ sjálfir viija sem minnst um sín fjármál
tala en það er hægur vandi að hafa uppi á tölum um tckjur, söluaf-
greiðslur og annað ef viljinn er fyrir hendi, ekki síst þegar blaða-
menn eru í heimsókn hjá köppunum erlendis.
En íþróttir snúast um fleira en afrek og afreksmenn. Til þess að þeir
verði til þarf þjálfara sem geta hugsað upp leikkerfi, þjálfunarkerfi
og sett hlutina í samhengi. Það þarf að vera einhver hugsun á
bak við allt heila galleríið. Til hvers er fólk yfirleitt að eltast við
bolta, stökkva út og suður. hlaupa og kasta? Jú, það er að þjáifa
skrokkinn og skemmta sér, það er að fulinægja samkeppnisþörfinni
og fá útrás fyrir lífsorkuna.
En hvar er umfjöllun blaðanna um markmið og stefnu
íþróttastarfsins? Hún er afskaplega fyrirferðaiítil, svo fyrirferðalítil
að yfirvöld landsins þurfa aldrei að hafa áhyggjur af að þau verði
spurð hver stefna þeirra á sviði íþróttamála sé. Þeir eru alltaf að
spyrja um stefnu stjórnvalda í hinum og þessum málum, en hingað
til man ég ekki eftir því að neinn úr hópi íþróttafréttaritara hafi
gengið á fund menntamálaráðherra og spurt hann hvaða stefnu
hann aðhyiiist í íþróttamálum. Vill hann efla almenningsíþróttir
eða stjörnuíþróttir? Vill hann byggja glæsilegar hallir fyrir lands-
leiki eða fullt af iitlum völlum og húsurn sem standa öllum opin?
Og svo framvegis.
Ofaná allri kransakökunni er svo forysta íþróttahreyfingarinnar.
Hvaða sjónarmið ráða því að þessi freícar en hinn velst til forystu?
Af hverju eru margir þessara forystumanna aðsópsmiklir stjórn-
málamenn á sama tíma og tönnlast er á því endalaust að stjórnmál
og íþróttir séu tvennt óiíkt og eigi ekkert sameiginlegt? Á sér staö
einhver valdabarátta innan íþróttaforystunnar? Og ef svo er, um
hvað snýst hún? Persónur? Stjórnmálaskoðanir? Eða kannski
stefnu í íþróttamálum?
Einstöku sinnum kemur það fyrir á íþróttasíðunum að þar hefst
umræða um eitthvað af því sem hér hefur verið nefnt. Það gerist þó
sjaldan fyrir frumkvæði þeirra sem ritstýra síðunum, oftast eru það
reiðir lesendur sem hefja leikinn. Og sú umræða sem á sér stað er
afskaplega ómarkviss og leiðist oftast út í einskisvert karp um
smáatriði. Það er vegna þess að íþróttafréttamenn virðast engan
áhuga hafa á umræðu. Ef sá áhugi væri fyrir hendi myndu þeir grípa
tækifærið og reyna að stýra umræðunni, leggja sitt til málanna og
kalla eftir viðhorfum þeirra sem gerst vita og/eða ráða ferðinni. Þá
virðist skorta allan metnað til að hefja sig upp úr hinu daglega
talnaflóði og skyggnast um og fram á Yeginn.
Að þessu leytinu eiga þeir sér ófáar fyrirmyndir í útlandinu þar
sem er síðdegispressan og iágkúruiegri hluti morgunblaðanna. En
það eru til erlend blöð sem eru vönd að viröingu sinni, líka á
íþróttasíðunum. Þar er reynt að setja íþróttastarfið í félagslegt og
efnahagslegt samhengi og líf íþróttafólksins og starf í samhengi við
aðra þætti manniegs lífs. Mikið væri gaman ef einhver viðleitni ætti
sér stað hjá kollegum mínum til að taka sér slík skrif til fyrir-
myndar.
'elgar
sturinn
IJHinAKVISIR HEMMIÍIHál
sÝniiifiarsssilir
Nýlistsafnið:
Sólveig Aöalsteinsdóttir sýnir
fjörug myndverk, skúlptúr og
teikningar. Sýningin er opin dag-
lega kl. 1&—22 og stendur til 16.
ágúst þ.e. henni lýkur á sunnu-
dag.
Eden, Hveragerði:
GuBrún Svava Svavarsdóttir sýn-
ir alls kyns verk, teikningar, mál-
verk og vatnslitamyndir. Sýning-
unni lýkur 17. ágúst.
Mokka:
Kristján Jón Guönason sýnir lit-
rikar og skemmtilegar klippi-
myndir, sem minna okkur á ævin-
týrin meö kóngssyni á hestbaki og
prinsessur i turnum. Gott kaffi á
staönum, þaö besta i bænum.
Listasafn islands:
Landslag i islensku málverki. Yf-
irlitssýning meö verkum margra
af okkar bestu málurum. Sýning-
in er opin daglega kl. 13.30-16.
Árbæjarsafn:
Sumarsýningin i fullum gangi,
frábærir hlutir frá hinu gamla og
góöa Islandi. Auk þess stendur yf-
ir sýning á alþýöulist frá Dölun-
um i Sviþjóö. Sú sýning er i Eim-
reiöarhúsinu. Safniö er opiö dag-
lega, nema mánudaga, kl. 13.30-
18.
Listasafn Einars Jónsson-
ar:
Stórfenglegar höggmyndir Ein-
ars eru tii sýnis alla daga nema
mánudaga kl.13.30-16. A efstu hæö
hússins er ibúö Einars og konu
hans og er hún til sýnis gestum.
Árbæjarsafn:
Safniö er opiö daglega kl. 13.30 -
18, nema mánudaga. Aökoma aö
safninu er um gamla rafstöövar-
veginn og meö leiö 10 frá Hlemmi.
Höggmyndasafn Ásmund-
ar Sveinssonar:
Safniö er opiö þriöjudaga,
fimmtudaga og laugardaga
kl.14-16.
Ásgrimssafn:
Sumarsýning. Aöþessusinni eru
flestar myndanna vatnslita-
myndir og hafa margar þeirra
sjaldan veriö sýndar. Sýndar eru
landslagsmyndir, blómamyndir
og flokkar mynda úr þjóösögum.
Safniö er opiö sunnudag, þriöju-
dag og fimmtudag kl. 13.30—16 i
mai, en daglega, nema laugar-.
daga.frá og meö 1. júni, á sama
tima. Aögangur ókeypis.
Galleri
Lækjartorg:
Nú stendur yfir samsýning nokk-
urra listamanna. Þar gefur m.a.
aö sjá grafik, steinþrykk og
fleira. Meöal þeirra, sem eiga
myndir, eru Rikharöur Valtingoj-
er, ómar Stefánsson (nýsloppinn
inn á þýsku listaakademiuna),
Óskar Thorarensen, Jóhann G.
Jóhannsson, Þorsteinn Eggerts-
son og fleiri. Sýningin er opin
daglega á verslunartima en ki.
14-18 um helgar.
Norræna húsiö:
Sjömenningaklikan heldur áfram
aö sýna hiö nýja islenska málverk
i kjallarasalnum. Komiö og skoö-
iö nýjungarnar. Þarna eru marg-
ir frambærilegir listamenn. Opiö
kl. 16—22 virka daga og 14—22 um
helgar. 1 anddyri heldur áfram
sýning á islensku flórunni á veg-
um náttúrusafnsins, grasadeild-
ar. Og úti fyrir heldur John Rud,
sá danski, áfram aö sýna tilhogg-
ið grjót. Skemmtileg sýning.
Gallerí Langbrók:
Kolbrún Björgólfsdóttir sýnir
handunnið postulin. Sýningunni
lýkurliklega idag, föstudag. Opiö
kl. 12—18. Missiö þvi ekki af
skemmtilegri sýningu frábærs
leirkerasmiös.
Gallerý, Austurstræti 8:
Pétur Stefánsson sýnir malerisk,
ljóöræn prentverk. Sýningin
stendur i óákveöinn tima.
Listmunahúsið:
Engin sýning i águst.
Kjarvaisstaðir:
Kjarvalssýningin heldur áfram i
Kjarvalssal. En i vestursal og
vesturforsal opnar á laugardag-
inn sýningin Islensk frimerki.
Stendur sú sýning I eina viku, lýk-
ur 22. ágúst.
Skipulagsstofa
höfuðborgarsvæðisins,
Hamraborg 7:
Skipulagsarkitektarnir hafa sýn-
ingarsal á vinnustaö sinum og þar
má nú sjá iágmyndir og teikning-
ar eftir örn Þorsteinsson. Sýning-
in er opin á venjulegum skrif-
stofutima. Komið og kynniö ykk-
ur skipulagsmálin um leiö.
Nýja Galleríið:
Magnús Þórarinsson sýnir nýjar
oliu- og vatnslitamyndir. Opiö kl.
14-18.
Listasafn ASí:
Lokað i sumar.
Hótel Isafjörður:
Guömundur Thoroddsen opnar
grafiksýningu á laugardaginn og
stendur hún til 21. ágúst. Sýning-
una geta menn séö á venjulegum
opnunartima hótelsins.
Ásmundarsalur:
A föstudag opnar Asgeir Smári
Einarsson myndlistarsýningu,
þar sem boðiö veröur uppá
blendnar tilfinningar á pappir.
Sýningin veröur opin daglega kl.
14-22. og stendur hún til 23. ágúst.
toulisf
Skálholt:
A laugardag og sunnudag kl. 15
leika þau Hafliöi Hallgrimsson og
Helga Ingólfsdóttir á selló og
sembal. Verkin eru eftir Hafliöa
eöa útsett af honum. Skemmtileg
hljóöfærasamsetning og frábærir
spilarar. Hressum þvi upp á and-
ann og brunum eftir rykugum
vegum landsins á vit hámenning-
arinnar.
Norræna húsið:
Ljóöatónieikar, hvorki meira né
minna. Anna Júliana Sveinsdóttir
söngkona og Lára Rafnsdóttir
pianisti flytja lög eftir Schumann,
Almquist, Rangström, Jón Leifs,
Atla Heimi Sveinsson og Jón Þór-
arinsson. Mörg helstu tónskáld
þjóðarinnar samankominn undir
einum hatti.
■ítilíf
Helgarferðir:
Föstudagur kl. 20: a) Land-
mannalaugar-Eldgjá, b) Þórs-
mörk, c) Hveravellir, d)
Alftavatn, e) Tindfjallajökull, f)
Gönguferð frá Landmannalaug-
um til Þórsmerkur.
Dagsferöir:
Sunnudagur kl. 10: Sneplafoss i
Þverá-Hestfjallahnjúkur.
Sunnudagur kl. 13: Trölla-
foss-Haukafjöll.
Útivist:
Helgarferðir:
Föstudagur kl. 20: a) Þórsmörk,
b) Hattfellsgil-Hólmsár-
lón-Hvannagil.
Dagsferöir:
Sunnudagur kl. 10.30: Um
Ketilstig i Krisuvík.
Sunnudagur kl. 13: Um Seltún til
Krisuvikur. Báöar þessar Krisu-
vikurferöir eru skemmtilegar
gönguferöir og báöar enda þær á
skemmtilegan hátt meö mikilli
pylsuveislu. Um aö gera aö mæta
þvi meö tóman maga. Göngudag-
ur fjölskyldunnar.
Ilíóill
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ágaet
★ ★ góft
★ þolanleg
0 léleg
^2-21-40
★ ★ ★
t lausu lofti (Flying High).
Bandarisk kvikmynd, árgerö
1980. Leikendur: Robert Hays,
Julie Haggert, Peter Graves.
Handrit og leikstjórn: Jim Abra-
hams og tveir aörir.
Stólpagrin i anda stórslysa-
mynda. Aöeins sýnd á föstudag.
A laugardag, frumsýning:
Okkar á milli — i hita og þunga
dagsins. tslensk kvikmynd, ár-
gerö 1982. Leikendur: Benedikt
Arnason, Andrea Oddsteinsdóttir,
Sirrý Geirs, Valgaröur Guöjóns-
son og fleiri. Handrit og leik-
stjórn: Hrafn Gunnlaugsson.
Loksins kemur hún, nýjasta
myndin hans Hrafns um verk-
fræöinginn, sem vaknar upp viö
vondan draum, oröinn miöaldra.
Persónuleg mynd og afskaplega
forvitnileg, ef aö líkum lætur.
★ ★
Flóttinn frá New York. —sjá um-
sögn 1 Listapósti
-ÍT16-444
A A
Undrin i Amityville (The Amity-
viile Horror). Bandarisk kvik-
mynd. Leikendur: James Brolin,
Margot Kidder, Rod Steiger, Don
Stroud. Leikstjóri: Stuart Rosen-
berg.
Ein frægasta hryllingsmynd slö-
ari ára er hér sýnd að nýju. Kom-
iö og fáiö gæsahúö og hjartslátt.
TÓNABÍÓ
Simi 31182
Barist fyrir borgun (The Dogs of
War). Bresk-bandarisk. Argerö
1980. Leikstjóri: John Irvin. Aöai-
hlutverk: Christopher Walkcn,
Tom Berenger, Colin Blakely.
John Irvin, sem leikstýröi svo vel
sjónvarpsþáttunum Tinker Tailor
Soldier Spy eftir John LeCarré,
tekst ekki eins vel upp i þessari
hasarsögu eftir Frederick For-
syth. Christopher Walken leikur
atvinnuskæruliöa sem tekur að
sér aö steypa spilltri einræðis-
stjórn i Afrikuriki, og berst leik-
urinn um alþjóðlegt samsærisnet
fjármála- og stjórnmálaafla.
Leikstjóranum heppnast ekki að
gæða þetta efni umtalsverðri
spennu, og persónusköpun hangir
• i lausu lofti. Hvorki fugl né fiskur.
—AÞ.
GAMLA BIO \
Sími 11475
Samtökin (The Outfit).Bandarisk
kvikmynd, árgerð 1973. Leikend-
ur: Robert Duvall, Karen Black,
Sheree North, Robert Ryan, Joe
Don Baker. Leikstjóri og höf-
undur handrits: John Fiynn.
Nokkrir glæpamenn reyna aö
vera hver öðrum snjallari. Bókin
segir, aö myndin sé leiöinleg og
léleg. Kl. 9.
Faldi fjársjóöurinn (Treasure of
the Mate Cumbe). Bandarisk
kvikmynd frá Walt Disneyfélag-
inu. Leikendur: Peter Ustinov.
Skemmtileg fjölskyldumynd um
leit að týndum fjársjóöi. Sýnd kl.
5 og 7.
Sími50184J
★ ★ ★
Villti Max, striðsmaöur veganna
(Mad Max II) Aströlsk kvik-
mynd, árgerö 1981. Leikendur:
Mel Gibson o.fl. Handrit: George
Miller o.fl. Leikstjóri: George
Miller.